Þetta hljómar eins og nafn á smásögu frá árinu 1959. En þetta er bara ómerkileg bloggfærsla.
Á Snorrabraut er fjöldi gistiheimila í ódýrari kantinum, á mótum gatna sem liggja inn í hina dulúðugu Norðurmýri. Heillandi íbúðahverfi sem í nútímaskilningi liggur nánast við miðbæinn en var kannski á sínum tíma álitið vera sálarlaust úthverfi eins og verstu ógeðin í Hafnarfjarðarhrauninu eða Kópavogi í dag.
Eflaust kostar næturgisting á Íslandi sitt, jafnvel á tveggja stjörnu smáhóteli við Norðurmýri. Í það minnsta hefur það gerst tvisvar undanfarið þegar ég hef komið hjólandi ofan úr Síðumúla eftir skriftir þar (fullkomlega misheppnaðar í fyrra skiptið og sæmilega heppnaðar í það seinna) í blautri og dauflýstri næturstillu, að ég hef hjólað framhjá manni á Snorrabraut sem gert hefur sér næturstað í biðstöðvarskýli. Þykkur svefnpoki, húfa á höfði. Allt hreinlegt, engin áfengisremma.
Ég sá ekki almennilega framan í þann sem svaf en ég geri ráð fyrir að þetta hafi verið sami maðurinn í bæði skiptin. Hafið þið séð hann? Nei, þið eruð líklega sofandi líka, heima hjá ykkur.
Blogg
Næturstaður
12:36 › 19. nóvember 2011
ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.



















Tvær af mikilvægustu frumreglum vestrænna lýðræðisríkja eru frjáls skoðanaskipti og lýðræðislegar kosningar. Það vill svo til að fylgismenn og meðlimir ríkisstjórnarflokkanna hafa helst gagnrýnt Ólaf Ragnar Grímsson fyrir þetta tvennt; ... 
