Björgvin Valur

Björgvin Valur

Björgvin Valur Guðmundsson er viðkvæm sál að austan. Krati, feministi, frjálshyggjumaður, sósíalisti, náttúrverndarsinni og margt fleira. Stundum ringlaður.

Refsiaðgerðir

25. maí 2012 › 17:05

Á Vísi er sagt frá því að formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar, Jens Garðar Helgason, hyggist feta í fótspor Davíðs Oddssonar og taka peningana sína út úr banka sem honum er í nöp við.  Og hann gengur lengra en Davíð, því hann hvetur fólk á bráðum landsbankalausum stöðum að fylgja sér yfir fjallið og hafa peningana sína meðferðis.


Það er rétt að taka fram, að ég skil ósköp vel að bæjaryfirvöld í Fjarðabyggð séu ósátt við Landsbankann, sem hefur nú lokað þremur útibúum í Fjarðabyggð, sagt upp starfsfólki og skert þjónustu við íbúana.


En það sem ég skil ekki, er að formaður bæjarráðs, segist ætla að fara með peningana sína frá Eskifirði yfir Oddsskarðið og leggja þá inn í Sparisjóð Norðfjarðar.  


Ég skil það ekki, vegna þess að Sparisjóðiur Norðfjarðar lokaði fyrir ekki svo löngu síðan, útibúi sínu á Reyðarfirði og þá misstu þrjár manneskjur vinnuna.  Þá tók enginn bæjarráðsmaður peningana sína og fór með þá í annan banka, sem er kannski ekki skrýtið því Fjarðabyggð er einn stærstu eigenda sparisjóðsins og á að minnsta kosti einn fulltrúa í stjórn hans.  Líklega er sá fulltrúi einnig forseti bæjarstjórnar.


Því hefðu bæjarfulltrúar verið, sumir beint og aðrir óbeint, að refsa sjálfum sér með refsiaðgerðum gegn Sparisjóði Norðfjarðar á borð við þær sem nú er hvatt til gagnvart Landsbankanum.


Og ekki viljum við að fólk sé skjótandi sig í fótinn út um allan bæ.



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.