-
Molar um málfar og miðla 1084
13. desember 2012
Úr Víðsjá Ríkisútvarpsins (10.12.2012): … taldi sig eiga kröfu til þriggja verðlauna. Hér hefði verið betra að segja: … taldi sig eiga kröfu til þrennra verðlauna. Þetta svo sem verið nefnt hér áður. Oft.
Fréttir af fólki sem málar pony-hesta, segir á Smartlandi á mbl.is (11.12.2012). Ný dýrategund hefur verið uppgötvuð á Smartlandi, pony-hestar. Ekki að spyrja að þeim.
Tölvukerfi Landspítalans datt út og lá niðri í um sólarhring …. var sagt í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (11.12.2012). Það hefur verið mikið fall. Kerfið bilaði og var óvirkt í sólarhring.
Verður Gísli uppseldur? Þannig er spurt á mbl.is (11.12.2012) og átt er við hvort bókin um Gísla á Uppsölum muni seljast upp fyrir jólin. Kannski hefði verið eðlilegra að spyrja: Selst bókin um Gísla upp? Selst Gísli upp?
Lesandi leggur út af frétt um verðhrun á bensíni í Bandaríkjunum á mbl.is (11.12.2012) http://www.mbl.is/frettir/erlent/2012/12/10/verdhrun_a_bensini_i_bandarikjunum/ og segir síðan: ,,Það er eitthvað bogið við þessa stærðfræði. Þegar ég var í skóla hefðu 489 kr fyrir $3,38 svarað til 14,47 kr fyrir 10 cent og 25 kr fyrir 10 c svarað til 845 kr fyrir $3,38 Síðan er opinbert gengi $1=126,57 kr sem gerir 428 kr fyrir $3,38 og 12,66 kr fyrir 10 c. Enn önnur saga er hvernig aukastafir eru afmarkaðir með „,“ hérlendis, en með „.“ vestra og í Mbl.“ Molaskrifari er máladeildarstúdent og hættir sér ekki frekar út í þessa umræðu, en þakkar sendinguna.
Annar lesandi bendir á þessa frétt á mbl.is (11.12.2012) http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/12/11/endurheimta_naer_alla_upphaedina/. Hann segir: ,,Hvernig skyldi þessu vera farið?? Eiga blaðamenn Mbl. ekki orðabækur, eða duga þær ekki til? Það sem í Bretlandi heitir Building Society hefur verið nefnt ,,sparisjóður“ hér á landi, en ekki byggingafélag. “ Þetta er rétt ábending. Og hér er það sem Wikipedia segir um málið: http://en.wikipedia.org/wiki/Building_society
Sumir fréttamenn hefðu gott af svolítilli leiðsögn um það hvers eigi að spyrja í viðtölum. Fréttamaður Ríkissjónvarps spurði formann Bændasamtakanna hvort svona mál (sóðaskapurinn í fjósinu á Brúarreykjum) væru slæm fyrir ímynd bændastéttarinnar á Íslandi? Þarf að spyrja að því hvort myndir úr fjósi þar sem kýrnar standa í mykju upp á miðja leggi séu slæmar fyrir ímynd bænda? Nei. Það þarf ekki að spyrja að því. Svo var það ekki Matvælastofnun sem tók myndirnar. Starfsmaður Matvælastofnunar tók myndirnar. Myndirnar voru frá Matvælastofnun.
Heimildamyndin úr flokknum Hversvegna fátækt? sem Ríkissjónvarpið sýndi i gærkvöldi (12.12.2012) var um margt athyglisverð en hún fjallaði ekki nema að litlu leyti um fátækt. Myndin var aðallega um auð og auðkýfinga, misskiptingu auðs og eigna í Bandaríkjunum viðvarandi skattleysi auðmanna, fjármögnun bandarískra stjórnmála og hvernig milljarðamæringar kaupa sér áhrif hjá stjórnmálamönnum. Vonandi hafa einhverjir íslenskir stjórnmálamenn sem þegið hafa milljónir á milljónir ofan frá íslenskum auðmönnum og alltaf sagt að engin skilyrði fylgdu milljónunum horft á þetta ! Dálítið fyndið að sjá einn af ríkustu mönnum heims í kjólfötum sem pössuðu honum svo hörmulega illa að þau gætu hafa verið frá þriðja flokks fataleigu. Í íslenskum texta var sagt að Lewis F. Powell jr. hefði verið ráðinn til hæstaréttar! Nixon skipaði hann dómara við hæstarétt Bandaríkjanna 1971. Í textanum orkaði líka tvímælis að tala um töp tiltekins banka þótt á enskunni væri talað um losses. Fróðleg mynd um margt, en aðeins að litlu leyti um fátækt.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Fjögurra akreina friðlýsing Gálgahrauns
12. desember 2012
Þessi grein mín birtist í Morgunblaðinu í dag , 12.12.2012:
Fjögurra akreina friðlýsing Gálgahrauns,,Víst er Gálgahraunið friðlýst”, er fyrirsögn á grein eftir formann bæjarráðs Garðabæjar, Erling Ásgeirsson í Morgunblaðinu 5. desember síðastliðinn. Við þetta má bæta: Gálgahraun er svo rækilega friðlýst að meirihluti bæjarstjórnar Garðabæjar ráðgerir að leggja fjögurra akreina hraðbraut eftir hrauninu endilöngu með tilheyrandi umferðarmannvirkjum, slaufum og göngustígum. Það er nú meiri friðlýsingin.
