
Fréttavefur DV varð fyrir árás tölvuþrjóta
Síðdegis í gær varð fréttavefurinn DV.is fyrir fólskulegri árás tölvuþrjóta sem nýttu sér veikleika í hugbúnaði á vefþjóni sem notaður var til að birta auglýsingar á vefnum. Árásin átti sér stað kl.17:40 síðdegis í gær og virðist hafa átt upptök sín á vesturströnd Bandaríkjanna. Í nótt virðist svo sem að veiru hafi verið komið fyrir á vefþjóni sem heldur utan um vef blaðsins og fóru þá um leið í gang viðvörunarbjöllur í varnarkerfum hýsingaraðila vefsins. Brugðist var skjótt við til að stöðva árás tölvuþrjótanna og strax í morgun var slökkt á vefþjóni þeim sem fyrir árásinni varð. Í kjölfarið var ákveðið að loka fréttavef DV í heild sinni á meðan að unnið er að því að lagfæra áðurnefnda veikleika. Þetta er eingöngu gert í öryggisskyni.
Staðfest hefur verið að þrjótarnir komust ekki inn í tölvur ritstjórnar DV og þær hafa ekki orðið fyrir vírussmiti. Hins vegar er þeim, sem fóru inn á vefinn dv.is á milli kl.17:40 í gær og 11:50 í morgun og vilja gæta fyllstu varúðar vegna vírussmits, bent á að skanna tölvur sínar með aðstoð vírusvarna. Hugsanlegt er að tölvuþrjótarnir hafi reynt að koma eins konar niðurhalsveiru fyrir á vefþjóni DV. Þeim notendum, sem eru með Windows XP, Windows Vista eða Mac OS og hafa ekki sett inn nýjustu öryggisuppfærslur, er ráðlagt að keyra veiruskanna til öryggis. Veiran hefur ekki áhrif á Windows 7. DV vill benda á eftirtalda veiruskanna sem hægt er að sækja á vefinn án endurgjalds:
Windows Live OneCare safety scanner http://onecare.live.com/site/en-US/default.htm
Fjölmargir notendur hafa í dag orðið varir við viðvaranir frá vöfrum sínum þegar þeir reyndu að fara inn á vefinn DV.is og jafnvel þegar farið var inn á síður með tenglum sem vísuðu inn á vef DV.is. Þessi skilaboð berast vegna öryggisviðbragða viðkomandi vafra, sem fóru í gang eftir að veirunnar varð fyrst vart og eru ekki hættuleg í sjálfu sér. Þeirri öryggisskráningu verður breytt um leið og staðfesting berst til viðkomandi vafra um að viðgerð sé lokið og komið hafi verið í veg fyrir að þetta endurtaki sig.
Frekari upplýsingar verða sendar út um leið og þær liggja fyrir.