-
Molar um málfar og miðla 1043
26. október 2012
Aðalsteinn sendi Molum eftirfarandi: ,,Hér er glefsa úr DV (http://www.dv.is/frettir/2012/10/21/her-eru-their-sjo-nyir-dyrlingar/)
Pedro Calungsgod, filippeyskur táningur … var veginn með spjóti af þorpsbúum sem veittu því mótstöðu að hann myndi skýra börn þeirra til kristni.Mér fellur illa að menn eru að klessa þarna „mundi skíra …“ í stað „að hann skírði …“hann var … drepinn af þorpsbúum sem. snerust gegn því að hann skírði börn þeirra).
Það skiptir minna máli að blaðamaður ekki of sterkur í stafsetningu (skýra / skíra). Einföld stafsetningarvilla telst ekki til málspjalla.
Málfræðingum tókst óhönduglega til þegar þeir kölluðu sagnasamband á borð „mundi skýra“ skildagatíð en ekki skildagahátt. Síðara nafnið hefði verið mun réttara.
Hjálparsögnin „mundi“ felur í sér ákveðinn fyrirvara eða efa. Hún er sem slík nauðsynleg í málinu en heldur en ekki leiðinlegt ef hún er látin koma í staðinn fyrir allan viðtengingarhátt” Molaskrifari þakkar Aðalsteini bréfið.Hér hefur stundum verið varað við óþarfri þolmyndarnotkun. Í fréttum Ríkissjónvarps (23.10.2012) var sagt: Myndin var tekin af þaki fyrirtækisins. Var verið að taka mynd af þaki fyrirtækisins? Nei. Myndavélin var á þaki hússins þar sem fyrirtækið er starfrækt.
Enn og aftur þetta undarlega orðalag á mbl.is (23.10.2012): Samkvæmt niðurstöðum nýrrar skoðanakönnunar í Noregi á afstöðunni til aðildar að Evrópusambandsins dregst aðeins saman með andstæðum fylkingum. Sama orðalag er notað í fyrirsögn: Dregst saman með fylkingunum. Það dregur saman með fylkingunum, bilið milli þeirra minnkar. Það dregst ekki saman með þeim. Það orðalag er út í hött.
Þegar fréttamenn eru svo öruggir með sig í fréttalestri að þeir eru hættir að hlusta á eigin lestur er eins gott að gæta að sér, eins og stundum hefur verið nefnt hér áður. Þetta mátti heyra í útvarpsfréttum (24.10.2012) þegar fréttamaður talaði um hinn ítalska Berlusconi og þingkosningarnar á Alþingi næsta vor! Sá sem las hlustaði ekki á sig lesa, en fréttamaðurinn sem var með næstu frétt hafði hlustað og gerði hæfilega góðlátlegt grín að starfsbróður sínum.
Það væri góð tilbreyting ef dagskrárkynnir Ríkissjónvarpsins hætti að kynna læknasápuna sem er á dagskrá á miðvikudagskvöldum með orðunum: Það verður líf og fjör á læknamiðstöðinni ! Þetta hefur glumið í eyrum okkar að undanförnu. Heldur flatneskjulegt að ekki sé meira sagt. Kannski getur höfundur kynninganna látið sér detta eitthvað annað í hug!
Þegar Morgunblaðið (26.10.2012) segir í feitletraðri fjögurra dálka forsíðufyrirsögn: Hver atlaga stjórnarflokkanna á fætur annarri, er ekki verið að tala um atlögur að almenningi, heldur eigendum Morgunblaðsins. Kvótakóngum, sægreifum og greifynjum.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Þú mátt hafa með þér kjöt, en …
25. október 2012
Við Íslendingar búum í svolitlu sovéti. Svona reglugerðasovéti. Kynntist því aðeins á dögunum. Það var einkar fróðlegt.
Í sumar var tilkynnt með lúðrablæstri að hér eftir mættu ferðamenn taka með sér til Íslands dálitið af hráu kjöti til eigin nota, frosið ( Sjá t.d. Fréttablaðið 11. júlí 2012,Fyrirsögn: ,,Koma má með hrátt kjöt ef það er frosið”) . Fram til þess tíma hafði það verið höfuðsök og refsivert ef ferðamenn tóku með sér kjötbita frá útlöndum.
