Leita
Áskrift | Fréttaskot | Auglýsingar Reykjavík: 13.2° 2m/s ENE

  • Stebbi Fr. kýs ekki XD!

    10. apríl 2009

    Ekki hélt ég að ég myndi lifa þann dag að ofurbloggarinn ágæti Stebbi Fr. myndi snúa baki við SjálfstæðisFLokknum. Hann hefur verið málsvari flokksins til fjölda ára og stutt hann í gegn um súrt og sætt.

    Í dag urðu því mikil tímamót þegar hann lýsti því yfir að hann myndi ekki kjósa FLokkinn að óbreyttu. Hann vill að þeir sem voru við völd í flokknum, á þeim tíma sem styrkirnir voru fengnir, víki. Þorgerður Katrín hlýtur að vera þar á meðal, þar sem hún hefur verið varaformaður frá 2005.
    Orðrétt segir Stefán meðal annars:

    "Ég get ekki hugsað mér að styðja Sjálfstæðisflokkinn að þessu sinni nema það fólk sem hefur brugðist flokksmönnum [ath. ekki þjóðinni] og verið staðið að sukki og svínaríi sé sparkað út. Nóg er komið af þessu helvítis kjaftæði og þörf á vorhreingerningu."

    Fátt bendir til þess að þessi vorhreingerning muni fara fram. Til hvaða liðs ætli þessi kraftmikli bloggari fari nú?

    2 athugasemdir

  • Þeim yrði bumbult

    9. apríl 2009

    Fór á Draumalandið í Smárabíó í kvöld. Myndin er stórbrotin. Átakanlegastur þótt mér kaflinn þar sem bæjarstjórinn í Fjarðabyggð (eða Reyðarfirði) kom við sögu. Hann er sá sem skrifaði undir samninga við Alcoa fyrir hönd bæjarfélagsins. Hætti svo sem bæjarstjóri og fór í þægilega og örugglega vel borgaða skrifstofuvinnu hjá Alcoa, samkvæmt myndinni. Honum virtist ekki líða vel þegar hann var spurður út í þá ráðstöfun.

    Hef verið að velta fyrir mér framtíðaratvinnuhorfum Íslands undanfarið, eins og flestir örugglega. Fylgismenn stóriðju hafa vænt andstæðinga um að vera alltaf á móti öllu. Hafa spurt hvað sé svo sem annað í boði en stóriðja. Ég sé eina raunhæfa lausn.

    Nær allir byggðarkjarnar á Íslandi hafa sprottið upp vegna nálægðar við gjöful fiskimið, fyrir utan Selfoss og Egilsstaði kannski. Eftir því sem kvótinn hefur færst á færri hendur hefur stoðunum smám saman verið kippt undan sjávarþorpunum, hægt en bítandi. Fólki fækkar stöðugt og reglulega heyrum við fréttir af lokun rótgróinna verksmiðja í sjávarþorpum.

    Nú þegar hver einasti fiskur í sjónum hefur verið veðsettur aftur í sporð og veldi kvótakónga virðist að hruni komið hefur verið bent á að nú gefist nýrri ríkisstjórn einstakt tækifæri til að yfirtaka kvótann og gefa upp á nýtt. Því er ég fylgjandi. Ríkið á ekki að dæla peningum í núverandi kerfi, bara til að halda því lifandi. Til þess eru skuldirnar of miklar að mínu viti.

    Fyrir mér felst eina alvöru von sjávarbyggðanna á landsbyggðinni í því að veiða fiskinn úr sjónum og nýta þá auðlind sem í hafinu finnst hringinn í kringum landið. Það þarf að endurreisa smábátaútgerðina. Árið 1993 voru tæplega 1.500 smábátar á veiðum við landið. Í fyrra voru þeir 715 eftir því sem ég kemst næst. Mér finnst að stórnvöld ættu að stokka kerfið upp og binda það í lög að fiskur sé unninn (að hluta eða öllu leyti) þar sem hann er veiddur. Fjölmörg afleidd störf myndu þá skapast til viðbótar við sjálf sjómannsstörfin.

    Fyrsta skrefið væri að gefa handfæraveiðar frjálsar þannig að vinnufúsir þurfi ekki að þola lengur það ömurlega hlutskipti að standa á hafnargarðinum í heimabænum sínum, horfa yfir gjöfult hafið og mega ekki draga bein úr sjó til að skapa sér lífsviðurværi. Ég er viss um að mörgum forfeðrum okkar væri orðið bumbult á því að snúa sér í gröfunum, ef þeir vissu hvernig fyrir þorpunum okkar er komið.

    2 athugasemdir

  • FL-lánið!!!

    9. apríl 2009

    "Geir segist einn bera ábyrgð á viðtöku FL lánsins"

    Las frétt undir þessari stórkostlegu fyrirsögn á amx.is. Hafði mjög gaman að...

    1 athugasemdir

  • Gordon og Geir - mynd

    6. apríl 2009

    Mér finnst gott hjá Össurri að segja við Gordon Brown að hann kæri sig ekki um myndatökur þegar þeir eigi stórmál eins og Icesave órædd, eða hvernig sem hann orðaði það. Gaf honum allavega langt nef. Ætli Geir myndi stilla sér upp með Gordon nú, eins og hann gerði fyrir ári síðan, þegar þessi mynd var tekin?

    Skrifa athugasemd

  • Sungið þó skipið sökkvi

    2. apríl 2009

    Þó það hafi verið lúmskt gaman að sjá Árna Johnsen syngja í ræðustóli Alþingis í gærkvöldi (dv.is), þá fellur það í skuggann á þeirri staðreynd að sjálfstæðismenn kusu að tala í þrjá klukkutíma um styrki vegna kvikmyndagerðar á Íslandi. Svona rétt til að tefja fyrir því að brýnustu málin nái fram að ganga. Enginn annar flokkur kvaddi sér hljóðs en frumvarpið var samþykkt af öllum þingmönnum, líka sjálfstæðismönnum! Málþóf vegna svona máls finnst mér eiginlega svívirðilegt, á tímum sem þessum.

    Ég sé á mbl.is að Arnbjörg Sveinsdóttir, ein þeirra sem flutti ræðu um kvikmyndafrumvarpið, kvartaði yfir fundarstjórn forseta, skömmu eftir miðnættið. Hún mótmælti því að þingfundur stæði fram yfir miðnætti.

























    23:20 Árni Johnsen<--





    1 athugasemdir




© 2010 DV ehf. - Allur réttur áskilinn