-
Molar um málfar og miðla 1079
7. desember 2012
Af mbl.is (05.12.2012) Hundruð er enn saknað en björgunarsveitir hafa ekki enn komist á svæði sem verst urðu vegna flóða og aurskriða. Hér ætti að standa: Hundruða er enn saknað … sem verst urðu úti vegna flóða og aurskriða.
Molalesandi vakti athygli á því að á visir.is hefði verið sagt í fyrirsögn (05.12.202) að stúlka sem var næstum drukknuð í Kaupmannahöfn hefði verið höfð að gysi. Talað er um að gera gys að, skopast að, ekki hafa að gysi.
Sæðisframleiðslan á niðurleið , segir í fyrirsögn á mbl.is (05.12.2012) http://www.mbl.is/frettir/taekni/2012/12/05/saedisframleidslan_a_nidurleid/. Þetta eru voveifleg tíðindi af frönskum karlmönnum, en huggun harmi gegn að mbl.is segir: ,,Þrátt fyrir að dregið hafi úr framleiðslu sæðis meðal karlmanna í Frakklandi er framleiðslan enn nægjanleg til fjölgunar mannkynsins”. Frakkar geta því haldið áfram að ,,iðka tveggja barna kerfið” eins og Ólafur Hansson sögukennarinn ógleymanlegi sagði okkur í 6-B fyrir meira en 50 árum. Einn af milljón fróðleiksmolum sem hann miðlaði til okkar. Hann nestaði okkur vel eins og fleiri góðir kennarar í MR.
Lesandi skrifar (05.12.2012): ,,Hefur enginn tekið eftir því að hinni föstu sjónvarpsmyndavél ríkisins
hefur nýlega verið snúið þannig að ekki sést lengur í stól
forsætisráðherra, eða ráðherra sjálfan, eins og verið hefur síðan
þessar beinu útsendingar frá Alþingi hófust? Hverjum er verið að
hlífa? Ráðherra eða áhorfendum? Það er þó bót í máli að nú nýtur
atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra sín til fullnustu á skjánum.” Þetta er rétt athugað hjá lesanda. Ekki kann Molaskrifari að skýra þessa breytingu.Í útvarpsfréttum (05.12.2012) var sagt um sjúkling að hann hefði verið afskiptalaus í fjórar klukkustundir. Betra hefði verið að segja að hann hefði verið látinn afskiptalaus í fjórar klukkustundir.
Enn er í fréttum Ríkisútvarps talað um ríkið Konnekkktikött (Connecticut) í Bandaríkjunum. Þrátt fyrir ritháttinn er heiti þessa ríkis ekki borið fram með ká hljóði í miðjunni.
Áhrifamikil umfjöllun um snjóflóðin í Neskaupstað í Kastljósi í gærkveldi. (07.12.2012). Vel gert og smekklega. Jafn ósmekklegt og á skjön við alla skynsemi voru svokallaðar Hraðfréttir sem fylgdu í kjölfarið þar sem var flaggað var innanhússfólki og fólki sem stjórnendum er þóknanlegt en kemur fréttum ákaflega lítið við. Þetta á ekkert erindi á skjáinn. Sóun á takmörkuðu dagskrárfé. Sjálfhverf dagskrárgerð.
Lesandi bendir á þessa frétt á mbl.is (05.12.2012) http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/12/05/raudhofdi_svamladi_i_land/ og segir: „Í þessari frétt fatast fréttamanninum verulega í töluðum texta. Þar er það ávallt Jólavættin, sem um er rætt, en í skjátextanum er það réttilega vætturin.“
Molaskrifari þakkar sendinguna.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1078
6. desember 2012
Af mbl.is (04.12.2012): Ný tæknivædd móttökustöð fyrir skilagjaldsskyldar drykkjarumbúðir opnaði í Skátamiðstöðinni, Hraunbæ 123 í gær. Þess er ekki getið í fréttinni hvað móttökustöðin opnaði. Líkast til opnaði hún ekki neitt. Stöðin var opnuð.
