-
Molar um málfar og miðla 1062
17. nóvember 2012
Það var verðskuldað og viðeigandi að veita Hannesi Péturssyni viðurkenningu á degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Sagt var frá verðlaununum í fréttum Ríkissjónvarps, en hvorki í fréttum Stöðvar tvö né í sex fréttum útvarpsins. Hannes er okkar höfuðskáld, einna mestur orðsins snillingur þeirra sem nú eru á dögum. Og þessu til viðbótar skrifar hann svo fínar greinar um forsetann okkar að það verður vart betur gert. Ekki er hinsvegar víst að þessi verðlaunaveiting hafi vakið sérstaka gleði á Bessastöðum. Það er reyndar allsendis óvíst. Til hamingju Hannes Pétursson.
Í fréttum Stöðvar tvö (14.11.2012) var rætt um framkvæmdir á húsnæðinu, sem ekki hafa verið gerðar. Við þetta gerir Molaskrifari tvær athugasemdir. Eðlilegra væri að tala um framkvæmdir við húsnæði eða breytingar á húsnæði. Svo getur það tæplega talist vandað mál að tala um að gera framkvæmdir. Betra væri að tala um að ráðast í framkvæmdir.
Í þessum sama fréttatíma Stöðvar tvö var fjallað um hjúkrunarheimilið Eir sem mjög hefur komið við sögu í fréttum að undanförnu. Þar var sagt: … til að fyrirbyggja að íbúar og aðstandendur þeirra verði ekki fyrir fjárhagstjóni. Hér er orðinu ekki ofaukið,. Hér hefði átt að segja … til að fyrirbyggja að íbúar og aðstandendur þeirra yrðu fyrir fjárhagstjóni.Hópi sveitarstjórnarmanna var í dag kynnt ný drög … var sagt í fréttum Ríkisjónvarps (14.11.2012). Molaskrifari er á því að hér hefði átt að segja: Hópi sveitarstjórnarmanna voru í dag kynnt ný drög …
Volvo skapar eftirtekt, segir í auglýsingu Brimborgar. Við tölum almennt ekki um að skapa eftirtekt. Við tölum um að vekja eftirtekt. Volvo vekur eftirtekt væri miklu betra slagorð í auglýsingum. Meira um bílaauglýsingar. Í auglýsingu frá Heklu (15.11.2012) er talað um að skreppa vestur á Ólafsvík. Á tilteknu skeiði ævinnar átti Molaskrifari oft erindi vestur í Ólafsvík og minnist þess aldrei að hafa heyrt talað um að fara vestur á Ólafsvík.
Valbjörn Júlíus segist lesa Molana á hverjum degi og oft skemmta sér vel. Hann sendi eftirfarandi (15.11.2012):
,,Nokkrum sinnum á ári, er auglýst miðnæturopnun í Smáralind.
Ef þú lest orðið miðnæturopnun, hvort myndir þú telja að opna ætti á miðnætti eða loka? Hurðum Smáralindar verður nefnilega skellt í lás á miðnætti, sem ég myndi frekar auglýsa sem Miðnæturlokun“. Þetta er réttmæt ábending. Molaskrifari þakkar sendinguna.Alltaf lærir maður eitthvað nýtt. Í frétt um Eirarmál á mbl.is (15.11.2012) er notað orðið örlætisgerningur. Það mikið diplómatí eins og þar stendur, að taka svona til orða. ,,Ríkisendurskoðun telur gjafabréf sem Sigurður Helgi Guðmundsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Eirar, lét Eir greiða vera örlætisgerning”. Var ekki framkvæmdastjórinn að hygla ættmenni sínu?
Skráningum lokar á miðnætti, segir ráðherra í fésbókarfærslu (14.11.2012). Að skaðlausu hefði mátt orða þetta betur: Skráningu lýkur á miðnætti, hefði verið ágætt orðalag.
Og að lokum: enn um sögnina að ónýtast. Sigurjón skrifar (15.11.2012): „Í sumum svæðum heilans þurfa hátt í 20% heilasella að ónýtast áður en einkennin koma fram.“
Þetta er ansi nálægt tungutaki í sjálfri Njálu ef ég man rétt” Sjálfsagt er þetta rétt hjá þér og bréfritari sem gagnrýndi þetta orðalag hefur haft Ólaf Kjaran fyrir rangri sök.Tilraun Kastljóssins með svokallaðar Hraðfréttir mistókst. Það á ekki að fleygja fé í svona fíflagang. Fyrir utan það að þetta á ekkert erindi í fréttaskýringaþátt.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1061
16. nóvember 2012
Til hamingju með dag íslenskrar tungu,16. nóvember, ágætu Molalesendur, en höfum jafnan hugfast að allir dagar eru dagar íslenskrar tungu.