Undirritaður leyfir sér að efast um að formaður bæjarráðsins hefði skrifað þessa grein, ef hann hefði átt þess kost, eða kært sig um að sækja borgarafundinn sem Hraunavinir efndu til í safnaðarheimili Vídalínskirkju 29. nóvember síðastliðinn. Þar var húsfyllir, en formaður bæjarráðs var ekki meðal fundargesta. Því miður. Í fróðlegum erindum á fundinum, sem var fyrst og fremst fræðslufundur komu fram sterk og yfirgnæfandi rök gegn fyrirhuguðum skemmdarverkum bæjarstjórnarmeirihluta Garðabæjar í Gálgahrauni.
Það er heldur dapurlegt og lítið traustvekjandi að einn helsti trúnaðarmaður íbúanna í Garðabæ skuli grípa til ósanninda í Morgunblaðsgrein sinni. Það er ekki góður málstaður sem þarf á slíkum málflutningi að halda. Formaðurinn segir að það sé krafa Hraunavina að jarðgöng tengi Álftanes við þjóðvegakerfi landsins. Þetta er ósatt. Hraunavinir hafa aldrei sett þá kröfu fram. Sumir hafa sagt að á stuttum kafla mætti leggja veginn í stokk í núverandi vegstæði. Stokkur er ekki jarðgöng. Hraunavinir hafa bent á aðrar leiðir sem vel eru færar, en aldrei voru kannaðar. Úrbætur á núverandi vegi, svokölluð ,,núll lausn” var aldrei skoðuð. Lögum samkvæmt átti að gera það. Hvaða tilgangi á það að þjóna að fara með rangt mál í umræðunni um þetta mikilvæga mál? Það hafa komið fram raunhæfar hugmyndir um aðra kosti en að eyðilegga menningarminjar og söguminjar í hrauninu. Annaðhvort er hér talað gegn betri vitund eða að greinarhöfundur hefur alls ekki fylgst með umræðunni. Ég hygg að fremur eigi það síðarnefnda við. Hann hafi bara ekki fylgst vel með og sé sögulegum staðreyndum ekki nógu vel kunnugur.
Hér á höfuðborgarsvæðinu er stórkostlegt umhverfisslys í uppsiglingu ef áform bæjarstjórnarmeirihlutans í Garðabæ ná fram að ganga. Þessi meirihluti hefur verið lengi við völd. Sagt er að allt vald spilli og algjört vald gjörspilli. Þegar lengi, lengi hefur verið setið á valda- og stjórnarstólum trosna tengslin við þá sem stjórnað er. Það er næstum eins og menn haldi að þeir eigi þetta og geti ráðskast með það að vild. Bæjarstjórnarmeirihlutinn gerir sér sennilega enga grein fyrir því hve mikill þungi og hve mikil alvara er í andstöðu bæjarbúa við þessa fyrirhuguðu vegagerð. Það kom vel í ljós á borgarafundi Hraunavina. Nútímasjónarmið um menningarverðmæti og gildi sögunnar fyrir komandi kynslóðir hafa ekki náð eyrum bæjarstjórnarmeirihlutans í Garðabæ. Og það er eins og augu þeirra sjái ekki fegurðina í hrauninu.
Ef heilbrigð skynsemi verður borin ofurliði af fámennum hópi sveitarstjórnarmanna verður það ekki bara áfall fyrir náttúruvernd á höfuðborgarsvæðinu heldur um Ísland allt. Þetta eru verðmæti á heimsvísu sem okkur ber skylda til að standa vörð um vegna allra þeirra sem á eftir okkur koma.
