Aðsendar greinar

Aðsendar greinar

Hér eru birtar aðsendar greinar sem berast DV. Sumar þeirra hafa áður birst í blaðinu en aðrar ekki. Sendið greinar á baldur@dv.is, ásamt fullu nafni, starfsheiti og höfundarmynd.

Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands

16. júlí 2012 › 13:42

Stúdentaráð Háskóla Íslands vill koma því á framfæri við ríkisstjórn Íslands og þá sérstaklega mennta- og menningarmálaráðherra, velferðarráðherra og fjármálaráðherra að ráðið hefur þungar áhyggjur af fjármálum Háskóla Íslands.


Ljóst er að vegna mikilla efnahagsþrenginga hafa stjórnvöld óhjákvæmilega þurft að skera niður á öllum vígstöðvum og var menntakerfið þar engin undantekning. Háskóli Íslands hefur tekið á sig rúmlega 20 % niðurskurð frá árinu 2009 ásamt því að vera eini háskólinn sem fær ekki greitt með öllum þeim nemendum sem stunda nám við skólann. Nú er svo komið að í öllum deildum hefur verið skorið niður að þolmörkum og er þeim því  þegar sniðinn of þröngur stakkur.


Þó svo að metskráningu nýnema í Háskóla Íslands fyrir komandi skólaár beri að fagna, þá veldur það einnig miklum áhyggjum ef háskólinn mun ekki fá greitt með stórum hluta þeirra nemenda sem kjósa að stunda nám sitt við skólann.


Það er því einlæg ósk Stúdentaráðs að Háskóli Íslands fái greitt að fullu fyrir alla þá nemendur sem skráðir eru við háskólann líkt og raunin er hjá öllum öðrum háskólum landsins.


Ef stjórnvöld bregðast ekki við þessari bón háskólans í næstu fjárlögum er nokkuð ljóst að hann mun þurfa að setja sér strangar fjöldatakmarkanir fyrir næstu ár, en augljóst er að hverslags aðgangstakmarkanir munu leiða til verulegrar skerðingar á jafnrétti allra til náms. Háskóla Íslands ber skylda til að taka á móti öllum þeim sem vilja leggja stund á æðri menntun en augljóst er að gæði þeirrar menntunar munu dala talsvert í innlendum sem og alþjóðlegum samanburði ef háskólanum verður ekki sniðinn stakkur eftir vexti.


Þó svo að háskólinn hafi staðið sig vel og tekið á niðurskurðinum með skynsömum hætti er ekki langt í að slíkt fjársvelti verði stofnuninni ofviða. Stúdentaráð telur þann samfélagslega ávinning sem hlýst af því að setja fjármagn í menntakerfið mun veigameiri en þann sparnað er myndast við niðurskurð. Hlúa verður að brothættu menntakerfi og því biðlar Stúdentaráð til stjórnvalda að koma til móts við Háskóla Íslands á þessum erfiðu tímum.


 


 


Sara Sigurðardóttir


Formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands



Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.