Björn Gunnlaugsson vísar á þennan tengil í tilefni dagsins: http://www.menntamalaraduneyti.is/frettir/forsidugreinar/nr/7226
Og segir: ,,Sæll Eiður, mig langar að vekja athygli þína á hlekk sem finna á á vef menntamálaráðuneytisins, þar sem sagt er frá ýmiskonar dagskrá í tilefni af degi íslenskrar tungu. Það er nefnilega hægt að smella á hlekkinn til að fræðast nánar um „dagskránna“.
Mér er spurn hvort íslensk málnefnd sé svo önnum kafin við dómsdagsspár um að tölvutækni muni útrýma íslensku, að hún geti ekki fylgst með því að ráðuneytisstarfsmenn kunni helstu stafsetningarreglur?”Sigmundi Erni vantaði 18 atkvæði, segir í fyrirsögn á pressan.is (13.11.2012). Honum vantaði sem sé atkvæði að sögn pressunnar! Þágufallssýkin er öll að færast í aukana. Vísað er í frétt á Vikudegi sama dag, en þar er þetta hinsvegar rétt. Pressuskrifara tókst að búa til villu með því að vitna rangt í það sem var rétt.
Halldór Skúlason sendi þessar línur (13.11.2012): ,,Sæll Eiður og hafðu bestu þakkir fyrir pistlana þína. Fjölmiðlar standa í þakkarskuld við þig fyrir þá málfarshjálp í viðlögum sem þú veitir þeim á hverjum degi. Þó grunar mig að fáir þeirra geri sér grein fyrir skuldinni og enn færri hirði um að greiða hana. Erindið var annars að gera örlitla athugasemd við pistil dagsins, þann eitt þúsund fimmtugasta og áttunda. Þar er gerð athugasemd við orðalagið „Eitt landsins mesta úrval“ í auglýsingu húsgagnahönnuðar og þú bendir á að betur færi á að segja „Landsins mesta úrval“, án fyrirvarans. Því er ég sammála. Þarna eru það þó að öllum líkindum 6. og 7. grein laga nr.57/2005 sem knýja húsgagnahönnuðinn til að setja fyrirvarann. Samkvæmt þeim er óheimilt: „að nota í auglýsingum lýsingarorð í efsta stigi nema unnt sé á einfaldan hátt að færa sönnur á fullyrðinguna“. Það er líkast til ekki hlaupið að því að færa, með einföldum hætti, sönnur á svona fullyrðingu. Sem dæmi um það má nefna stjórnmálaflokk sem í síðustu bæjarstjórnakosningum auðkenndi sig með efsta stigi lýsingarorðsins góður. Nú, rúmum tveimur árum síðar, hefur fulltrúum þess flokks enn ekki auðnast að færa sönnur á fullyrðinguna. Í það minnsta ekki með einföldum hætti. Kannski skjóta þau orðinu „Einn“ fyrir framan nafnið sitt í næstu kosningum. Það væri hressileg hreinskilni þó slagkraftur nafnsins yrði óneitanlega minni.” Molaskrifari þakkar Halldóri bréfið.
Feikaðu heimsborgarann í þér, segir í fyrirsögn Séð og heyrt deildar Morgunblaðsins, Smartlandi (14.11.2012). Ekki að spyrja að því. Alltaf til einstakrar fyrirmyndar um málfar. Svo benti Sigurjón á eftirfarandi (14.11.2012) úr þessum sama Séð og heyrt dálki Morgunblaðsins: ,,Getur verið að fjölmiðlafólk sé almennt farið að ruglast á merkingu orðanna „hús“ og „heimili“?
Sá á mbl.is fyrirsögina: „Gamla heimili Steinunnar Ólínu fæst á 89 milljónir“. Fjölmörg dæmi eru um þessa sömu villu síðustu vikur.
Heimili voru áður leyst upp og þótti ægilegt. En heimili eru ekki seld, heldur hús. Sala á heilu heimili gæti bent til þrælahalds.
Í amerísku er húsum og heimilum hins vegar oft slegið saman og talað um „home“ um bæði hús og heimili” Sjá: http://www.mbl.is/smartland/heimili/2012/11/14/gamla_heimili_steinunnar_linu_faest_a_89_milljonir/ Allt er þetta rétt, Sigurjón, og hefur raunar verið drepið á þetta áður í Molum.