Greinarhöfundur átti erindi til Færeyja frá föstudegi til mánudags. Hugsaði sér gott til glóðarinnar að kaupa í leiðinni smáræði af nautakjöti á grillið. Sleppa þannig við að kaupa vakúmpakkaða lottókjötið sem ranglega er kallað ,,fullmeyrnað ungnautakjöt”og reynist svo gúmmíkjöt þegar á diskinn er komið. Jafnvel þótt það sé selt undir merkinu fersk kjötvara.
Fylgt var settum reglum og sótt um leyfi til gamla landbúnaðarráðuneytisins sem nú der hluti Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis. Þaðan var hógvær beiðni um að fá að nýta þetta nýja frelsi send til Matvælastofnunar á Selfossi. Allt gekk þetta greiðlega fyrir sig og við komuna til Færeyja síðdegis á föstudag beið svarbréf í tölvunni. Þar segir:
,,Með vísan til til 10.gr. laga nr. 25/1993 um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim, reglugerðar nr. 1043/2011 um eftirlit með heilbrigði eldisdýra og dýraafurðum í viðskiptum innan Evrópska efnahagssvæðisins (EB gerðir nr 89/662,90/425,90/667, 90/675, 91/68, 91/174,91/483, 91/494, 91/495, 91/496, 91/628, 92/45, 92/46, 92/60, 92/65, 92/67, 92/118, 2002/33, 2004/41, 93/444, 94/338, 94/339) og 3.,4., og 5. gr reglugerðar nr. 448/2012 um varnir gegn því að dýrasjúkdómar og sýktar afurðir berist til landsins hefur Matvælastofnun/yfirdýralæknir mælti með því að viðkomandi aðila (innskot: Eiði Guðnasyni) verði heimilað að flytja til landsins lítið magn af nautakjöti frá Færeyjum. Með vörunum skulu fylgja eftirtalin gögn og vottorð:1. Opinbert uppruna- og heilbrigðisvottorð, er staðfesti að að kjötið komi frá ESB-samþykktri starfsstöð.
2. Opinbert vottorð sem staðfestir að dýrum sem afurðirnar eru af hafi ekki verið gefin vaxtarhvetjandi efni á eldistímanum.
3. Vottorð sem staðfestir að vörurnar hafi verið geymdar við a.m.k. -18°C í einn mánuð fyrir tollafgreiðslu.
4. Opinbert vottorð sem staðfestir að afurðirnar séu lausar við salmonellasýkla.
5. Opinbert vottorð sem staðfestir að afurðirnar hafi verið færðar til verkunarstöðvar (svo!) sem eru samþykktar af þarlendum yfirvöldum. “Svo mörg voru þau orð. Þetta er dagsatt. Þetta var síðdegis á föstudegi. Allar vottorðaskrifstofur lokaðar og ég átti að vera Vogaflugvelli klukkan tíu á mánudagsmorgni. Nú voru góð ráð dýr. Rándýr. Fróðir vinir mínir í Færeyjum tjáðu mér að líklega væri það hálfs annars dags verk að útvega þessi fimm vottorð og líklegt væri að þau mundu kosta sjö til áttahundruð alvöru krónur, þessar færeysk- dönsku, eða um fimmtán þúsund íslenskar krónur.
Það gefur auga leið að ekkert var úr kjötkaupum.
Ég lagði hinsvegar leið mína í SMS, glæsilegustu matvöruverslun Færeyja. Þar vantaði ekki að þar væri kjöt frá öllum heimshornum. Þar voru engelskir búffar, tornedos, ítalskir kjúklingar og allt sem nöfnum tjáir að nefna og það meira að segja talsvert ódýrara en býðst á Íslandi. Þetta kjöt er búið að fara í öll þau heilbrigðispróf sem hugsanleg eru og öllum vottorðum hefur verið skilað. En Íslendingum er ekki óhætt eða heimilt að kaupa það og hafa með sér heim. Mér sýndist annars fólk í Færeyjum vera við hestaheilsu og ekki að sjá nein einkenni matareitrunar eða krankleika á því fólki sem ég hitti.. Ég bjó reyndar í Færeyjum í tæp tvö ár og varð aldrei meint af kjötinu sem þar er selt í verslunum og ekki heldur af heimaslátruðu. Mér tókst hinsvegar aldrei að kaupa þar jafn ólseigt kjöt og mér stendur til boða hér heima.En auðvitað er þetta allt misskilningur. Hinn þröngi sérhagsmunahópur sem stjórnar markaðsmálum landbúnaðarins á Íslandi ber sér á brjóst og segist ætla að leyfa ferðamönnum að koma með kjöt til landsins, en setur í næstu andrá reglur sem þýða í raun að ferðamenn geta ekki flutt neitt kjöt til landsins.
