Leita
Áskrift | Fréttaskot | Auglýsingar Reykjavík: 12.9° 2m/s NE

  • Kaldrifjuð aftaka

    9. desember 2008

    Þetta er fyrsta rjúpan sem ég náði þetta haustið. Ég náði ekki mörgum þennan daginn en þessi stund var engu að síður sú besta sem ég upplifði í nóvember. Þetta var að morgni þess sjötta.

    Ég var staddur á heimaslóðum, án gsm, msn og dvd. Fjarri kreppu og svikinna loforða, langt frá spillingarfnyk og verðbólgu. Þetta var dásamlegur dagur. Forréttindi að geta kúplað sig út með þessum hætti. Endurnærandi.

    Kaldrifjuð aftaka hjálparvana dýrategundar eða gangur lífsins, hvað segið þið?

    3 athugasemdir

  • Glitnir um Glitni frá Glitni til Glitnis

    29. nóvember 2008

    "Glitnir lánaði Glitni til að kaupa bréf Glitnis í Glitni og FL-group."

    Þessa fyrirsögn má finna á Vísi

    Er þetta ekki útrásin í hnotskurn?

    Skrifa athugasemd

  • Hugprúð hetja!

    23. nóvember 2008

    Þetta er hugrakkasti maður sem ég hef séð í áraraðir. Í þrjú ár glímdi hann við ólæknandi krabbamein. Til síðasta dags barðist hann fyrir því að heimilislausir fengju að borða. Hann tók grátlegum örlögum sínum af slíku æðruleysi og hugprýði að annað eins hef ég ekki séð.

    Sjá hér:

    http://edition.cnn.com/video/#/video/us/2008/11/22/jaffe.wa.boy.dying.wish.obit.komo

    eða hér:

    http://www.dv.is/frettir/2008/11/23/hinsta-osk-11-ara-krabbameins-sjuklings-var-uppfyllt/

    Skrifa athugasemd

  • Betlari barði að dyrum

    16. nóvember 2008

    Um hádegisbil í gær var barið að dyrum hér heima. Úti stóð maður á miðjum aldri, í snjáðum lopavetlingum og gamalli, grárri úlpu.

    Hann bauð góðan dag og spurði mig svo hikandi hvort ég ætti nokkuð tómar flöskur eða dósir aflögu.
    Ósjálfráð viðbrögð voru þau að spyrja fyrir hverju hann safnaði, eða á hverra vegum hann væri. Áður en ég missti slíkar vangaveltur út úr mér áttaði ég mig á því að hann var á eigin vegum. Líklega að safna fyrir reikningum eða mat út mánuðinn. Ég ákvað því að spyrja einskis, sagðist örugglega geta fundið eitthvað til, fór inn í geymslu og sótti allar dósir sem ég átti. Það minnsta sem ég gat gert.

    Þakklætið þegar ég fyllti hjá honum svarta ruslapokann var ósvikið. Vonandi fékk þessi hugrakki maður nóg af flöskum þennan dag. Gott hjá honum að bjarga sér.

    Þetta er líklega enn ein birtingarmynd kreppunnar.

    1 athugasemdir

  • Hvert fer peningurinn?

    14. nóvember 2008

    Margt í þessum heimi skil ég ekki. Þetta er eitt af því:

    Bankinn minn fékk lánaðan pening í útlöndum.
    Hann lánaði mér svo pening og ég borgaði honum í hverjum mánuði.
    Bankinn fór svo á hausinn og útlönd töpuðu láninu.
    Nýi bankinn rukkar mig enn um peninginn og ég borga í hverjum mánuði.
    Hvert fer peningurinn?

    Í einfeldni minni bar ég þetta undir gamla þjónustufulltrúann minn í nýja bankanum. Þegar þögnin var orðin þrúgandi þakkaði ég fyrir mig og fór í Bónus. Vantaði mjólk.

    Kann einhver svarið?

    1 athugasemdir




© 2010 DV ehf. - Allur réttur áskilinn