Daði Ingólfsson

Daði Ingólfsson

Vonar að þetta sé allt saman einn risavaxinn misskilningur.

Hugmyndafræði flokkanna - Hraðnámskeið

16. september 2012 › 08:58

Hinn yfirlýsingaglaði og flokksholli Óli Björn Kárason sagði í Silfri Egils fyrir viku eitthvað á þá leið að nýju framboðin skorti hugmyndafræði - að það væri eitt að hafa stefnu (það væri auðvelt) en annað að hafa heila hugmyndafræði á bark við sig. Án svoleiðs gætu kjósendur ekki hugsað sér að leggja X-ið sitt við framboðið.


Ég hef nú hugsað um þetta í viku, því það kom mér svo í opna skjöldu að þetta skipti höfuðmáli (en ekki til dæmis heiðarleiki og vinnusemi) að ég þurfti að endurskoða gervalla heimssýn mína. Nú hef ég hins vegar komist að niðurstöðu um hugmyndafræði hinna hefðbundnu flokka og lista hér fyrir neðan:



  • - Hugmyndafræði Sjálfstæðisflokksins: Taka alla peningana og hlaða undir þá ríkustu.

  • - Hugmyndafræði Samfylkingarinnar: Taka alla peningana og smyrja þeim í jöfnu þunnu lagi á alla.

  • - Hugmyndafræði Framsóknarflokksins: Taka alla peningana og afhenda flokksmönnum eftir flóknu regluverki

  • - Hugmyndafræði Vinstri Grænna: Taka alla peningana.


Ég held að þessu máli vandlega athuguðu, þá verði nýjum framboðum ekki skotaskuld úr því að finna hugmyndafræði sem höfði til landsmanna. 
 



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.