Sameining sveitarfélaganna Garðabæjar og Álftaness um næstu áramót er brýn og næg ástæða til að endurskoða skipulagsmál hins nýja sveitarfélags í heild og þar með hin vondu áform um skemmdarverk í Gálgahrauni. Það leiðir eiginlega af sjálfu að sameiningin kallar á endurskoðun heildarskiplags alls svæðisins.
Hlífum þessari einstæðu perlu. Finnum aðra lausn í vegamálum. Það er vel hægt , ef menn vilja. Það á hinsvegar ekki að tala um að Gálgahraun sé friðað og ætla samtímis að leggja fjögurra akreina hraðbraut eftir hrauninu endilöngu.
Slíkt blekkingatal er með öllu óboðlegt.Eiður Svanberg Guðnason
Höfundur er fyrrverandi umhverfisráðherra
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1083
12. desember 2012
Úr frétt á mbl.is (09.12.2012): Ekki liggur fyrir hvort eftirmálar verða af þessu athæfi mannsins. Hér er ruglað saman orðunum eftirmál og eftirmáli. Eftirmáli er sérstakur kafli í lok bókar, stundum skýring eða skilaboð frá höfundi. Eftirmál eru hinsvegar eftirköst, afleiðingar eða rekistefna. – Engin eftirmál urðu af stórorðum fullyrðingum höfundar í eftirmála bókarinnar.
Í frétt á vef Ríkisútvarpssins (09.12.2012) um sóðaskap í fjósi á bænum Brúarreykjum var bærinn ýmist nefndur sínu rétta nafni eða kallaður Brúnareykir. Sitt á hvað. Á sama fréttavef okkar ágæta Ríkisútvarps var daginn áður fjallað um launamál hjúkrunarfræðinga. Þar var sagt að nemar í sjúkraþjálfun í Háskóla Íslands hefði lýst eindrægnum stuðningi við launakröfur hjúkrunafræðinga. Þá mátti skilja á frétt um greiningu á svokölluðum GINI-stuðli gistinátta (09.12.2012) að Vestfirðir, eða Vestfjarðakjálkinn, væri austan til á landinu. Allar þessar fréttir hefði þurft að lesa yfir og lagfæra áður en þær voru birtar. Einhverjir brestir eru í skipulagi vinnunnar á fréttastofu Ríkisútvarpsins.
Undarlegheit í frétt á dv.is (09.12.2012): Verktakar gera ráð fyrir að nýja borgin rúmi tæplega fjórar milljónir manna þegar verkefninu lýkur … Þar að auki sé alls engin eftirspurn eftir tæplega fjórum milljónum nýrra íbúða. Einn íbúi á íbúð? Varla getur það nú verið. Ekki mikið hugsað við þessi skrif.
Fyrirsögn í Fréttablaðinu (10.12.2012): Kýrnar í saur upp á miðja leggi. Molaskrifari minnist þess ekki að hafa áður heyrt talað um saur í sambandi við kýr , heldur kúaskít eða kúamykju. Kýrnar stóðu í mykju upp á miðja leggi, – þannig að þær voru eiginlega í djúpum skít eins og sagt er með tilvísun í enskt orðalag. Það virðist reyndar einnig eiga við um forystumenn mjólkuriðnaðarins sem vöknuðu upp við vondan draum þegar málið komst í hámæli í fjölmiðlum.
Í fréttum Stöðvar tvö (09.12.2012) var talað um að gera gangskör að málefnum aldraðra. Vel má vera að þetta orðalag sé gott og gilt. Molaskrifari hefði sagt: Gera gangskör að úrbótum í málefnum aldraðra.
í fréttum Stöðvar tvö (10.12.2012) var sagt: … vera í forystu fyrir friðarumleitanir. Molaskrifari er á því að betra hefi verið að tala um að vera í forystu fyrir friðarumleitunum.
Góð úttekt Helga Seljans í Kastljósi (11.12.2012) á hinu undarlega einokunarfyrirtæki Já þar sem eigendur tóku sér 250 milljón króna arð í fyrra fyrir að gefa upplýsingar um símanúmer. Ýmsar spurningar hljóta að vakna um hvernig staðið var að sölu fyrirtækisins. Þessi þjónusta ætti að vera innifalin í gjaldinu sem við greiðum fyrir afnot af síma. Hún er þess eðlis að hún getur ekki verið dýr. Enn eitt dæmið um hvernig okrað er á okkur símnotendum.