Molavin segir um þetta sama mál: Enn eru heimili til sölu á Smartlandi Moggans. http://www.mbl.is/smartland/heimili/2012/11/14/gamla_heimili_steinunnar_linu_faest_a_89_milljonir/
Þótt húsið sé selt hlýtur að vera sárt að láta af hendi alla sína persónulegu muni; það sem skapar heimili fólks”. Molaskrifari þakkar þarfar ábendingar.Góður smekkur og góð dómgreind voru í öndvegi í upphafi dags íslenskrar tungu (16.11.2012) á Rás tvö í Ríkisútvarpinu. Þar hófst dagurinn með vikuskammtinum frá slúðurfréttaritara (nafngiftin er frá Rás tvö komin) Ríkisútvarpsins á Kyrrhafsströnd Bandaríkjanna. Þar var okkur sagt aðíslenska orðið orðræða, væri orðskrípi, Repúblikanar væru vondir taparar, (e. bad losers), tapsárir, Petraeus væri hershöfðingi sem væri meira en að vera aðmíráll! Aðmírálar eru í flotanum en hershöfðingjar í landher og flugher og að Petraeus þyrfti ekki að mæta og bera vitni fyrir Alþingi! Síðast þegar vitað var , var Alþingi enn að störfum við Austurvöll og ekki búið að flytja það vestur um haf. Ekki er vitað til að ætlunin hafi verið að kalla herforingjann fyrir íslenska þingnefnd. Í veröldinni er aðeins eitt Alþingi og það er þjóðþing okkar Íslendinga. Hvenær ætlar Ríkisútvarpið að sýna okkur að það hafi þá dómgreind og smekkvísi til að bera til að hætta að útvarpa þessu endemisrugli?
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1060
15. nóvember 2012
Molavin sendi þetta (12.11.2012): http://www.dv.is/frettir/2012/11/10/greina-alzheimers-med-aratuga-fyrirvara/
Í þessari grein stendur:,,Í sumum svæðum heilans þurfa hátt í 20% heilasella að ónýtast áður en einkennin koma fram.“ Ég hef aldrei heyrt þetta orðasamband áður. Að ónýtast? Ólafur Kjaran virðist hafa misstigið sig þarna. Molaskrifari þykist nú reyndar hafa heyrt þetta áður og er ekki viss um að skrifarinn hafi misstigið sig, – alla vega ekki alvarlega.Í tölvupósti sem Molaskrifari fékk er auglýsing frá símafyrirtækinu Tali, en þar segir: Ljósnetið er á appelsínugulu verði hjá Tali. Molaskrifari játar að hann er engu nær. Hvað í veröldinni er appelsínugult verð? Þetta er eiginlega bara bull.
Í Morgunblaðinu (13.11.2012) stendur: Suzuki þarf að taka lán fyrir 45 milljónum dala eða 5,75 milljörðum króna vegna greiðslu …. Hér hefði verið betra að segja: Suzuki þarf að taka lán að upphæð 45 milljónir dala eða 5,75 milljarða króna …
Valur spyr (13.11.2012): http://www.mbl.is/folk/frettir/2012/11/12/djupid_verdur_synt_i_bandarikjunum/
“Hefði ekki verið réttara að segja hér: Djúpið verður sýnd í Bandaríkjunum.
þar sem verið er að tala um að kvikmyndin verði sýnd.” Jú, segir Molaskrifari, en sjálfsagt hafa ýmsir aðrar skoðanir á því.Í morgunþætti Rásar tvö (13.11.2012) sagði einn umsjónarmanna að það væri laumuleg hálka! Félagi hans leiðrétti hann og sagði lúmsk hálka sem er gott og gilt. Það var launhált.
Af mbl.is (14.11.2012): Færeyska-íslenska viðskiptaráðið var stofnað síðasta laugardag í Þórshöfn í Færeyjum. Þarft og gott framtak, – en vonandi var þetta ágæta ráð ekki stofnað síðasta laugardag heldur á laugardaginn var.
