Góðvinur minn Rúnar Helgi Vignisson er að senda frá sér nýtt smásagnasafn, Ást í meinum. Ég hef lesið nokkrar sögurnar í handriti og óhætt er að segja að smásögur Rúnars Helga eru grípandi og beinskeyttar auk þess að fjalla um efni sem flestum eru hugleikin, til dæmis samskipti kynjanna. Útgáfu bókarinnar verður fagnað í Eymundsson Skólavörðustíg klukkan 17, fimmtudag. Tilvalið að kíkja í miðbæinn eftir vinnu, rölta upp á Skólavörðustíg, þiggja veitingar og hlusta á eins og eina skemmtilega smásögu lesna upp.
Blogg
Spennandi útgáfuteiti
13. júní 2012 › 12:05
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
