Leita
Áskrift | Fréttaskot | Auglýsingar Reykjavík: 12.9° 2m/s NE

  • Nú kemur Dagur

    8. mars 2009

    Ingibjörg er hætt, þrátt fyrir yfirlýsingar um annað í þætti Sölva Tryggvasonar í gærkvöldi. Skjótt skipast veður í lofti. Ætli hún hafi fengið slæm tíðindi frá læknum? Ég vona ekki.

    Hvorki Össur né Jóhanna segjast ætla í formanninn. Dagur B. gaf kost á sér í varaformanninn. Vildi ekki í formanninn vegna þess að hann studdi Ingibjörgu. Liggur ekki beint við að hann taki nú við? Ég spái því að Dagur tilkynni á morgun um framboð sitt til formennsku.
    Ég er nokkuð viss, jafnvel þó ég sé alla jafna afleitur spámaður. Held að Jón Baldvin verði seint formaður.

    4 athugasemdir

  • Sjö bæjarstjórar!

    3. mars 2009

    Á höfuðborgarsvæðinu eru allavega sjö sveitarfélög, eftir því hvernig höfuðborgarsvæðið er skilgreint. Það eru Mosfellsbær, Reykjavík, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Hafnarfjörður og Álftanes. Það þýðir að á þessu litla svæði eru sjö bæjar- eða borgarstjórar, sjö bæjar- eða borgarstjórnir og sjö bæjarráð. Svona mætti örugglega lengi telja.

    Ég veit að margir hafa lífsviðurværi sitt af því að vinna þessi störf. Á tímum hagræðnigar er þó ekki hægt annað en að velta því fyrir sér hversu margar milljónir eða öllu heldur hversu mörg hundruð milljónir mætti spara ef sveitarfélögin sjö yrðu sameinuð. Hefur þetta aldrei verið rætt af alvöru?

    Skrifa athugasemd

  • Hikstalaus lygi Árna

    2. mars 2009


    Leitt fannst mér að sjá Árna Mathiesen, fráfarandi þingmann, ljúga því blákalt að fréttamanni Vísis að hann væri ekki hættur við að fara í framboð, eins og heimildir Vísis hermdu. Fáeinum mínútum síðar sendi Árni frá sér tilkynningu um að hann ætlaði ekki að sækjast eftir endurkjöri til þingmennsku. Hann valdi að ljúga. Auðvelt hefði verið fyrir Árna að segja við Vísi að hann væri að leggja lokahönd á tilkynningu um framtíð sína. Hún væri væntanleg innan fárra mínútna. Þess í stað kaus hann að ljúga að þjóð sinni, sem hefur kosið hann til setu á Alþingi í 18 ár.


    2.464 einstaklingar voru í byrjun desember spurðir af MMR hve mikið traust þeir bæru til áberandi einstaklinga í þjóðfélaginu. 78 prósent sögðust bera lítið traust til Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra og Árna M. Mathiesen, þá fjármálaráðherra. 68 prósent sögðust bera lítið traust til Björns Bjarnasonar. Á einum mánuði hafa þessir þrír menn allir þurft að víkja úr stólum sínum, með góðu eða illu. Vikan, sem nú er að renna sitt skeið, virðist því hafa verið meginþorra landsmanna ánægjuleg, í það minnsta hvað þetta varðar. Ætli ástæðuna fyrir óvinsældum Árna megi að einhverju leyti rekja til þess hversu hikstalaust hann er fær um að ljúga að þjóðinni?

    Pressupistill í helgarblaði DV.

    5 athugasemdir

  • Hrollvekjandi frétt!

    19. febrúar 2009

    Maður fær hroll við að lesa frétt Eyjunnar um Haga, sem áður tilheyrðu Baugi. Baugur er nú í greiðslustöðvun og tvísýnt er um hvort félagið geti greitt skuldir sínar.

    "Hugsanlegt er að smærri íslensk fjármálafyrirtæki, sem lánað hafa Baugi stórar fjárhæðir, krefjist þess að fá systurfyrirtækið Haga, sem rekur Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf og fleiri verslanir, upp í skuldirnar geti Baugur ekki greitt þær."
    Nú er verið að kanna hvort rifta megi sölu Haga úr Baugi á síðasta ári.

    Störf mörg þúsund Íslendinga, sem hjá þessum fyrirtækjum starfa, eru í hættu. Vonandi tekst nýjum eigendum að halda rekstrinum áfram, ef af þessum ósköpum yrði.

    Undir Haga fellur Bónus, Hagkaup, 10-11, Útilíf, Zara, Debenhams, Topshop, Coast, Evans, Dorothy Perkins, Oasis, Karen Millen, All Saints, Day og WarehouseJafnframt eiga Hagar innkaupafyrirtækin Aðföng, Hýsingu, Banana, BT, og Ferskar kjötvörur.

    Skrifa athugasemd

  • Krónískur fjörfiskur!

    13. febrúar 2009

    Hef verið með stöðugan fjörfisk í vinstra augnloki í tvo daga. Það var bærilegt fyrstu fimm mínúturnar. Síðan hefur það verið óbærilegt. Hvað veldur þessum fjanda??

    1 athugasemdir




© 2010 DV ehf. - Allur réttur áskilinn