Mér langar að spyrja … sagði einn af þingmönnum Framsóknarflokks í umræðum á Alþingi (04,12,2012). Það var ekki Vigdís Hauksdóttir, svo allrar sanngirni sé nú gætt. Stuttu síðar sagði þingmaður Sjálfstæðisflokks að það þyrfti að setja fætur undir hagkerfið. Það er líklega til þess að hagkerfið geti gengið burt. Í málþófi sér þess auðvitað stað að menn flytja ekki skrifaðar ræður. Það er gaman að þessu. Og þó.
Á þriðjudagskvöld (04.12.2012) horfði Molaskrifari stundarkorn á einræðu sjónvarpsstjórans á ÍNN. Að venju kallaði hann Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra ,,kellinguna”. Sumir eru líklega orðnir vanir munnsöfnuði sjónvarpsstjórans. Þetta er ekki í námunda við það sem kallaðir eru mannasiðir í alvöru fjölmiðlun. Þessvegna á það ekki að venjast. Á þessum fáu mínútum talaði stjórinn líka um hæstlaunuðustu lögmenn landsins og sagði að ríkisstjórnarsetan hefði runnið Steingrími J. Sigurðssyni til höfuðs ! Það var og. Nóg hefði verið að tala um hæstlaunuðu lögmenn landsins og að ríkisstjórnarsetan hefði stigið Steingrími til höfuðs.
Á tíunda tímanum á sunnudagsmorgni (02.12.2012) var afar löng ilmvatnskynning (auglýsing) í morgunþætti Rásar tvö. Mörkin þarna á milli eru oft ansi óljós í fjölmiðlun samtímans, en þegar sölumaður fær afnot af fjölmiðli til að gefa vöru sína nálgast slíkar kynningar enn meira að vera auglýsingar. Í þættinum var verið að kynna það sem kallað var íslenskt ilmvatn, virtist þó vera framleitt í Frakkland og ilmefnin frönsk. Sú sem rætt var við þurfti mikið að nota ensku í viðtalinu: Dash of vanilla, sensual, romantic og Elisabeth Taylor-like! Svo var hlustendum sagt að ilmvatnið væri selt á flöskum, – stjórnandi talaði réttilega um glös. En kannski er þetta bara selt á flöskum, kannski þriggja pela flöskum eins og vanilludroparnir í kaupfélaginu í Borgarnesi í gamla daga!
Nýlega var að því vikið hve algengt væri orðið að tala um pening í stað peninga. Í morgunþætti Rásar tvö (05.12.2012) var rætt við barn sem efnt hafði til tombólu eða hlutaveltu til að safna peningum til góðagerðastarfs. Hvað eftir annað talaði umsjónarmaður um pening. Hvað á að gera við peninginn? Hvað safnaðist mikill peningur? Þáttastjórnendur eiga að reyna að vanda mál sitt.
Hvaða helgi er þessi þarsíðasta helgi sem mönnum verður svo tíðrætt um Ríkisútvarpinu ?
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1077
5. desember 2012
Af mbl.is (03.12.2012): Mette-Marit, krónprinsessa Noregs, dvaldi í tvo daga á sjúkrahúsi í Nýju-Delhi á Indlandi í haust, þar sem hún gætti að tveimur kornabörnum. Hér hefði að mati Molaskrifara verið eðlilegra að segja: … þar sem hún gætti tveggja kornabarna. Betra líka að segjadvaldist, fremur en dvaldi.
Sjónvarpsstjóri ÍNN, Ingvi Hrafn Jónsson varð sér til skammar í einræðu sinni á þriðjudagskvöld (04.12.2012) á skjá sínum ÍNN. Það gerði hann með því að blanda látnum föður Lúðvíks Geirssonar alþingismanns inn í umræðuna um bjánagang Lúðvíks og Björns Vals Gíslasonar í þingsal í vikunni. Það var ótrúlegt að hlusta á þetta.
