fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Ætla að slá Íslandsmet í armbandagerð á sunnudaginn

Valdimar, Úlfur Úlfur, Amabadama og DJ Sóley skemmta. Ókeypis aðgangur. Allir hvattir til að mæta.

Margrét Gústavsdóttir
Laugardaginn 3. febrúar 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Síðustu vikur hefur Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, staðið fyrir árvekni- og fjáröflunarátaki sem þau kalla:

Krabbamein kemur öllum við | Lífið er núna.

Á sunnudaginn kemur, þann 4. febrúar, verður lokahnykkurinn í þessu átaki þegar allir sem vettlingi geta valdið koma saman í Hörpunni og perla armbönd sem síðan verða seld á viðburðinum en ágóðinn rennur allur til Krafts.

Kraftur stefnir á að slá Íslandsmet í fjölda þeirra sem koma að armbandagerðinni og búist er við enn betri mætingu en í fyrra.

Nokkrir frábærir listamenn munu stíga á svið og stytta perlurum stundir en meðal þeirra má nefna Valdimar, Amabadama, Úlfur Úlfur og svo DJ Sóley sem nýlega lauk við krabbameinsmeðferð sjálf.

Lætur hárið fjúka til styrktar krabbameinssjúkum

Ester Amíra Ægisdóttir, 11 ára, ætlar að láta hárið fjúka á viðburðinum til styrktar krabbameinssjúkum. En báðar ömmur hennar hafa greinst með krabbamein og ákvað hún að láta klippa hár sitt til hárkollugerðar fyrir krabbameinssjúka og safna áheitum til styrktar Krafti.

Upphaflegt markmið hennar var að safna yfir 100.000 krónum en hún er þegar komin vel yfir þá upphæð.

Viðburðurinn hefst klukkan 13.00 og stendur til klukkan 17.00.
Ókeypis er í bílastæði Hörpu meðan á viðburðinum stendur í boði 115 security.
Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis og allir hjartanlega velkomnir.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Í gær

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar
Fókus
Fyrir 5 dögum

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“

Bjútífilterar á samfélagsmiðlum orðnir svo lúmskir – „Þetta er ekki raunveruleikinn“