Á döfinni eru forystuskipti í Kína, mannflesta ríki veraldar og einu því voldugasta. Þessi skipti fara fram með tíu ára millibili. Hvað hefur Ríkissjónvarpið gert til að fræða okkur um þetta og setja þessa atburði í samhengi við það sem er að gerast í Asíu og í veröldinni? Ég minnist þess ekki að hafa séð neitt um þetta. Kannski hefur það farið framhjá mér. En hafi Ríkissjónvarpið ekkert sinnt þessu, eins og mig grunar, þá er það að bregðast hlutverki sínu. Það hefur meiri skyldur við þjóðina í skjóli einkaréttar til innheimtu nefskatts en að sýna okkur ódýrt amerískt afþreyingarefni daginn út og daginn inn. Eiginlega hefur Fréttablaðið gert betur í þessum efnum, – sjá t.d. ágæta grein Jón Orms Halldórssonar dósents í blaðinu í dag (15.11.2012).
Lögmaður talaði um að vera með kæru yfir höfðinu í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (13.11.2012) ! Talað er að eiga eitthvað yfir höfði sér, eiga eitthvað miður gott í vændum. Hafa lesendur annars tekið eftir því að það eru yfirleitt sömu lögmennirnir sem aftur og aftur koma fram í fréttum Ríkisútvarpsins?Tvær athyglisverðar fréttir úr fjölmiðlum í fyrradag (13.11.2012). Ríkisútvarpið sagði frá uppnámi á stærsta asnamarkaði Afríku ! http://www.ruv.is/frett/uppnam-a-asnamarkadi Séð og heyrt deild mbl.is sagði frá konu sem gerir svokallaðar rassaæfingar reglulega! http://www.mbl.is/smartland/heilsa/2012/11/13/gerir_rassaefingarnar_reglulega/
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1059
14. nóvember 2012
Þórhallur Birgir Jósepsson (12.11.2012) skrifar: ,,Öðru hverju gerast mikil undur í málvenjum blaðamanna. Einhver orð eða orðatiltæki ryðja sér til rúms, án þess nokkur skynsamleg skýring sé á. Dæmi um það er einstaklingurinn. Nú er hann að verða allsráðandi í frásögnum eins og hér af vef Viðskiptablaðsins: „Tveir aðrir einstaklingar hafa gefið kost á sér í annað sætið …“ Ætla mætti að þarna þurfi í frásögninni að taka skýrt fram að einstaklingar gefi kost á sér í prófkjörinu, en ekki pör eða hópar. Eða hvað? Þessi árátta nær líka yfir fréttir af slysum, afbrotum, eiginlega öllu því sem varðar arthafnir manna. Í dæminu hér að framan hefði auðvitað verið réttara, betra og eðlilegra að segja „Tveir aðrir hafa gefið kost á sér í annað sætið …“ Þetta er hárrétt. Skrifari þakkar ábendinguna.
Lesandi benti Molaskrifara á að í pistli á baksíðu Fréttablaðsins (12.11.2012) heldur sá sem skrifar, að fólk sem er á milli þrítugs og fertugs sé á þrítugsaldri. Þetta er rangt. Samkvæmt íslenskri málvenju er þetta á annan veg,- fólk sem er milli þrítugs og fertugs er á fertugsaldri. Þessu er öfugt farið í ensku þar er sagt um fólk sem orðið er þrítugt en ekki fertugt að það sé in their thirties. Sumir segja að þetta sé meiri kurteisi en hjá okkur ! Sama á við um ártöl. Það sem gerðist á milli 1930 og 1940 segjum við að hafi gerst á fjórða áratugnum. Í enskumælandi löndum er notað orðalagið in the thirties. Líklega gætir þarna áhrifa frá ensku hjá þeim sem skrifaði þetta í Fréttablaðið.
Góð umfjöllun hjá Helga Seljan um Grímsstaðamálið og Huang Nubo í Kastljósi (13.11.2012). Enn styrktist sú tilfinning Molaskrifara að þarna séu sveitarfélögin að láta draga sig á asnaeyrunum. Þetta mál er ótrúverðugt frá upphafi til enda. Huang Nubo rekur ferðaþjónustu í skjóli flokksins í Kína. Hann auðgaðist í skjóli flokksins í Kína. Ekkert hefur orðið úr áformum hans utan Kína. Óvenju gott Kastljós á heildina litið.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (12.11.2012) var talað um atvinnuleitendur sem lentu á framfærslu ríkisins. Eðlilegra hefði ef til vill verið að tala um atvinnuleitendendur sem lentu á framfæri , ekki framfærslu, ríkisins.
Í fréttum Stöðvar tvö (12.11.2012) var sagt að skriðdrekar hefðu skotið til baka. Ef til villæ hefði verið eðlilegra að segja að skriðdrekarnir hefðu svarað skothríðinni.