Svona látum við alltaf plata okkur. Gamla sovétkerfið lifir góðu lífi hér norður undir heimskautsbaugi. Það blómstrar og belgist út í afdönkuðu landbúnaðarkerfi.Eiður Svanberg Guðnason
Höfundur er fyrrverandi aðalræðismaður Íslands í Færeyjum. Greinin birtist í Morgunblaðinu 25.10.2012
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1042
25. október 2012
Molaskrifari þakkar Helga Haraldssyni , prófessor emeritus í Osló, góða hugleiðingu sem hér fer á eftir:
,,Sæll enn og aftur Eiður, og þökk fyrir birtinguna á „gegnum tíðina“ o.fl. í Molum þínum.
Mig langar að endingu til að koma með enn eina hugleiðingu í svipuðum dúr:Til að byrja með:
“Sá sem segir til að byrja með verður drepinn” (haft eftir Jóni Helgasyni prófessor)Það er eins og menn gleymi því einatt að unnt er að segja
Fyrst
Fyrst í stað
Fyrsta kastið,
Í fyrstu(nni),
Í upphafi,
Upphaflega,
Í byrjun,
Framan af, o.s.frv.
Hér gildir það sama og um „gegnum tíðina“ að mörg þessara orðatiltækja hafa skýrari og þrengri merkingu en ”til að byrja með”, sem þarfnast þess vegna minni hugsunar.Margt er til góðra uppsláttarverka um íslenskt mál sem fúskarar fjölmúlavílsins virðast ekki nenna að nýta sér.
Nýlega kom Svavar Sigmundsson með endurbætta útgáfu af Íslenskri samheitaorðabók.
Þá eigum við frábærar handbækur um málnotkun sem Jón Hilmar Jónsson hefur samið, svo sem
Stóru orðabókina um íslenska málnotkun, sem mörg stærri málsamfélög gætu öfundað okkur af!Með virktum,
Prof. emeritus Helgi Haraldsson”. Molaskrifari kanna Helga bestu þakkir fyrir þessa góðu sendingu:Aðalsteinn Hjelm skrifaði Molum ( 22.10.2012) og segir: Mig langar að koma með smá ábendingu varðandi tónlistar- og ráðstefnuhúsið Hörpu á hafnarbakkanum. Nú er mikið talað um hinar og þessar uppákomur í „Hörpunni“ í fjölmiðlum en eftir því sem ég best veit er formlegt nafn hússins án greinis og ætti því alltaf að mínu mati að vera ritað og borið þannig fram, a.m.k. í virtari fjölmiðlum.
Sem dæmi um þetta er þessi frétt hér á vefmiðlinum Vísi í dag: http://www.visir.is/klappad-og-stappad-i-horpunni/article/2012121029801 . En ég hef séð og heyrt flesta íslenska fjölmiðla tala um „Hörpuna“ með greini, þ.m.t. RÚV.
Hvaða skoðun hefur þú á málinu?
