ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Björgvin Valur

Björgvin Valur

Björgvin Valur Guðmundsson er viðkvæm sál að austan. Krati, feministi, frjálshyggjumaður, sósíalisti, náttúrverndarsinni og margt fleira. Stundum ringlaður.

  • Þjóðaratkvæðagreiðsla um kvótann

    14. maí 2012

    Forsetinn hefur af alkunnri lýðræðisást, talað um þjóðartkvæðagreiðslu vegna kvótafrumvarpsins.  Ég er sammála honum í því að það sé rétt að fyrirkomulag auðlindanýtingar skuli vera afgreitt þannig en ég held að þá ætti líka að ganga lengra og spyrja tveggja spurninga.


    1.  Vilt þú að allar fiskveiðiheimildir verði innkallaðar og þær síðan leigðar á markaði árlega?


    2.  Vilt þú að fiskveiðiheimildum verði úthlutað til 10 ára í senn og fyrir þær greitt sanngjarnt auðlindagjald?


    Inn í þessar spurningar mætti svo bæta tölum um aflahlutdeild og leiguprósentu.


    Þeim yrði síðan svarað með já eða nei.


    Ég meina, það getur ekki nokkur lýðræðissinnuð manneskja verið á móti þessu.

    Skrifa athugasemd

  • Lyginni líkast

    10. maí 2012

    Annað hvort hefur Síminn stóraukið þjónustu sína á Stöðvarfirði, og ef til vill í öðrum smáplássum einnig, eða þá að hann er vísvitandi að ljúga íbúa staðarins til fundar við sig á Reyðarfirði.  


    Þessi auglýsing datt inn um póstlúgurnar hjá okkur í morgun:



    Þarna er er fólki boðið að koma í Molann (jebb, sjoppan heitir það) á Reyðarfirði til viðræðna um fjölbreytt úrval sjónvarpsstöðva og VOD - kvikmyndaleigu Símans.  


    Við höfum fram til þessa ekki fengið mjög fjölbreytt úrval sjónvarpsstöðva og VODið þekkjum við ekki nema af afspurn úr stærri byggðalögum.


    Svo annað hvort ber okkur að fagna því að Síminn sé að fara að auka við okkur þjónustuna eða yppta öxlum eina ferðina enn yfir innihaldslausum auglýsingum sem hingað berast.


    Spennan er óbærileg.

    Skrifa athugasemd

  • Sjálfsgreiningarheilkennisminnimáttarkenndin

    7. maí 2012

    Nú er þrasað um það hvort sé helsta einkenni Íslendinga; sú árátta að elta uppi opnanir og tilboð í stórum hjörðum eða hitt að gera lítið úr þeim sem láta sig ekki vanta þegar gott verð er annars vegar.


    Ég er á því að hvorugt þessara fyrirbæra sé það sem einkennir okkur mest.


    Það sem helst er áberandi í fari okkar, er sú árátta að þrasa um og reyna að greina hvort einkenni okkur meira að mæta við verslunaropnanir eða fyrirlíta það að mæta á slíka viðburði.


    Sumsé; það sem er mest áberandi í fari okkar er greinilega sjálfsgreiningarheilkennisminnimáttarkenndin.


    Veit einhver hvað hekkklippurnar verða lengi á tilboði í Bauhaus?

    Skrifa athugasemd

  • Grundvallar þekkingarleysi stjórnar SSA

    23. apríl 2012

    Stjórn SSA samþykkti þetta á fundi um daginn:


    „Stjórn SSA gerir alvarlegar athugasemdir við þá mismunun sem gerð er milli minni og stærri sveitarfélaga hvað varðar kostnað vegna háhraðatenginga. Á sama tíma og meiri áhersla er lögð á fjarvinnsluverkefni, fjarnám og viðskipti á netinu skýtur það skökku við að minni sveitarfélög skuli þurfa að bera umtalsverðan kostnað af því sem í stærri sveitarfélögum heitir „uppfærsla“ og er þeim að kostnaðarlausu. Sveitarfélögum er nauðugur sá kostur að taka þessum afarkostum enda vandséð hvernig þau geta ætlað íbúum og fyrirtækjum að sitja ekki við sama borð og aðrir landsmenn þegar kemur að nettenginum.


    Stjórn SSA beinir þeim tilmælum til Símans hf. að fyrirtækið endurskoði þessi kjör og tryggi þannig sem jafnastan aðgang landsmanna að nettengingum“.


    Þarna gerir stjórn Sambands sveitarfélaga á Austurlandi ekki greinarmun á sveitarfélagi og byggðarlagi, því auðvitað ætti að standa byggðarlaga í þessari ályktun í stað sveitarfélaga.  Ég geri þá lágmarkskröfu til stjórnar SSA að hún þekki muninn á þessu tvennu.


    Því er nefnilega þannig háttað að innan "stórra" sveitarfélaga, eru litlir byggðakjarnar sem ekki fá sömu þjónustu og stærri kjarnar hvað fjarskipti varðar.  En kannski liggur skýringin á orðalagi bókunarinnar þar; forsvarsmenn stórra sveitarfélaga láta sér í léttu rúni liggja hagsmuni minni byggðakjarna og hafa ef til vill ekki hugmynd um það hvernig þessum málum er þar háttað.


    Ég hef milljón sinnum talað um þetta við stjórnmálamenn á öllum stigum og úr flestum flokkum en enginn þeirra virðist hafa áhuga á að ganga í þetta mál og leysa það en það er aftur á móti til nóg af svona ályktunum eins og þeirri hér að ofan.


     Mikið yrði nú gaman ef sveitarfélögin beittu sér í þessu af einhverri alvöru fyrir sína byggðakjarna; þá kannski skoðar maður að skrifa undir áskorun um Norðfjarðargöng.

    Skrifa athugasemd

  • Tíbet

    20. apríl 2012

    Skrifa athugasemd

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?