Molalesandi skrifar (03.12.2012): ,,Mér hefur alltaf þótt leiðinleg sú árátta íþróttafréttamanna að nefna íþróttamenn gælunöfnum í fréttum og viðtölum. Nú virðist þessi leiðilegi siður vera kominn inn í fréttatíma sjónvarpsstöðvanna, því í fréttayfirliti Stöðvar 2 var Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra kallaður Gutti! Fáum við næst fréttir af Jóku og Kötu, svo dæmi séu tekin?” Molaskrifari er sammála. Þetta er ósiður og ókurteisi. Já þess er ekki langt að bíða með sama áframhaldi að sagt verði við okkur: Jóka sagði á Alþingi í dag að ….
Fréttastofum beggja sjónvarpsstöðva tókst (03.12.2012) að gera heilmiklar fréttir úr ,,bilun” rútunnar sem flutti íslenska kvennalandsliðið í handbolta
á hótel. Rútan staðnæmdist nánast við hótel dyrnar og ekki var að sjá að ,,bilunin” væri alvarleg. Gaman að þessu ! Auðvitað verður að réttlæta það að senda menn til útlanda. Það kostar sitt.- Hvað skyldi annars vera langt síðan sjónvarpsstöðvarnar hafa sent fólk til efnisöflunar í útlöndum til að afla annars efnis en um íþróttir?Í fréttum Stöðvar tvö var fjallað um væntanlega fjölgun í bresku konungsfjölskyldunni og talað um hið konunglega afkvæmi. Ekki verður annað sagt en að það sé einstakelag hallærislegt orðalag. Þá komu meðlimir konungsfjölskyldunnar við sögu þegar nægt hefði að tala um konungsfjölskylduna. Í þessu sama fréttatíma var talað um vindasamt veður þegar átt var við hvassviðri eða rok.
Í fréttum Ríkissjónvarps (03.12.2012) var sagt að Ísraelsstjórn ætlaði að byggja heimili. Ekki í fyrsta skipti sem þessi meinloka gerir vart við sig. Fólk stofnar heimili. Hús eru byggð, íbúðir byggðar.
Kristján Már Unnarsson , fréttastjóri Stöðvar, tvö hefur sérhæft sig í fréttum af fyrirhugaðri olíuvinnslu og olíuvinnslu Norðmanna. Hann er fyrstur með hverja olíufréttina á fætur annarri.
Oft hefur hér verið minnst á bannfæringu útvarpsstjóra á orðinu Ríkisútvarp. Starfsmenn mega ekki lengur taka sér í munn rúmlega áttatíu ára gamalt heiti stofnunarinnar. Samkvæmt ákvörðun útvarpsstjóra heitir Ríkisútvarpið nú Rúv. Of erfitt að segja Ríkisútvarpið. Gleymst hefur að segja ágætum umsjónarmönnum morgunþáttar Rásar eitt frá þessu banni. Þeir hefja nefnilega daginn svo notalega á því að segja: Ríkisútvarpið býður góðan dag! Þetta hefur greinilega farið framhjá yfirmanni Ríkisútvarpsins enda er þetta mjög snemma dags, klukkan 06 40.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1076
4. desember 2012
Um nýliðna helgi horfði Molaskrifari á Viðtalið þar sem Bogi Ágústsson ræddi við Göran Person (Ríkissjónvarpið 29.11.202). Gott að geta sótt efni í Sarpinn. Þetta var öndvegisviðtal. Vonandi hafa allir alþingismenn horft á þennan þátt. En líklega er borin von að þeir sem mest þyrftu á að halda dragi nokkurn lærdóm af orðum Görans Persons. Kærar þakkir, Bogi. Mættum við fá meira af slíku.
