ÁskriftFréttaskot | Auglýsingar | Fyrir farsíma Reykjavík: 1.1° 0m/s Calm
Ágúst Borgþór

Ágúst Borgþór

Ágúst Borgþór Sverrisson hefur bloggað reglulega síðan vorið 2004 og vistað sig á hina ýmsu vefmiðla og bloggsvæði, nú síðast á Pressan.is. Ágúst Borgþór hefur jafnframt fengist við sagnagerð árum saman og sent frá sér fimm smásagnasöfn og eina skáldsögu. Næsta bók hans er væntanleg í haust. Ágúst Borgþór starfar ennfremur sem þýðandi og textasmiður hjá Skjal - þýðingastofu ehf. Hann er giftur, tveggja barna faðir og býr í Vesturbænum.

Sérstaða Ólafs Ragnars

15:41 › 4. júní 2010

Það er eitt sem gerir Ólaf Ragnar Grímsson alveg einstakan: Hann er líklega eini fyrrverandi þjóðhöfðingi heims sem er ennþá í embætti.

Þessa hugmynd má raunar lesa á milli línanna í mjög samtímalegum ljóðabálki eftir Anton Helga Jónsson í nýjasta tímariti TMM. Þar er altént orðalagið „forsetinn fyrrverandi“ á einum stað. Mikið af forvitnilegu efni í heftinu, m.a. gerir Hallgrímur Helgason grein fyrir Baugspennastimpli sínum, Guðni Elísson dregur þá ályktun af framtíðarskýrslu Viðskiptaráðs frá 2006 að hér hefði þjóðfélaginu öllu verið rústað ef bankarnir hefðu ekki hrunið haustið 2008; árið 2015 hefði m.a. verið búið að rústa menntakerfinu og tæma lífeyrissjóðina. Ég á að hluta ólesið Krataávarpið eftir Stefán Snævarr en þar ber hann meðal annars saman árangur af annars vegar óheftri frjálshyggju og hins vegar blönduðu hagkerfi víða um heim.

Mikið er gert úr enn einni vampírugreininni eftir Úlfhildi Dagsdóttur. Einhvern veginn finnst mér eins og að í hverju einasta TMM í gegnum árin hafi verið ein vampírugrein eftir Úlfhildi og eitt ljóð eftir Anton Helga, þó að auðvitað séu það ýkjur. Mig grunar að uppsláttur á vampírugreininni eigi að vera líking við gegnumgangandi stef í heftinu, að með því sé verið að líkja gerendum hrunsins við blóðsugur.

Þarna er líka kraftmikil smásaga eftir danska konu (er með heftið heima og man ekki nafnið); Mýbit heitir hún. Sú saga er líka mjög samtímaleg þó að með öðrum hætti sé en íslensku hrungreinarnar.

Margt fleiri spennandi efni í þessu tímariti og núna er ég kannski búinn að svekkja einhvern höfund með því að nefna hann ekki á nafn. Þið getið bætt úr því með því að skella ykkur á hefti. Það er hverrar krónu virði.





ATHUGIÐ Ritstjórn DV áskilur sér rétt til að eyða ærumeiðandi ummælum.

DV

Upplýsingar

Auglýsingar

Áskrift

© 2012 DV ehf. - Allur réttur áskilinn. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.

Gleymt lykilorð?