ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Baldur McQueen

Baldur McQueen

Baldur McQueen starfar við aðhlynningu ungmenna (12-18 ára) sem flúið hafa heimalönd sín, án foreldra, vegna ofbeldis, hernaðarbrölts og/eða pólitískra ofsókna. Hálfur Skoti og Íslendingur restina. Bjó lengst af á Akureyri, en er nú búsettur í úthverfi Leeds, ásamt konu, þrem börnum og fjórum naggrísum.
baldur@baldur.org

Sorgarsaga fjölmiðils

23:25 › 12. júlí 2011

Hneyksli vegna hleranna vikublaðsins News of the World eru hér í öllum fréttum, sem vonlegt er.  Lengi hefur blaðið legið undir grun um ósiðlegar aðferðir við fréttaöflun, en þá fyrst hófst fárviðrið þegar upp komst um hleranir á talhólfi Milly Dowler, 13 ára stúlku sem myrt var í mars 2002, en lík hennar fannst um sex mánuðum síðar.
Blaðamenn NoW eyddu m.a. út skilaboðum svo pláss væri fyrir fleiri og vöktu þannig falskar vonir um að stúlkan væri enn á lífi.

"...police detectives discovered that journalists had deleted some messages – potential evidence – in Dowler's voicemail box because it was full; that freed up space for new messages, which they could listen to. The deletions misled family and friends into thinking that Dowler was still alive."
(Wikipedia, Milly Dowler - sótt 11.07 2011)

Mál Milly virðist þó aðeins toppurinn á ísjakanum, því daglega berast fréttir af nýjum fórnarlömbum NoW.

Það er fyllilega skiljanlegt að málið veki athygli í Bretlandi - því það teygir anga sína um allt samfélagið.

Eitt af því sem rætt er um, er ábyrgð slúðurþyrstra neytenda.  Blaðið hefur verið eitt vinsælasta vikublað Bretlands í áratugi - og hefur náð þeim árangri með áherslu á sorpblaðamennsku.

"It had a reputation for exposing national or local celebrities as drug users, sex freaks or criminals, setting up insiders and journalists in disguise to provide either video or photographic evidence, and phone hacking in ongoing police investigations."
(Wikipedia, NoW - sótt 11.07 2011)

Fyrrum blaðamaður NoW gerði lítið úr þessu í nýlegu sjónvarpsviðtali og sagði slúðrið mikilvægt til að byggja upp lesendahóp, sem læsi síðan - kannski bara óvart - "vönduðu fréttirnar" líka.  

Kannski það sé rétt.  En það segir þá sitt um breskt samfélag ef eina leiðin til að koma fróðleik til fjöldans, sé að fela hann milli sorafrétta af ýmsu tagi.

UPPHAFIÐ
Sú sorgarsaga sem fjölmiðlar liggja nú yfir, hófst síðla árs 2005.  Þá fjallaði NoW um læknismeðferð sem William prins þáði og aðeins örfáir aðilar höfðu vitneskju um.  Grunur vaknaði um hleranir á talhólfi William og rannsóknarlögregla Scotland Yard var kölluð til.

Í ágúst, 2006, var Clive Goodman, blaðamaður NoW handtekinn vegna málsins - og Andy Coulson, þáverandi ritstjóri birti síðar opinbera afsökunarbeiðni hvar "frumhlaup" Goodman var fordæmt.

Í framhaldinu rannsakaði PCC (Press Complaints Commission) málið, en PCC er nefnd skipuð talsmönnum stærstu útgefenda Bretlands - og hlutverk hennar er að meta kvartanir sem berast vegna starfa fjölmiðla.  

Nefndin birti úrskurð sinn um mitt ár 2007, en þar var Goodman gagnrýndur fyrir hleranir - og tekið skýrt fram að ekkert benti til þess að hærra settir á blaðinu hafi vitað af málinu.  

Sem sagt; einstakt tilfelli, hvar óheiðarlegur blaðamaður blekkti vinnuveitanda sinn.

CAMERON RÆÐUR COULSON
Tæpum mánuði eftir úrskurð PCC (maí, 2007) réð David Cameron, leiðtogi þáverandi stjórnarandstöðu, Andy Coulson til starfa sem fjölmiðlafulltrúa - en honum var ætlað það merka hlutverk að endurhanna ímynd Íhaldsflokksins, fyrir komandi kosningar.  Coulson þáði litlar 75 milljónir í árslaun fyrir sitt framlag (núvirt).