Með kveðju að norðan,Aðalsteinn S. Hjelm”
Molaskrifari þakkar Aðalsteini bréfið. Hann játar vera kannski ekki alltaf sjálfum sér samkvæmur með Hörpu án greinis og með greini. Húsið heitir Harpa. Molaskrifari leiðrétti góða vinkonu sem talaði um Hörpuna og hún sagði: ,,Heitir ekki fjallið Esja. Tölum við ekki alltaf um Esjuna? “ Þetta var eiginlega skák og mát. Betur get ég ekki svarað þessu. Mér finnst reyndar fallegra að tala um Hörpu frekar en Hörpuna.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1041
24. október 2012
Molum barst nýlega eftirfarandi bréf: ,,Ég hef lengi lesið pistlana þína um málfar og kann þér þakkir fyrir, góð áminning um vandað málfar. Mig langaði að senda þér póst um frétt sem birtist á www.ruv.is í gær (21/10) klukkan 23:25. Hún fjallaði um kosningaúrslit úr kjördæminu Reykjavík norður. Ég hef þrjár athugasemdir sem mig langaði að benda þér á, tvær efnislegar og eina formlegs eðlis:
Önnur málsgrein fréttarinnar hljóðar svo „Langflestir sögðu já við spurningu tvö, hvort í nýrri stjórnarskrá eigi náttúruauðlindir að vera þjóðareign, séu þær ekki þegar í einkaeign. Þetta vilja 18.425 í Reykjavík norður, 2.205 eru andvígir þessu. 1.912 stendur á sama, og merktu því ekki við þessa spurningu.“
Fimmta málsgrein er eftirfarandi „16.817 vilja rýmri reglur um persónukjör, 3.427 eru á móti því, 2.296 er sama.“Sem skattgreiðandi sem hefur ekkert val um hvort hann vilji styðja Ríkisútvarpið og sem stjórnmálafræðingur og almennur kjósandi get ég vart orða bundist um dónaskapinn sem mér finnst birtast í þessum tveim málsgreinum fréttarinnar. Að leyfa sér að segja að fólk sem skilar auðu sé sama um niðurstöðuna! Að taka ekki efnislega afstöðu getur þýtt að kjósandanum finnist spurningin ekki nógu skýr, að hann sé í sammála eða ósammála en getur ekki látið í ljós afstöðu án þess að vita hvernig útfærsla slíks ákvæðis yrði og enn fremur getur skýringin verið sú að kjósandinn getur verið ósáttur við ferlið sjálft. Hægt er að færa ýmis rök, með og á móti, fyrir því að skila auðu í kosningum en að setja alla sem það gera undir sama hatt og segja að þeim sé sama um niðurstöðuna er ekki fréttamennska á háu stigi.
Sú athugasemd mín sem er formlegs eðlis snýr að því að ekki var ákveðið að sýna hlutfallstölur í umfjöllun um hverja spurningu, ekki hefði það verið erfitt og það hefði gefið lesendum betra færi á að meta fréttina úr frá prósentutölum.
Hér læt ég hlekk á fréttina fylgja: http://www.ruv.is/frett/reykjavik-nordur-ja-vid-ollu
Með bestu kveðju
Sigurjón Skúlason, stjórnmálafræðingur. Molaskrifari þakkar Sigurjóni bréfið.Jóhanna gefur fimleikastúlkum fimm milljónir, sagði í fyrirsögn á visir.is (22.10.2012) Ekki var þetta nú hárnákvæmt. Forsætisráðherra afhenti fræknum fimleikastúlkum fimm milljón króna styrk, en féð kom af fjárlagalið sem nefndur er ráðstöfunarfé ríkisstjórnarinnar.
Lesandi spyr, – hvað ætli þessi fyrirsögn merki (Viðskiptablaðið 23.10.2012): Dregur á milli Obama og Romney. Það er ekki gott að segja. Líklega er átt við að munurinn á fylgi Obamas og Romneys fari minnkandi. Ekki góð fyrirsögn.
Ágætur Molalesandi sendi eftirfarandi undir fyrirsögninni: ,,Orðaleppur: Nú um stundir stígur fólk á Íslandi ótt og títt „til hliðar“. Þessi eða hin ákveður að „stíga til hliðar“. Er ekki einfaldara fyrir fólkið að hætta bara?
Þessi hliðarspor minna óþægilega mikið á enska orðatiltækið „step aside“ semþýðir að draga sig í hlé, hætta. Eða að víkja fyrir öðrum bæði í eiginlegri og yfirfærðri merkingu”. Að sjálfsögðu er einfaldara að hætta en taka hliðarspor og auðvitað kemur þetta beint úr enskunni.Molalesandi rakst á þetta á vef Heimssýnar, – andstæðinga ESB umsóknar og aðildar Íslands: ,, Hér ein óvenju svæsin fyrirsögn af vef Heimssýnar:
Um hvað átti að spyrja spurninguna?Sunnudagur, 21. október 2012
Stærsta spurningin var ekki spurðhttp://heimssyn.blog.is/blog/heimssyn/entry/1263916/
Molaskrifari þakkar sendinguna.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1040
23. október 2012
Í auglýsingu frá Umhverfisstjóra Garðabæjar í Garðapóstinum (18.10.2012) segir: … og þaðan í Selgjánna sem er stórmerkilegur minjastaður. Þarna ætti að standa: … og þaðan í Selgjána, ekki Selgjánna. Í sömu auglýsingu er talað um að gangan geti tekið um það bil 1,5 klukkustund. Óeðlilegt er að nota tugakerfið þegar talað er um tíma. Þarna hefði frekar átt að tala um eina og hálfa klukkustund. Hvað væru 1,6 klukkustundir ef notast væri við þetta kerfi? Þetta er því miður bara til þess að rugla fólk í ríminu.