Molavin sendi eftirfarandi hugleiðingu (03.12.2012):
,, Það er kannski að bera í bakkafullan lækinn að finna að fréttaskrifum Vísis. Í dag, 3. des. hefst þar frétt á þessum orðum: „Breska konungshirðin hefur staðfest að Vilhjálmur, prins Breta, og Kate Middleton, eiginkona hans, eiga von á barni.“ Látum nú vera að blaðamaðurinn kunni ekki að nota viðtengingarhátt sagna (þar sem ætti að standa „eigi von á“) og líka þá fullyrðingu að „hirðin“ hafi staðfest fréttina, þar sem trúlega hefur verið um hirðmarskálk eða annan opinberan málsvara konungsfjölskyldunnar að ræða. Það er hins vegar bæði virðingar- og kunnáttuleysi að tala sífellt í fréttum og fyrirsögnum um „Kate Middleton“ þegar átt er við Katrínu (Catherine), hertogaynju af Cambridge. Menn mega blogga og blaðra með kumpánlegu orðalagi, en allir fjölmiðlar, sem vilja láta taka sig alvarlega, fylgja settum reglum um nafnahefðir konungsfólks. Kjánaskrif í dálkum um frægt fólk grafa undan áreiðanleika fjölmiðlanna.” Molaskrifari þakkar bréfið.Hvað þýðir í þarsíðustu viku sem maður sér aftur og aftur og heyrir nú að undanförnu? Síðast var þetta á mbl.is um helgina.
Hversvegna finnst Stöð tvö nauðsynlegt að auglýsa ágæti þess kallað er Stöð tvö vild á ensku? Er ekki verið að tala við okkur,- íslenska áhorfendur?
Í fréttum Ríkissjónvarps (02.12.2012 var talað um stór veggöng í Japan. Í sama fréttatíma var talað um sókn erlendra ríkja í sjaldgæfa málma á Grænlandi. Oft er sagt að Grænland sé stærsta eyja í heimi, en sjaldnast er talað um þetta stóra landflæmi (Tuttugu og einu sinni stærra en Ísland) sem eyju þótt vissulega sé það eyja. Það er Ástralía reyndar líka. Það var þessvegna dálítið skrítið að heyra talað um sjaldgæfa málma á eynni ! Hvort tveggja eru þetta atriði sem góður yfirlesari hefði lagfært áður en fréttirnar voru fluttar fyrir okkur.
Líklega hafa engir sungið sig eins djúpt inn í hjarta þjóðarinnar eins og Stefán Íslandi og Karlakór Reykjavíkur með Ökuljóði sem hljóðritað var í Kaupmannahöfn í nóvember 1937. Það var þess vegna skrítið að heyra sagt á dögunum í óskalagaþætti í Ríkisútvarpinu að Ökuljóð væri eftir Sigurð Þórðarson og Freystein Gunnarsson. Víst þýddi Freysteinn textann, ljóðið, en lagið er rússneskt þjóðlag og Sigurður Þórðarson stjórnaði Karlakór Reykjavíkur í þessari frægu og frábæru útgáfu. Líklega er útsetningin einnig hans.
Lauslegur og óvísindalegur samanburður á dagskrám norrænu sjónvarpsstöðvanna sem hér hægt að sjá (DR1, DR2, NRK1, NRK2, NRK3, SVT1 og SVT2) gefur til kynna að engin þessara stöðva sýni jafn mikið af lélegu amerísku afþreyingarefni og amerísku unglingaefni og íslenska Ríkissjónvarpið.
Helgi Haraldsson, prófessor emeritus, í Osló sendi Molaskrifara þessa athyglisverðu ábendingu: http://www.apollon.uio.no/artikler/2012/4-engelsk-er-skandinavisk.html Molaskrifari þakkar Helga sendinguna.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – .ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
-
Molar um málfar og miðla 1075
3. desember 2012
Fyrirsögn á visir.is (30.11.2012): Útvarpsþættinum Harmageddon tímabundið vikið úr starfi. Hvernig er hægt að víka útvarpsþætti úr starfi. Eru útvarpsþættir ráðnir til starfa ? Í fréttinni kemur fram að umsjónarmönum þáttarins hefur tímabundið verið vikið úr starfi.
Það fór algjörlega framhjá fréttastofu Ríkissjónvarpsins að á laugardaginn (01.12.2012) var fullveldisdagurinn fyrsti desember. Fréttastofa Stöðvar tvö sýndi deginum sóma með svolítilli frétt. Hrós fyrir það. Þess sá raunar engan stað í dagskrá Ríkisútvarps eða sjónvarps að þennan dag væri fullveldisdagur okkar Íslendinga. Laugardagskvöldið í sjónvarpinu var lagt undir ameríska afþreyingu, ef undan er skilinn Dans, dans, dans sem að líkindum er dýrasta afþreyingarefni í sögu Ríkissjónvarpsins.