Eitthvað var ákvörðunin gagnrýnd, innan flokks sem utan, en stuðningsmenn Cameron vísuðu í úrskurð PCC og náðu að þagga niður mesta hávaðann.  Lífið hélt áfram sinn vanagang.

FORSÍÐUEFNI ENN Á NÝ
Það er svo ekki fyrr en ríflega tveim árum síðar, eða í júlí 2009, sem vandræði NoW komast aftur á forsíður.  Blaðamaður Guardian, Nick Davies, upplýsti þá að News Group (eigandi NoW, gegnum News International) höfðu greitt ríflega eina milljón punda til að þagga niður í fórnarlömbum hleranna.

Davies hafði einnig eftir heimildamönnum að NoW hefði hlerað þúsundir farsíma og fórnarlömb mætti finna í flestum stéttum bresks samfélags.

Viðbrögðin við uppljóstrunum Davies voru fyrirsjáanleg, hvað NoW varðaði.  Staðhæfingum hans var hafnað.  Alfarið.  Lögreglan tók í sama streng; rannsóknin var framkvæmd af reynslumiklum lögreglumönnum, frekari sannanir hafa ekki fundist og því óþarfi að rannsaka málið að nýju (John Yates, MET 09.07 2009).

Umfjöllun Davies varð þó til þess að Yates, Coulson (þá fjölmiðlafulltrúi Cameron) og Les Hinton, fyrrum stjórnarformaður News Corp, voru kallaðir fyrir þingnefnd (Culture, Media and Sports Committee), hvar þeir endurtóku sömu rulluna - ekkert óeðlilegt við störf blaðamanna NoW.

Örfáum mánuðum síðar (nóvember, 2009) birti PCC enn úrskurð um málið, og var sá nokkuð samhljóma hinum fyrri - en nú var töluvert harkalega vegið að Guardian og látið í það skína að þar færi hinn raunverulegi slúðurmiðill.

Í febrúar, 2010, birti svo áðurnefnd þingnefnd (CMSC) álit sitt - en nefndin taldi sérlega vafasamt að Goodman hafi stundað hleranir án vitneskju vinnuveitandans.

Það sem eftir lifði árs birtust reglulega upplýsingar um hleranir og "sættir" hvar NoW hafði greitt háar fjárhæðir til að komast hjá málaferlum.  Fyrrum blaðamaður, Paul McMullan, viðurkenndi þá í viðtali við Guardian að hleranir - og aðrar ólöglegar aðferðir við gagnavinnslu - væru stundaðar af miklu kappi hjá miðlinum (08.09 2010).

Í kjölfar þessa krafðist fyrrum varaforsætisráðherra, John Prescott, að farið yrði yfir störf Scotland Yard, en Prescott efaðist um að lögreglan hefði staðið sig sem skyldi við rannsókn málsins.

NAUÐVÖRN - COULSON HÆTTIR
Þegar hér er komið við sögu - í lok árs 2010 - virðast stjórnendur NoW vera komnir í nauðvörn.  Sífellt fleiri fréttir berast af ólöglegum aðferðum blaðamanna - og stöku starfsmenn sem tengjast slíku eru reknir.

Eftir því sem fleiri fréttir bárust af siðleysinu innan NoW - jókst síðan þrýstingurinn á David Cameron, sem "lenti í því" að ráða Andy Coulson, fyrrum ritstjóra blaðsins, sem fjölmiðlafulltrúa.  Dómgreind Cameron var, eðlilega, dregin í efa.

Andy Coulson sagði síðan upp starfi sínu sem fjölmiðlafulltrúi Cameron, í janúar 2011.  Allt of seint, að margra mati.

BOLTINN RÚLLAR - HÓTANIR MURDOCH
Næstu mánuði halda sönnunargögn áfram að hlaðast upp - og gagnrýni á störf lögreglunnar verður háværari.  
Þingmaðurinn Chris Bryant - sjálfur fórnarlamb hleranna - upplýsti þá um það í þingsölum að "félagi Rupert Murdoch" hefði ráðið breskum þingmönnum frá því að fjalla um hlerunarmál NoW á þinginu. 

