fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

„Okkur er sagt að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist“

Sigga Soffía stýrir flugeldasýningu fyrir þúsundir áhorfenda í Barcelona um helgina

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 22. september 2017 14:36

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir, einnig þekkt sem Sigga Soffía, er meðal fárra kvenna í heiminum sem sérhæfa sig í að hanna flugeldasýningar.

Þrjú ár í röð hannaði hún til dæmis flugeldasýningarnar sem hafa verið hápunktur Menningarnætur en um helgina ræðst hún í sitt stærsta flugeldaverkefni til þessa; opnunarsýninguna á listahátíðinni La Mercé í Barcelona sem hefst laugardaginn 22. september.

Hefð hefur skapast fyrir því að velja eina borg sem höfð er í forgrunni La Mercé-hátíðarinnar ár hvert. Buenos Aires var fókusborgin í fyrra en Reykjavík varð fyrir valinu þetta árið. Reiknað er með að um tvær milljónir þátttakenda leggi leið sína til Barcelona, bæði listamenn og listunnendur.

Nú standa hins vegar yfir mikil mótmæli um alla borgina og því liggur beint við spyrja Siggu hvort hún sé ekki svolítið stressuð?

„Jú, auðvitað. Ég er einmitt að lesa fréttir af þessum mótmælum á netinu. Það er víst mikil reiði í borgarbúum og mótmælendur úti um allt,“ segir Sigga Soffía sem er við það að stíga upp í flugvélina þegar viðtalið er skrifað. Fjölmargir listamenn frá Íslandi munu taka þátt í hátíðinni um helgina og svolítill uggur í mönnum.
„Okkur er samt sagt að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist. Þetta er líka svo stór hátíð. Það verða viðburðir alls staðar í borginni. Um leið og ég sýni mótmælendum fullan skilning, þá vonast ég samt til að að mótmælin haldi áfram að vera nokkuð friðsæl,“ segir Sigga sem var svo óheppin að þurfa að upplifa hryðjuverkaárásirnar í París 13. nóvember 2015 þar sem hún var stödd ásamt eiginmanni sínum og dóttur á hóteli, mitt á milli árásarstaða, fjögur hundruð metra frá Bataklan-tónleikahöllinni.

Vonar að ekki komi til borgarastyrjaldar

„Við vorum í eldlínunni, á milli veitingastaðarins þar sem skotið var á fólkið og tónleikastaðarins. Sem betur fer sluppum við inn á hótel en þurftum svo að vera þar innilokuð í þrjá daga vegna útgöngubanns sem var sett á í borginni. Slíkt hafði ekki gerst síðan í seinni heimsstyrjöldinni í París. Þetta er alveg furðulegt. Ég hef ekki tekið dóttur mína með til útlanda eftir að við upplifðum þessi ósköp og nú þegar ég ætla að taka hana með til Spánar, þá er mögulega yfirvofandi borgarastyrjöld? Hvað er þetta eiginlega? Maður verður samt bara að vona það besta,“ segir hún bjartsýn enda spennandi verkefni framundan.

Ein örfárra kvenna í bransanum

Hvernig kom það til að þú fékkst það verkefni að stýra flugeldasýningu af þessari stærðargráðu?
„Listrænn stjórnandi La Mercé gerði sér ferð til Íslands í vetur til að undirbúa hátíðina, hitta íslenska listamenn og velja þátttakendur. Henni fannst afar óvanalegt að „kona“ væri að hanna flugeldasýningar þar sem þetta er mjög karllægur bransi og bauð mér að vera með. Ég hikaði auðvitað ekki í eina sekúndu enda ekki á hverjum degi sem maður fær það tækifæri að stýra svo stóru verki. Flugeldar eru rándýrir, þetta er flókið verk í framkvæmd og mikill heiður að vera valin til vera í forsvari fyrir þjóðina okkar á þessari hátíð,“ segir Sigga eftirvæntingarfull.

„Þessi sýning mun standa yfir í þrjátíu mínútur en til samanburðar eru sýningarnar á Menningarnótt um sjö til tíu mínútur, þær lengstu. Það er gífurlegt magn af sprengiefnum notað í þetta og sumar sprengjurnar eru ótrúlega skemmtilegar uppfinningar. Til dæmis nýjar sprengur sem kallast „vatnsskeljar“. Þær springa á vatni. Svo er það Nisiki Kamuro (ein vinsælasta sprengjan úti) sem setur ný viðmið í flugeldum þegar kemur að litasamsetningum og tvöföldun á stærð sprengjanna sem fara í loftið miðað við íslenskar sýningar.“

Northern Nights á ströndinni

Sýningarstaðurinn er ekki af verri endanum. Sýningunni verður skotið upp af Barceloneta-ströndinni í Barcelona þar sem þúsundir áhorfenda munu fá tækifæri til að njóta verksins.
„Mér finnst það ótrúlega mikill heiður að hafa verið valin fyrir hönd Reykjavíkur til að gera þessa stóru sýningu. Hún hefur fengið mjög viðeigandi nafn, „Northern Nights“, og ég hlakka mikið til að sjá hana fara í loftið,“ segir Sigga sem er þó ekki að fara að skjóta flugeldunum upp sjálf. „Ég kem þarna sem eins konar eftirlitsmaður. Mitt hlutverk var að hanna sýninguna en svo eru aðrir sem sjá um að stilla þessu upp og setja hana í gang.“

Ætlar ekki að elta flugeldatískuna

Sigga segist ekki ætla að hafa tónlist undir flugeldunum og hefur það sérstaka listræna þýðingu.
„Ef ég myndi nota tónlist þá væri ég að hreyfa flugeldana eftir tónlistinni sem þýðir að þá væri ég að nýta mér smíðavinnu tónlistarmannsins og stytta mér leið, sem er svo sem í lagi. En ég ákvað að gera það ekki í þetta sinn. Maður vill að hreyfingarnar, hvort sem er dansarans eða flugeldanna, séu sjálfstætt verk. Þar fyrir utan eru allir að nota tónlist við flugeldasýningar þessa dagana en mig langar ekki að gera það. Ég vil ekki fylgja straumnum í flugeldatískunni. Svo er það hitt að flugeldar hafa alls konar hljóð, mishávær eða mjúk. Þannig er í raun hægt að skapa tónverk með því að notast við hljóðin, eða þagnirnar, sem þeir gefa frá sér,“ segir dansarinn og flugeldaáhugakonan Sigríður Soffía Níelsdóttir að lokum.

Instagram: Sigga Soffía siggasoffiainc

22.–26. september í Barcelona

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 3 dögum

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“

„Maður þarf stundum að standa með sjálfum sér“
Fókus
Fyrir 3 dögum

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“

Sigríður lýsir lækningamætti Einars – „Gleymi aldrei svipnum á læknunum þegar þeir skoðuðu nýjar myndir af hnénu“