Molaskrifari er ekki hrifinn af sjónvarpsauglýsingu Icelandair þar sem notað er lagið við Heims um ból. Finnst að auglýsingastofur ættu að láta þann ágæta jólasálm í friði.
Hvað þýðir það þegar stjórnmálamáður segist ætla að vinna lausnamiðað? Molaskrifari er því að það þýði eiginlega ekki nokkurn skapaðan hlut. Tískuorð sem tönnlast er.
Af mbl.is (01.12.2012): Forráðamenn matvöruverslunarinnar Iceland færðu í morgun Lífsspori eina milljón króna til styrktar kvennadeildar Landspítalans … Hér ætti að standa: … til styrktar kvennadeild Landspítalans.
Merkileg frétt á Stöð tvö á laugardagskvöld (01.12.2012). Kvótaeigendur í LÍÚ keyptu sér skoðanakönnum um ágæti kvótakerfisins og þótti það fréttnæmt. Meðal annars var spurt um ágæti kvótakerfisins íslenska í samaburði við fiskveiðistjórnunarkerfi í öðrum löndum. Mörg hundruð manns höfðu skoðanir á því. Molaskrifari hefur miklar efasemdir um að hér sé fyrir hendi almenn vitneskja um fiskveiðistjórnunarkerfi annarra landa, – en svona getur verið auðvelt að plata fréttastofur þegar lítið er í fréttum á laugardagskvöldi.
Ríkissjónvarpið heldur uppteknum hætti og segir okkur ósatt, eða í besta falli hálfan sannleikann. Á föstudagskvöld (30.11.2012) undir miðnætti var endursýnd hin frábæra kvikmynd frá 1962 um Arabíu-Lárus. Þess var ekki getið að um endursýningu væri að ræða. Hversvegna getur þessi stofnun í eigu þjóðarinnar ekki sagt okkur satt? Undarlegt. Hversvegna þarf að fóðra okkur á ósannindum? Internet Movie Database vefurinn gefur myndinni 8, 5 af 10,0. Óvenju hátt, en vissulega verðskuldað. Á besta tíma á föstudagskvöldi var þjóðinni hinsvegar boðið upp á enn eina varúlfa- og blóðsugumyndina en dagskrárstjórar Ríkissjónvarpsins hafa óskiljanlegt dálæti á slíkum kvikmyndum. Næstum sjúklegt dálæti, liggur mér við að segja. IMDb. gefur þeirri mynd einkunnina 4,5. Flokkar hana sem rusl. Kvikmynd í ruslflokki í ruslakistunni sem Ríkisjsónvarpið er þegar að kvikmyndum kemur. Miklu betri dagskrárgerð hefði verið að sýna Arabíu-Lárus með Peter O´Toole , Alec Guinness og fleiri stórleikurum á besta tíma og blóðsugubullmyndina eftir miðnætti.
