Í dag beindi Jóhannes Benediktsson eftirfarandi spurningu til Ólafs Ragnars Grímssonar á beinni línu DV:
"Hvað áttir þú við, þegar þú sagðir: Það er einlæg ósk mín að þjóðin muni sýna því skilning [...], muni ég hverfa til annarra verkefna áður en kjörtímabilið er á enda og forsetakjör fari þá fram fyrr."
Ólafur svaraði svona:
"Ef þjóðinni hefur tekist að eyða margvíslegri óvissu, varðandi stjórnarskrá, stöðu þjóðarinnar á alþjóðavettvangi, efnahagslíf og lífskjör almennings og þegar kominn er stöðugleiki í stjórnarfari og ný stjórnarskrá, þá myndi ég ekki standa í veginum fyrir því ef þjóðin vill þá velja sér nýjan Forseta. Það er ákvörðun þjóðarinnar, ekki mín."
Hvurn þremilinn á maðurinn við; forsetinn með stóru effi?
Ræður þjóðin hvenær næst verður kosið um forseta? Hver á að ákveða hvort þjóðin vilji nýjan forseta, með litlu eða stóru effi, á miðju kjörtímabili? Við öll saman eða eiga Guðni Ágústsson og Eiríkur Stefánsson að safna undirskriftum þess efnis til að færa honum? Og ef hann ekki skynjar það núna að meiri hluti þjóðarinnar vill hann ekki lengur, hvernig í ósköpunum ætlar hann að nema neikvæða strauma í sinn garð eftir tvö eða þrjú ár?
Það er að segja ef Guðni og Eiríkur verða ekki búnir að banka uppá hjá honum og biðja hann að hypja sig.
Og hver er þessi Ólafía?
