fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Konan sem læknar heimilin í landinu

Birtu var boðið upp á rauðvínsglas í heimsókn hjá Herdísi „House Doctor“

Margrét Gústavsdóttir
Mánudaginn 25. september 2017 21:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Heildsalinn Herdís „House Doctor“ Jóhannesdóttir býr í tæplega hundrað fermetra einbýlishúsi í smáíbúðahverfinu í Reykjavík ásamt átján ára dóttur sinni, Helenu Ósk.

Herdís er mörgum kunn sem eigandi verslunarinnar Fakó en þar er hægt að fá fjölbreytta gjafavöru, allt frá sælkera- og snyrtivörum yfir í alls konar húsgögn. Í byrjun þessa árs flutti Herdís svo verslunina úr litlu fimmtíu fermetra rými við Laugaveg yfir í Ármúla 7 þar sem hún hefur tvö hundruð og fimmtíu fermetra til umráða.

Margir vilja meina að á þessu svæði sé nú að rísa mekka húsgagna og gjafavöruverslana í Reykjavík. Herdís er gríðarlega sátt við nágranna sína í hverfinu og áhrifin sem myndast af því að sams konar verslanir séu í grennd hver við aðra.

„Snúran er komin hingað í Ármúlann, svo er Hjarn Living hérna rétt hjá. Vogue er í Síðumúla og Borð fyrir tvo er þar beint á móti. Þá eru hér Hugmyndir og heimili, Heimahúsið og svo mætti lengi telja, að ónefndum öllum ljósabúðunum sem eru hérna líka,“ segir hún og bætir við að fólk þurfi ekki að leita langt yfir skammt þegar til stendur að kaupa húsgögn, ljós eða smávöru. „Þetta er bara allt hérna, með nokkurra metra millibili. Auðvelt að rölta á milli.“

Gott að fá sér eitt rauðvínsglas, en bara eitt

Í litla einbýlishúsinu er notalegt um að litast. Stofan og eldhúsið eru samliggjandi á jarðhæð en svefnherbergin og baðið eru á efri hæð. Í stofunni er gólfið flísalagt, sem er harla óvenjulegt á íslenskum heimilum en Herdís segist kunna ágætlega við þetta enda sé hiti í gólfunum.
„Það var búið að gera þetta áður en við mæðgurnar fluttum inn. Mér finnst þetta mjög þægilegt en ég hefði kannski valið öðruvísi flísar,“ segir heildsalinn, brosir út í annað og hellir svolitlu rauðvíni í glas.

„Eftir átta tíma vinnudag þar sem maður er í símanum allan daginn, að tala við alls konar skemmtilegt fólk, þá þarf maður stundum að anda djúpt og fá sér eitt rauðvínsglas til að ná sér niður þegar heim er komið.“
Herdís Jóhannesdóttir heildsali „Eftir átta tíma vinnudag þar sem maður er í símanum allan daginn, að tala við alls konar skemmtilegt fólk, þá þarf maður stundum að anda djúpt og fá sér eitt rauðvínsglas til að ná sér niður þegar heim er komið.“

Mynd: BB

Ertu mikið fyrir rauðvín?
„Eftir átta tíma vinnudag þar sem maður er í símanum allan daginn, að tala við alls konar skemmtilegt fólk, þá þarf maður stundum að anda djúpt og fá sér eitt rauðvínsglas til að ná sér niður þegar heim er komið. Ég tek samt fram að mér nægir alveg að fá mér bara eitt. Stundum klára ég það ekki einu sinni,“ segir hún og hlær.

Við eldhúsborðið, þar sem Herdís situr, stendur falleg hilla sem skartar ýmsum munum, allt frá styttu af Maríu mey yfir í rússneskar babúskur sem eru sérlegt áhugamál hjá Herdísi.

„Mér hefur alltaf þótt eitthvað sjarmerandi við þessar dúkkur. Mamma og amma hafa alltaf átt svona babúskur og ein vinkona mín er að safna þeim. Krakkar hafa gaman af því að leika sér með þær og fullorðnum finnst gaman að skoða þær. Sem sagt eitthvað fyrir alla. Það er eitthvað krúttlegt við þetta,“ segir heildsalinn og „húslæknirinn“ Herdís Jóhannesdóttir að lokum.