Að minnsta kosti fjórum sinni kom skilti á skjáinn í Kastljósi (12.11.202) með grunnskólavillu. Þar stóð: Faðir annarar stúlkunnar. Átti að vera: Faðir annarrar stúlkunnar. Í sama þætti var ítrekað talað um ullarþelið. Bóndinn talaði hinsvegar um þelið. Á sínum tíma lærði maður um tog og þel. Ekki ullarþel.
Þarf Ríkissjónvarpið að sýna okkur Dans, dans, dans, fjórum eða fimm sinnum í viku? Það er erfitt að botna í því hvaða sjónarmið ráða í Efstaleiti við samsetningu dagskrár.
Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (13.11.2012) var talað um kynlífshneyksli hershöfðingja í Bandaríkjunum. Var ekki verið að tala um það sem kallað hefur verið framhjáhald á íslensku? En kannski er í lagi að kalla framhjáhald hneyksli? Og auðvitað er framhjáhald kynlíf!
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1058
13. nóvember 2012
Þeim vantar græna orku, sagði sveitarstjóri fyrir norðan , sem vill fá gagnaver í sína sveit. Ummælin féllu í viðtali í hádegisfréttum Ríkisútvarps (10.11.12) Er orrustan töpuð?
- þá hefur verið mjög rík krafa í samfélaginu undanfarin ár um beinara lýðræði og persónukjör, skrifar bloggari. (10.11.12) Hann á við beinna lýðræði. Ekki beinara.
Lögreglu höfuðborgarsvæðisins var á þriðja tímanum í nótt tilkynnt um mann sem ætlaði að henda sér í sjóinn af Reykjavíkurhöfn. (mbl.is 11.1..2012) Hvernig henda menn sér í sjóinn af Reykjavíkurhöfn?
Alla vörur í búðinni , auglýsir Dressmann í sjónvarpinu. Hvar var prófarkalesarinn? Sá enginn þetta á auglýsingastofunni eða auglýsingadeild Ríkissjónvarpsins? Það var verið að fjalla um allar vörur í búðinni. Í skjátilkynningu skiptir Ríkissjónvarpið orðinu björgunarsveitirnar svona milli lína: Björgunarsv eitirnar. Hvar var prófarkalesarinn er enn spurt ?
Í íþróttafréttum Ríkissjónvarps (11.11.2012) spurði íþróttafréttamaður viðmælanda sinn hvort tiltekið atriði mundi nýtast þeim reynslulega séð ! Allt er nú orðið óskaplega – lega. Og svo var að venju talað um þá sem taka þátt á mótinu. Íslensk málvenja er að taka þátt í móti. Keppa á móti. Taka þátt í móti.
Alþjóðabadmintonmótið Iceland International lauk í dag, var sagt í fréttum Stöðvar tvö (11.11.2012). Mótið lauk ekki. Mótinu lauk. Það ætti ekki að vera mönnum ofviða að hafa þetta einfalda atriði rétt.
Í fréttum Stöðvar tvö (11.11.2012) talaði alþingismaður um ungt fólk af báðum kynum. Átti að vera af báðum kynjum.
Lesandi benti Molaskrifara á eftirfarandi: ,,Húsgagnahönnuður endar auglýsingar sínar á orðunum: Eitt landsins mesta úrval. Hvað segirðu við þessu?” Þetta hefði mátt orða betur og segja bara: Landsins mesta úrval. Orðinu eitt er ofaukið.
Orðið pírati er ekki nýyrði yfir sjóræningja eins og fréttamaður Stöðvar tvö sagði (11.11.2012) Það er enskusletta. Sjóræningi á ensku er pirate. Pírati er ekki nýyrði.
Þið takið áskoranir , sagði dómari í þættinum Dans,dans, dans í Ríkissjónvarpinu (10.11.12). Molaskrifari játar að hann skilur ekki alveg við hvað er átt með þessu orðalagi. Kynnirinn í þættinum sagði okkur frá danshópi sem væri nýkominn heim frá ellei. Hversvegna ekki tala íslensku við okkur? Ellei er ensk skammstöfun, enskt slangur um heiti borgarinnar Los Angeles í Kaliforníu.. En þetta eru líklega bara smáangar af menningarstefnu Ríkissjónvarpsins sem kristallast í því innræta ungu fólki að fátt skipti meira máli í lífinu en dans og popptónlist. Það skortir aldrei fé til dagskrárgerðar þegar um slíkt efni er að ræða. Forgangsröðunin er skýr.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- Næsta »
