ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Björgvin Valur

Björgvin Valur

Björgvin Valur Guðmundsson er viðkvæm sál að austan. Krati, feministi, frjálshyggjumaður, sósíalisti, náttúrverndarsinni og margt fleira. Stundum ringlaður.

Björt framtíð

16:00 › 6. febrúar 2012

Mér líst alveg ljómandi vel á Bjarta framtíð, nýja flokkinn sem er runnin undan rifjum Guðmundar Steingrímssonar og Heiðu Kristínar Helgadóttur.  


Hann uppfyllir stærsta skilyrðið sem ég set fyrir stuðningi við stjórnmálaflokk eða stjórnmálamanneskju því hann er Evrópusinnaður.


Eflaust á ég samleið með Bjartri framtíð í fleiri málum en ég á eftir að rýna í stefnuna og kannski er hún ekki öll orðin ljós ennþá.  


Ég vil óska þessum flokki og þeim sem að honum standa, alls hins besta og mér finnst nafnið á honum alveg eins geta verið Ferskur andvari því hann virkar þannig á mig.


En þetta er ekki "má ég vera memm" færsla.  Ég hef ekki lengur neinn persónulegan metnað í pólitík og er einungis áhugamaður um jafnt og réttlátt samfélag.


Og mér líður sæmilega þar sem ég er.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?