Daði Ingólfsson

Daði Ingólfsson

Vonar að þetta sé allt saman einn risavaxinn misskilningur.

Fótbrot í boði Íslandsbanka

20. júlí 2012 › 21:12

Íslandsbanki fann það í siðferðislega hreinu hjarta sínu að afskrifa 1 milljarð af Morgunblaðinu, sennilega því vesalings útgerðaröregarnir sem standa fyrir útgáfu þess áróðurssnepils töldu það óábyrga ráðstöfun á fjármunum að greiða skuldir sínar, eins og frægt er hjá öðrum siðleysingjum. Þetta mun þó ekki skyggja á Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka þar sem fólkið sem borgar skuldir Morgunblaðsins munu svitna í boði bankans á meðan ríkisfjölmiðlar tyggja á nafni Íslandsbanka í fullkomlega óritskoðaðri PR-ekstasíu.


Bjarni Benediktsson finnur það þó í fjárhagslega óspilltri sál sinni að nú sé rétti tíminn til að skera niður í heilbrigðiskerfinu


Ef einhver meiðir sig hins vegar á hlaupunum þarf hann sennilega að bíða lengi á slysavarðstofunni eftir hjálp. Líklega marga tíma. Ef Íslandsbankaíþróttamaðurinn meiðir sig nægilega herfilega getur hann slysast til að lenda á gífurlegum biðlistum, bíða jafn lengi og fjármagn leyfir með útsölu-morfín í æð eftir því að skurðstofa losnar og enda svo á rúmi á ganginum með bónus-pensilín í stílformi. En ekki án þess að fá medalíuna sína fyrir þátttöku frá auglýsingateymi Íslandsbanka. 


Það gefur því auga leið að Íslandsbanki hlýtur að afskrifa í það minnsta 1 milljarð af skuldum Landsspítalans til að íþróttamaðurinn geti fengið flýtimeðferð og skurðaðgerð á einkastofu í Reykjanesbæ. 


Annað væri tvískinnungur og siðleysi. Og hvaða banki sem skartar nafni Íslands gæti látið það við gangast?



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.