Ákaflega misjafnt er hvað telst við hæfi þegar kemur að því að tíunda afrek ,,séð og heyrt” fólksins. Í dálki á baksíðu Fréttablaðsins (10.12.2012) er greint því að nafngreindur poppsöngvari hafi fengið svolítið glerbrot í hælinn er hann steig á brot úr jólaskrauti heima hjá sér. Svo segir: ,, … þurfti hann að haltra á læknavaktina þar sem hlúð var að honum”. Það vantað bara að sagt væri að hann væri nú úr allri lífshættu og líðan hans stöðug eins og fréttaskrifarar segja svo oft. Hvernig kemst svona lagað á prent? Líklega hringir viðkomandi í vin sinn á fjölmiðlinum og segir: Heyrðu, – ég steig á glerbrot ……
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1082
11. desember 2012
Fréttamenn eiga að nefna fólk fullu nafni þegar það kemur við sögu í fréttum. Ekki segja Eygló Harðar eins og gert var í hádegisfréttum á laugardegi (08.12.2012) heldur Eygló Harðardóttir. Í sama fréttatíma var sagt frá umræðum á Alþingi og sagt að ráðherra hefði mælt með frumvarpi. Ráðherra mælti fyrir frumvarpi við fyrstu umræðu þess og kynnti efni þess. Hann mælti að sjálfsögðu með því að frumvarpið yrði samþykkt.
Auglýsingadeild Ríkissjónvarpsins þarf að ráða prófarkalesara. Hið snarasta. Þá hættum við að sjá villur í skjáauglýsingum eins og … í íþróttavöruverslunum landssins. Auglýsingar á föstudagskvöld (07.12.2012)
Breskur hjúkrunarfræðingur réði sér bana eftir að hafa orðið fórnarlamb ósmekklegs símahrekks ástralskar útvarpsstöðvar. Fulltrúi eigenda stöðvarinnar hefur komið í sjónvarpi um víða veröld og sagt að ekki hafi neinar verklagsreglur verið brotnar. Það eru undarlegar verklagsreglur þar sem starfsmönnum útvarpsstöðvar leyfist að ljúga og villa sér heimildir! Þarna voru að verki dómgreindarlausir, sjálfumglaðir útvarpskjánar. Þekkt fyrirbæri.
Þrátt fyrir … tókst heimakonum ekki að stela sigri var sagt í íþróttafréttum Ríkisjónvarps ((08.12.2012). Hvernig er sigri stolið? Er stolinn sigur ekki illa fenginn sigur? Eins og annað þýfi. Við hvað er átt þegar talað er um að stela sigri?
Það er umhugsunarefni að Morgunblaðið skuli birta langa umfjöllun um andsetin börn og særingar (09.12.2012). Efnið er reyndar svo ógeðfellt að engu tali tekur. Ekki beinlínis aðventulesefni.
Af fréttavef Ríkisútvarpsins (09.12.2012): Ríkin þurfa svo að ákveða sín á milli hverjar skuldbindingar hvers og eins verður. Þetta var lesið athugasemdalaust í tíufréttum. Hér hefði átt að standa: Ríkin þurfa svo að ákveða sín á milli hverjar skuldbindingar hvers og eins verða.
Í endurteknum matreiðsluþætti í Útvarpi Sögu í liðinni viku talaði útvarpsstjórinn írekað um hamborgarahrygg, matreiðslumeistarinn Siggi Hall hélt sig við að tala um hamborgarhrygg. Sami útvarpsstjóri auglýsir súkklakökur og talar ævinlega um þjófélagið! Hvaða félag skyldi það nú vera?
Ágæt úttekt og umfjöllun um Íslenska erfðagreiningu í fréttum og Kastljósi Ríkissjónvarps (10.12.2012). Sigmar saumaði að Kára Stefánssyni sem var háll sem áll.
Í fréttum Stöðvar tvö (10.12.2012) var sagt frá eldsvoða á Laugavegi. Fréttamaður sagði: … þegar reykur lagðist um allt. Betra hefði verið: … þegar reyk lagði um allt. Í sömu frétt var sagt: Verslunin á jarðhæðinnin opnar í dag. Ekkert var sagt um hvað versluninni mundi opna. Enda átti að opna verslunina. Hún átti ekki að opna eitt né neitt.Sagt var frá afhendingu friðarverðlauna Nóbels í fréttatímum beggja sjónvarpsstöðva (10.12.2012) á mánudagskvöld. Undarlegt fréttamat hjá Ríkissjónvarpi að sýna langt myndskeið frá fámennum mótmælafundi ESB andstæðinga í Osló daginn áður með dónalegu skilti, sem lengi sást á skjánum. Ekkert var hinsvegar sagt frá hefðbundinni blysför að Grand Hótel að kveldi dagsins sem verðlaunaveitingin fór fram. Líklega hafa stjórnendur Ríkisútvarpsins ekki haft hugmyndaflug til að láta sér detta í hug að hafa beina útsendingu í heild eða að hluta frá Osló eða Stokkhólmi þar sem önnur Nóbelsverðlaun voru afhent í gær.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1081
10. desember 2012
Prófaðu nýja skeggsnyrtirinn frá Babyliss, segir í auglýsingu í Ríkissjónvarpinu (07.12.2012). Molaskrifari hlustaði tvisvar til að vera viss um að hafa heyrt rétt. Auglýsingadeild Ríkissjónvarpsins tekur greinilega við öllu, gagnrýnilaust, sem að henni er rétt.