Í upphafi aprílmánaðar, 2011, eru tveir fyrrum starfsmenn NoW handteknir fyrir hleranir - og nokkrum dögum síðar biðst blaðið opinberlega afsökunnar á átta hlerunum og því heitið að skaðabætur verði greiddar í afmörkuðum tilfellum.  
Fleiri starfsmenn voru handteknir á næstu vikum.

ENDALOK NOW - MÁL MILLY DOWLER
Endalok NoW voru síðan innsigluð fyrr í þessum mánuði (04.07 2011), þegar Guardian birti fréttir þess efnis að blaðamenn NoW hleruðu talhólf Milly Dowler, ungrar stúlku sem myrt var árið 2002.  Þar má segja þolinmæði landans hafi þrotið - fullkomlega.  
Þáverandi ritstjóri NoW, Rebekah Brooks, hefur ekki átt sjö daganna sæla síðan, en hún starfar nú sem forstjóri News International.  Samkvæmt upplýsingum sem leikarinn Hugh Grant aflaði, í apríl 2011, þykir líklegt að Rebekah hafi vitað af siðlausum vinnubrögðum blaðamanna í Dowler málinu.

Fjórum dögum síðar birtust svo ásakanir um að símar hafi verið hleraðir hjá ekkjum sem misstu menn sína í íraksstríðinu - og fleira kræsilegt í svipuðum dúr.  James Murdoch (sonur Rupert), tilkynnti samdægurs (07.07 2011) að útgáfu NoW yrði hætt.  

Mikil gleði greip um við þessa tilkynningu; menn slógu því jafnvel fram að samtakamátturinn hefði knésett Murdoch.  En svo fór að leka í fjölmiðla að búið væri að taka frá lénið sunonsunday.co.uk, en þar er líklega komið hið nýja News of the World.  Það á sem sagt að varalita svínið og skipta um nafn.  Það er allt og sumt. 

Daginn eftir tilkynninguna um lokun NoW var Andy Coulson, fyrrum fjölmiðlafulltrúi David Cameron, handtekinn.

BSKYB - ÁGIRND MURDOCH
Fyrir Murdoch feðganna er núverandi ástand óþolandi.  News of the World skipti þá kannski ekki öllu máli - en hneykslið í kringum vikublaðið hefur undið upp á sig og gert þeim erfitt um vik að taka yfir BSkyB, en fyrirtæki þeirra, News Corp. á þegar tæp 40% í þeirri fjölmiðlasamsteypu.  

Áður en fréttirnar af Milly Dowler birtust, leit út sem fátt gæti stöðvað Murdoch í að kaupa þau 60% sem upp á vantaði til að eignast fyrirtækið að fullu.  Stjórnmálamenn virtust sæmilega sáttir við kaupin (utan Vince Cable, líkt og menn muna) og flest benti til að málið rynni í gegn án teljandi vandræða.

Svo sprakk sprengjan - og Murdoch er í hvínandi vandræðum.

EFTIRLEIKURINN
Það er í sjálfu sér ómögulegt að segja til um hvaða áhrif þetta hneykslismál mun hafa í Bretlandi - en ljóslega verða afleiðingar.

Fyrr í dag yfirheyrði þingnefnd fjóra fyrrum og núverandi yfirmenn Scotland Yard.  Þar eru fjarri því öll kurl komin til grafar.  Nick Davies fer stórvel yfir þann þátt í myndbandi á vef Guardian.

Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokks, heldur áfram að berja á David Cameron vegna málsins og fjölskylda Milly Dowler hefur kallað eftir því að Rebekah Brooks segi af sér sem forstjóri News International.

Hin óhæfa fjölmiðlanefnd (PCC), verður lögð niður - sem vekur þá upp ótta um hvað muni taka við.  Munu stjórnvöld notfæra sér þetta tækifæri og reyna múlbinda fjölmiðla á einhvern hátt?

Kauptilboði í BSkyB hefur verið vísað til samkeppnisyfirvalda - og stjórnmálaflokkar virðast vera ná saman um að hvetja Murdoch til að láta af frekari áformum um yfirtöku fyrirtækisins.  

Slíkt hefði verið óhugsandi fyrir aðeins örfáum dögum.



ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?