Það er annars gaman svona í lokin að geta hrósað Ríkissjónvarpinu dálítið. Dagskráin í gærkveldi, (02.12.2012) var alveg prýðileg að mati Molaskrifara. Sunnudagskvöldin eru lang bitastæðustu kvöldin hjá Ríkissjónvarpinu.Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – ESG
Upprunaleg færsla á Eidur.isSkrifa athugasemd
- « Fyrri
- 1
- 2
- 3
- 4
- 5
- 6
- 7
- 8
- 9
- 10
- 11
- 12
- 13
- 14
- 15
- 16
- 17
- 18
- 19
- 20
- 21
- 22
- 23
- 24
- 25
- 26
- 27
- 28
- 29
- 30
- 31
- 32
- 33
- 34
- 35
- 36
- 37
- 38
- 39
- 40
- 41
- 42
- 43
- 44
- 45
- 46
- 47
- 48
- 49
- 50
- 51
- 52
- 53
- 54
- 55
- 56
- 57
- 58
- 59
- 60
- 61
- 62
- 63
- 64
- 65
- 66
- 67
- 68
- 69
- 70
- 71
- 72
- 73
- 74
- 75
- 76
- 77
- 78
- 79
- 80
- 81
- 82
- 83
- 84
- 85
- 86
- 87
- 88
- 89
- 90
- 91
- 92
- 93
- 94
- 95
- 96
- 97
- 98
- 99
- 100
- 101
- 102
- 103
- 104
- 105
- 106
- 107
- 108
- 109
- 110
- 111
- 112
- 113
- 114
- 115
- 116
- 117
- 118
- 119
- 120
- 121
- 122
- 123
- 124
- 125
- 126
- 127
- 128
- 129
- 130
- 131
- 132
- 133
- 134
- 135
- 136
- 137
- 138
- 139
- 140
- 141
- 142
- 143
- 144
- 145
- 146
- 147
- 148
- 149
- 150
- 151
- 152
- 153
- 154
- 155
- 156
- 157
- 158
- 159
- 160
- 161
- 162
- 163
- 164
- 165
- 166
- 167
- 168
- 169
- 170
- 171
- 172
- 173
- 174
- 175
- 176
- 177
- 178
- 179
- 180
- 181
- 182
- 183
- 184
- 185
- 186
- 187
- 188
- 189
- 190
- 191
- 192
- 193
- 194
- 195
- 196
- 197
- 198
- 199
- 200
- 201
- 202
- 203
- 204
- 205
- 206
- 207
- 208
- 209
- 210
- 211
- 212
- 213
- 214
- 215
- 216
- 217
- 218
- 219
- 220
- 221
- 222
- 223
- 224
- 225
- 226
- 227
- 228
- 229
- 230
- 231
- 232
- 233
- 234
- 235
- 236
- 237
- 238
- 239
- 240
- 241
- 242
- 243
- 244
- 245
- 246
- 247
- 248
- 249
- 250
- 251
- 252
- 253
- 254
- 255
- 256
- 257
- 258
- 259
- 260
- 261
- 262
- 263
- 264
- 265
- 266
- 267
- 268
- 269
- 270
- 271
- 272
- 273
- 274
- 275
- 276
- 277
- 278
- 279
- 280
- 281
- 282
- 283
- 284
- 285
- 286
- 287
- 288
- 289
- 290
- 291
- 292
- 293
- 294
- 295
- 296
- 297
- 298
- 299
- 300
- 301
- 302
- 303
- 304
- 305
- 306
- 307
- 308
- 309
- 310
- 311
- 312
- 313
- 314
- 315
- 316
- 317
- 318
- 319
- 320
- 321
- 322
- 323
- 324
- 325
- 326
- 327
- 328
- 329
- 330
- 331
- 332
- 333
- 334
- 335
- 336
- 337
- 338
- 339
- 340
- 341
- 342
- 343
- 344
- 345
- 346
- 347
- 348
- 349
- 350
- 351
- 352
- 353
- 354
- 355
- 356
- 357
- 358
- 359
- 360
- 361
- 362
- 363
- 364
- 365
- 366
- 367
- 368
- 369
- 370
- 371
- 372
- 373
- 374
- 375
- 376
- 377
- 378
- 379
- 380
- 381
- 382
- 383
- 384
- 385
- 386
- 387
- 388
- 389
- 390
- 391
- 392
- 393
- 394
- 395
- 396
- 397
- 398
- 399
- 400
- 401
- 402
- 403
- 404
- 405
- 406
- 407
- 408
- 409
- 410
- 411
- 412
- 413
- 414
- 415
- 416
- 417
- 418
- 419
- 420
- 421
- 422
- 423
- 424
- 425
- 426
- 427
- 428
- 429
- 430
- 431
- 432
- 433
- 434
- 435
- 436
- 437
- 438
- 439
- 440
- 441
- 442
- 443
- 444
- 445
- 446
- 447
- 448
- 449
- 450
- 451
- 452
- 453
- 454
- 455
- 456
- 457
- 458
- 459
- 460
- Næsta »