Meira um auglýsingar: Í heilsíðu auglýsingu frá N1, olíufélaginu í Fréttablaðinu (07.12.2012) segir: … þegar verslað er eldsneyti. Þar ætti að standa: … þegar keypt er eldsneyti. Sá sem samdi textann þarf að kynna sér muninn á sögnunum að kaupa og að versla. Sumar auglýsingastofur bera ekki næga virðingu fyrir móðurmálinu.Í morgunútvarpi Rásar tvö (07.12.2012) var ítrekað talað um áhugalistamálara og vitnað í frétt á bls. 2 í DV. Í fréttinni er rætt við áhugalistmálara sem byrjaði að mála á áttræðisaldri. Smáatriðin skipta líka máli.
Af mbl.is (07.12.2012): Fréttaveitan Yonhap hefur eftir ónefndum embættismönnum í Suður-Kóreu að vinna við að smyrja lík Kim Jong-Il sé við það að ljúka og að líkið verði svo lagt við hlið föður hans í grafhýsinu. Vinna er ekki að ljúka. Vinnu er að ljúka.
Enda þótt Toyota-umboðið hafi verið lengi til húsa við þessa götu þá er hún ekki kennd við sölu nýrra bíla. Sjá visir.is (07.12.2012): Kona er alvarlega slösuð eftir bílslys sem varð á Nýbílavegi rétt austan við Þverbrekku rétt fyrir klukkan níu í morgun. Gatan heitir Nýbýlavegur, ný býli eru ný bú.
Lesandi bendir á þessa frétt á visir.is (07.12.2012): http://www.visir.is/konan-vard-fyrir-straetisvagni-/article/2012121209241
,,Það var strætisvagn sem ók á roskna konu“
Hér hefði nú verið betra að segja bara ,,Strætisvagn ók á roskna konu“ ekki, það varstrætisvagn sem ók á.” Molaskrifari er sammála.
Af mbl.is (07.12.2012): Annar þeirra reyndist vera verulega ölvaður og hinn undir áhrifum áfengis. Mennirnir voru sem sé báðir fullir. Báðir ölvaðir, báðir undir áhrifum áfengis.
Í kvöldfréttum Ríkisútvarps (07.12.2012) var sagt um matarinnkaup Dana í kring um hátíðaranar: … fólk kaupir of mikið í matinn til hátíðabrigða. Molaskrifara finnst þetta ekki alveg rökrétt orðalag. Merkingin hefði komist vel til skila með því að segja: Fólk gerir vel við sig í mat um hátíðarnar. Kannski er þetta sérviska hjá Molaskrifara.
Í sama fréttatíma, sem heitir víst Spegillinn, var sagt: 7,7% vinnuaflans voru án atvinnu í mánuðinum. Átt var við að 7,7% , vinnandi fólks , vinnuaflsins hefðu verið atvinnulaus í mánuðinum.
Gaman að útvarpsperlu Sigrúnar Björnsdóttur frá 1994 sem flutt var á Rás eitt á laugardagsmorgni (08.12.2012). Þar var sagt frá Noregsför barnakórs Akureyrar árið 1954. Meðal einsöngvara með kórnum þá var fermingardrengurinn Arngrímur Jóhannsson seinna flugstjóri og frömuður í alþjóðlegum flugrekstri.
Fínn Landi á sunnudagskvöldi í Ríkissjónvarpinu (09.12.2012) eins og svo oft áður. Ekki síst kaflinn um Skrúð og þá undraveröld sem þar er að finna. Prýðileg heimildamynd um flutning Sinfóníunnar í Hörpu var svo rósin í hnappgatinu þetta ágæta sunnudagskvöld. Takk.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- 461
- 462
- 463
- 464
- Næsta »