„Þetta var sýningareintak sem ég keypti á lagernum hjá House Doctor fyrir nokkrum árum. Mér finnst frábært að hafa kommóðuna á hjólum því það gerir svo einfalt að skúra gólfið. Svo er þetta bara skemmtilegt lúkk og þar fyrir utan er ég eina manneskjan á Íslandi sem á svona grip.“
Sú eina á landinu „Þetta var sýningareintak sem ég keypti á lagernum hjá House Doctor fyrir nokkrum árum. Mér finnst frábært að hafa kommóðuna á hjólum því það gerir svo einfalt að skúra gólfið. Svo er þetta bara skemmtilegt lúkk og þar fyrir utan er ég eina manneskjan á Íslandi sem á svona grip.“

Mynd: BB

„Þarna voru áður svalir en svo var herbergið framlengt með því að setja gluggann á utanverðar svalirnar. Þess vegna er engin gluggakista þarna. Borðið var til sölu í Fako og dóttur mína hafði alltaf langað svo mikið til að eignast það. Þegar við tókum það úr sölu þá keypti hún borðið í þremur greiðslum og var mjög ánægð með sig, unga konan. Hún mun eflaust alltaf eiga þetta fína borð, enda mikið stáss. Hvað spegilinn varðar þá er bara allt að verða vitlaust í þessum kringlóttu speglum. Mér finnst það reyndar gott. Það er gott að brjóta upp formin. Ég fórnaði sjálf ferköntuðu borðstofuborði sem ég hafði alltaf átt þegar ég flutti í húsið og fékk mér kringlótt borðstofuborð í staðinn. Það má ekki allt vera kassalaga.“
Meyjardyngjan „Þarna voru áður svalir en svo var herbergið framlengt með því að setja gluggann á utanverðar svalirnar. Þess vegna er engin gluggakista þarna. Borðið var til sölu í Fako og dóttur mína hafði alltaf langað svo mikið til að eignast það. Þegar við tókum það úr sölu þá keypti hún borðið í þremur greiðslum og var mjög ánægð með sig, unga konan. Hún mun eflaust alltaf eiga þetta fína borð, enda mikið stáss. Hvað spegilinn varðar þá er bara allt að verða vitlaust í þessum kringlóttu speglum. Mér finnst það reyndar gott. Það er gott að brjóta upp formin. Ég fórnaði sjálf ferköntuðu borðstofuborði sem ég hafði alltaf átt þegar ég flutti í húsið og fékk mér kringlótt borðstofuborð í staðinn. Það má ekki allt vera kassalaga.“

Mynd: BB

„Fyrst málaði ég bara allt í hvítu en svo benti Halla Bára innanhússhönnuður mér á að bæta litum á veggina. Hún er alveg litasjúk. Fyrst hélt ég að rýmin myndu minnka við þetta en svo er ekki. Núna er ég alveg óð og ætla að mála fleiri veggi í fallegum litum. Mér er líka óhætt að treysta Höllu því hún kann að skapa hlýlegt andrúmsloft. Það setur alltaf punktinn yfir i-ið að mála vegg í lit.“
Óhætt að treysta Höllu „Fyrst málaði ég bara allt í hvítu en svo benti Halla Bára innanhússhönnuður mér á að bæta litum á veggina. Hún er alveg litasjúk. Fyrst hélt ég að rýmin myndu minnka við þetta en svo er ekki. Núna er ég alveg óð og ætla að mála fleiri veggi í fallegum litum. Mér er líka óhætt að treysta Höllu því hún kann að skapa hlýlegt andrúmsloft. Það setur alltaf punktinn yfir i-ið að mála vegg í lit.“

Mynd: BB

„Það er eiginlega engin geymsla í húsinu svo ég varð að redda skápum sem er hægt að loka. Þessi hilla er notuð undir skótau. Við erum auðvitað tvær stelpur hérna svo það er alltaf nóg af skóm alls staðar og einhvers staðar verða þeir að vera.“
Skóskápur „Það er eiginlega engin geymsla í húsinu svo ég varð að redda skápum sem er hægt að loka. Þessi hilla er notuð undir skótau. Við erum auðvitað tvær stelpur hérna svo það er alltaf nóg af skóm alls staðar og einhvers staðar verða þeir að vera.“

Mynd: BB

„Mottan er úr Fakó og hentar mjög vel á eldhúsgólf en víða um heim eru mottur af þessu tagi staðalbúnaður í eldhúsum. Hún er mjúk að standa á enda úr eins konar stömu gúmmíefni. Kostar 13.400 krónur, fæst bara í þessum lit en í fleiri stærðum.“
Mjúkt undir fæti „Mottan er úr Fakó og hentar mjög vel á eldhúsgólf en víða um heim eru mottur af þessu tagi staðalbúnaður í eldhúsum. Hún er mjúk að standa á enda úr eins konar stömu gúmmíefni. Kostar 13.400 krónur, fæst bara í þessum lit en í fleiri stærðum.“

Mynd: BB

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar