Eiður Guðnason

Eiður Guðnason

Eiður Svanberg Guðnason stundaði nám í stjórnmálafræði í Bandaríkjunum. Lauk BA prófi í ensku frá Háskóla Íslands. Var blaðamaður við Alþýðublaðið, fréttamaður og varafréttastjóri Sjónvarpsins 1963 til 1978. Alþingismaður fyrir Alþýðuflokkinn 1978-1993 (umhverfisráðherra 1991-1993) Sendiherra í Noregi, Kína og víðar 1993 til 2009. Hefur ritað í blöð og tímarit. Skrifar reglulega um málfar og efnistök fjölmiðla.

Molar um málfar og miðla 915

23. maí 2012 › 08:38

Danska ríkissjónvarpið (DR2) sýndi merkilega heimildamynd á mánudagskvöldið (21.05.2012). Myndin var bresk, gerð fyrir Channel 4. Á ensku hét hún: Oligart: The Great Russian Artboom, en Danir kölluðu hana Oligarker på kuntsköb. Þar sagði frá listaverkakaupum rússneskra auðmanna sem kaupa nú listaverk fyrir milljónir sterlingspunda,sem óðir séu. Þeir eru meðal annars eru að endurheimta verk rússneskra listamanna og koma þeim á heimaslóðir. Meðal þeirra sem komu við sögu í myndinni var maðurinn sem Ólafur Ragnar var að nudda sér utan í og fékk far hjá í einkaþotu, svo sem frægt er að endemum , einn ríkasti maður í heimi, Roman Abramovich (auður hans er metinn á 23.5 milljarða dollara). Þetta var einkar fróðleg mynd og meðal annars var ( að sjálfsögðu) komið við hjá hinu fræga uppboðsfyrirtæki Sotheby´s í London.

Í viðtali við talsmann fyrirtækisins voru menn til hliðar á skjánum að bjástra við stórt olíumálverk, sem undirritaður er handviss um að var eftir Karólínu Lárusdóttur. Raunar brá einnig fyrir í bakgrunni öðru olíumálverki, sem einnig bar öll merki Karólínu. Molaskrifara þótti þetta svo merkilegt að hann horfði aftur á hluta þáttarins í seinkaðri útsendingu og ekki var um að villast að hans mati. Karólína er öndvegismálari. Hún fann hins vegar ekki náð fyrir augum þeirra sem skrifuðu fimm binda Listasögu Íslands sem nýlega kom út. Hennar er þar að engu getið. Frekar en hún hafði aldrei fæðst, eða lyft pensli. Veldur því líklega þröngsýni blönduð dágóðri skvettu af öfund. Undarlegt og óskiljanlegt, en líklega gott dæmi um íslenska smæð.


Af pressan.is (20.05.2012) Leki hafði komið að skipinu og þegar björgunarsveitarmenn komu að skipinu var tæplega eins metra hár sjór í vélarrúmi. Það var sem sagt hásjávað í vélarrúminu ! Hér hefði frekar átt að tala um dýpi en hæð.


Auglýsing í hádegisútvarpi Ríkisútvarpsins (21.05.2012) Yellow is the new black, – Höggmyndagarðurinn. Samkvæmt reglunum eiga auglýsingar í Ríkisútvarpinu að vera á íslensku. Auglýsingadeild Ríkisútvarpsins þarf ekki að fara eftir neinum reglum.


Fréttablaðið greinir frá því á forsíðu (22.05.2012) að fundist hafi mikið magn af maríjúana á floti undan strönd Kaliforníu. Í fréttinni segir: Notast þurfti við þrjú stór hafnarskip til að veiða bögglana úr sjónum og flytja þá til lands. Ekki veit Molaskrifari hverskonar skip hafnarskip eru. Efast raunar um að sá sem fréttina skrifaði hafi haft hugmynd hverskonar fleytur þetta voru sem hann kallar hafnarskip.


Áhugavert og ágætt samtal þeirra Haraldar Sigurðssonar jarðvísindamanns og Helga Seljan í Kastljósi (21.05.2012) um undraheima undirdjúpanna. Ekki spilltu myndirnar.


Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG



Upprunaleg færsla á Eidur.is



Athugasemdir eru ekki leyfðar við þessa frétt.