Haukur Már Helgason ritar fróðlegt yfirlit yfir þanka Anders Behring Breivik.
Ég biðst afsökunnar á bloggleti til langs tíma - og að birtast svo með tilvísun í annan mann - en þessi grein sýnist mér ómissandi upphaf á þeirri greiningu og umfjöllun sem þarf að fara fram.
Úr niðurlagi greinarinnar:
Tveir þriðju hlutar ritsins hans eru alveg samhljóða stórum hluta þeirrar samræðu sem blasir við okkur á íslenskum bloggþráðum dag hvern. Það er veigamikill munur þar á, að flestir þeir, hérlendis og erlendis, sem tala svona eru bara að tala svona. Þetta er allt í kjaftinum á þeim. Segja femínasistar, en líta ekki í raun svo á að krafan um launajöfnuð eða frelsi undan nauðgunum ígildi útrýmingarbúðum. Þeir munu ekki fylgja orðum sínum eftir með því að stofna reglu musterisriddara til að slátra unglingum í sumarbúðum. Það er gott. Það getur hins vegar verið æfing fyrir vitsmunalífið að horfast í augu við afleiðingar orða sinna, eins og maður meinti þau. Ef þú jafnar femínistum við nasista, ef þú segir þá sem þiggja atvinnuleysisbætur vera plágu, velferðarkerfið tilræði við þjóðina, ef þú segir þátttöku í Evrópusambandinu vera svik eða landráð, ef þú segir múslima fela í sér ógn við tilveru þína og þinna – hvaða rökrænu ályktun gæti einhver dregið af þessum forsendum? Ertu viss um að málstaður þinn sé svo óyggjandi að þú sért tilbúin(n) að taka ábyrgð á niðurstöðunni?
Við eigum ekki að hætta að tala. Við eigum ekki að óttast afleiðingar þess að skjátlast þegar við veltum vöngum, skiptumst á skoðunum – tökum stórt upp í okkur þess vegna. En sumt, raunar nokkuð margt, af því sem fengið hefur að fljóta á síðustu árum, ekki síst um þessa tvo hópa, femínista og múslima, hefur bara ekki innihaldið neitt nema óbeit. Ekkert vit. Engan skilning. Enga þekkingu. Bara styggð. Það má gera margt þarfara við orð. Við heilt málsamfélag.
Blogg
Haukur Már greinir Breivik
10:15 › 25. júlí 2011
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
