Þjóðvegurinn sem liggur héðan frá Stöðvarfirði og til Neskaupstaðar, er sá hættulegasti á landinu, samkvæmt rannsókn Þóroddar Bjarnasonar félagsfræðings og Sveins Arnarsonar félagsfræðinema og birt er í Læknablaðinu. Einnig má finna samtantekt úr skýrslunni á vef Feykis í Skagafirði.
Það þýðir, að það eru meiri líkur á að fólkið sem ekur þennan veg lendi í slysi á leiðinni en fólk sem ekur eftir öðrum þjóðvegum á Íslandi.
Vissulega eru fleiri slys á öðrum þjóðvegum en það er þá vegna þess að þeir eru fjölfarnari. Einstaklingur sem ekur um þennan veg, sem ber númerið 92 í annan endann en 96 í hinn, er líklegastur allra úti á þjóðvegum landsins til að lenda í umferðaróhappi.
Sá hluti vegarins sem liggur frá Fáskrúðsfirði og suður til Stöðvarfjarðar, vegur númer 96, er hlykkjóttur en malbikaður, þar er oft svo hvasst að bílar fjúka og stór hluti leiðarinnar er í þjónustuflokki 3 hvað snjómokstur varðar. Samt er þetta aðalleiðin inn á Ausurland að vetrarlagi og hana fara margir flutningabílar og rútur á degi hverjum. Vegurinn er einungis hálkuvarinn í nokkrum beygjum og brekkum en þess utan getum við rakað okkur í speglinum sem verður þarna eftir umhleypingar.
Vegarkaflinn frá Fáskrúðsfirði til Neskaupstaðar er beinn og breiður, nokkurnveginn alveg þar til kemur að Hólmahálsi en eftir það hlykkjast hann þar um og liggur svo yfir Oddsskarð. Þessi hluti vegarins, númer 92 lengst af, er í þjónustuflokki 2 þegar kemur að snjómokstri.
Á þessum vegi eru tvenn vegamót utan þéttbýlis; önnur eru þar sem þjóðvegir 92 og 96 mætast á Reyðarfirði og hin þar sem þjóvegir 96 og 955 mætast á Fáskrúðsfirði. Við köllum veginn þar á milli gjarnan gangaveginn en hann liggur um Fáskrúðsfjarðargöng. Nú, tæpum sjö árum eftir að göngin opnuðu og umferð hefur aukist með samþjöppum atvinnu og þjónustu á Reyðarfirði, eru þessi vegamót enn óupplýst og það getur verið erfitt að átta sig á þeim í kolsvarta myrkri, enda hafa mörg óhöpp orðið þar og stundum slys á fólki.
Við Austfirðingar komumst ekki hjá því að taka eftir því á ferðum okkar um landið, að víðast hvar eru vegamót lýst upp með einhverjum hætti og spyrjum hvers vegna það sé ekki gert hérna líka. Það hlýtur að vera ódýrara en afleiðingar umferðarslysa.
Sitthvað fleira mætti segja um þennan veg, en ég ætla að stilla mig um það í bili því ég tel að ef vetarþjónustan yrði bætt og komið upp lýsingu á gatnamótum, myndi slysum fækka til muna og ekki þarf að fjölyrða um þá samgöngu- og umferðaröryggisbót sem göng undir Oddsskarð yrðu.
Og svo hlakka ég til að sjá sem flesta ferðamenn hérna í sumar.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