Blaðamaðurinn BBl skrifar á visir.is (20.10.2012): Konan var stödd í N1 Kópavogi og lenti í röð á eftir konu sem var að versla sér Víkingalottómiða. Þá tók konan þá ákvörðun um að versla sér sinn fyrsta Víkingalottómiða og keypti sér tíu raða miða . Lagt er til að ritstjóri kenni blaðamanni sínum muninn á sögnunum að kaupa og versla.
Hvar er nú landafræðikunnáttan? Ágætur lesandi benti Molaskrifara á eftirfarandi á mbl.s (22.10.2012) Suður-Ameríkuríkið Panama vill taka upp evru jafnhliða Bandaríkjadal sem nú er helsti gjaldmiðill landsins. Síðast þegar til fréttist var Panama í Mið-Ameríku. http://www.mbl.is/vidskipti/frettir/2012/10/21/panama_vill_taka_upp_evru/
Hún var óneitanlega dálítið skondin ein spurningin á atkvæðaseðlinum á laugardaginn: Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda allsstaðar að af landinu vegi jafnt?. Hér hefði átt að spyrja: Vilt þú að í nýrri stjórnarskrá verði ákvæði um að atkvæði kjósenda allsstaðar á landinu vegi jafnt?
Þegar súlurit eru birt á skjánum í sjónvarpi verða fréttamenn/þáttastjórnendur að gæta þess að samræmi séu milli þeirra talna sem lesnar eru og þeirra talna sem birtast á skjánum. Þetta hefur verið nefnt hér áður. Misbrestur á þessu varð í Silfri Egils (21.10.2012) þegar talað var um kosningaþátttöku í atkvæðagreiðslunni um helgina. Á skjánum stóð 49,8% en talað var um 48,9%. Vandvirkni skiptir alltaf máli. Svo verður líka að hafa samræmi, ef menn velja þá leið að sleppa aukastaf og jafna tölur. Ekki segja að 15,7% sé 15% eða að 15,3% sé 16%. Langbest er að nota aukastafinn. Þá fer ekkert milli mála.
Molalesandi sendi eftirfarandi (21.10.2012)Þ ,,Skrítin fyrirsögn á dv.is: „Keypti peysu af Dorrit til styrktar fötluðum börnum.“ Síðan segir í fréttinni: Kona sem keypti peysu af Dorrit Moussaieff forsetafrú á uppboði til styrktar sumarbúðum fatlaðra barna, segir að gott sé að geta styrkt gott málefni á þennan hátt. Ekki skemmir heldur fyrir hversu glæsileg forsetafrúin er.
- Við lestur fréttarinnar kemur í ljós að konan keypti ekki peysu AF Dorrit, hún var ekki þarna að selja af sér peysu. Forsetafrúin gaf peysu til þessa góðgerða uppboðs… og á uppboðinu bauð konan í peysuna og eignaðist hana þannig. Fyrirsögn er tómt bull.” Molaskrifari þakkar sendinguna.Á laugardagskvöld (30.10.2012) naut Molaskrifari óperunnar Il trovatore í Hörpu. Hann telur að þorri tónleikagesta hafi verið í mun betra skapi en gagnrýnandi Morgunblaðsins sem fjallar um sýninguna í blaði dagsins (23.10.2012).
Molaskrifara varð á í messunni í gær er hann skrifaði um Stangaveiðifélag Reykjavíkur sem í fréttum Ríkisútvarps hafði bæði verið kallað Stangveiðifélag og Stangaveiðifélag. Taldi Molaskrifari fyrra nafnið rétt, en fór þar villur vegar. Dyggur Molalesandi sendi honum eftirfarandi: ,,Sæll, ágæti Eiður. Svo getur skýrum skjöplast! Félagið heitir einmitt Stangaveiðifélag Reykjavíkur en ekki Stangveiðifélag Reykjavíkur. Þetta varð mér afar vel kunnugt ungum vegna tengsla við félagið. Þetta kemur líka glögglega fram á vef félagsins, http://www.svfr.is/. Vinur er til vamms segir … Molaskrifari þakkar kærlega og leiðréttist þetta hér með.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- 461
- 462
- 463
- 464
- Næsta »
