fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Fókus

Það er gott að fara yfir strikið

Margrét Erla Maack: Tryllir teprur og heillar frakka húmorista

Margrét Gústavsdóttir
Föstudaginn 15. september 2017 15:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Margrét Erla Maack komst fyrst á kortið þegar hún, ásamt fleirum, stýrði Kastljósi í fjögur ár. Eftir að hún hætti í fjölmiðlabransanum hefur Margrét verið á fljúgandi siglingu í skemmtanageiranum. Þar hefur hún starfað sem plötusnúður, veislustjóri, sirkusdama og nú síðast búrleskdansari svo sitthvað sé nefnt.
Um þessar mundir á Reykjavík Kabarett hug hennar allan en með þeim frakka hópi skemmtir hún áhorfendum með örlítið djarfari og áleitnari hætti en Íslendingar eiga almennt að venjast.

„Þegar maður er búin að vera að kenna og vera viðeigandi veislustjóri, hegða sér vel, vera á sparinu … þá finnst mér mjög gott að breyta til og fá útrás í kabarettinum. Í honum stjórnar maður ferðinni sjálfur, má segja dónabrandara, fara yfir strikið og svoleiðis. Haustið hefur einmitt alltaf dregið mig niður en eftir að ég tók málin í mínar hendur, og ákvað að gera eitthvað til að hlakka til, hef ég hlakkað til þessarar helgar í allt sumar,“ segir Margrét en Burlesque-fjölskyldan hennar, eins og hún kallar Reykjavík Kabarett, verður með tvær sýningar í Þjóðleikhúskjallaranum, á föstudags- og laugardagskvöld. „Að sýna með þessum vinum mínum er það skemmtilegasta sem ég geri.“

Þerapía fyrir konur að fara úr að ofan og segja dónabrandara

Margrét segir það að vissu leyti þerapíu fyrir konur að fara úr að ofan og segja dónabrandara: „Þetta kom mér svolítið á óvart fyrst, en ég fæ að heyra það reglulega frá nemendum mínum að búrleskdansinn hafi frábær áhrif á sjálfsöryggi þeirra og sjálfsmynd. Þær héldu sig kannski vera að koma á venjulegt dansnámskeið en fengu svo bara miklu meira en þær áttu von á. Til dæmis bara hvað líkamsvirðinguna varðar. Ein hafði fengið að heyra það einhvers staðar að hún væri of feit, en hún tók sig bara til og gerði flott atriði um það,“ segir Margrét og bætir við að búrleskdansinn sé þess eðlis að skemmtikraftarnir framkvæmi allt sem viðkemur atriði þeirra frá upphafi til enda.
„Þetta getur verið góð rannsókn á því hvar hæfileikar manns enda. Maður þarf að semja atriðið, orðin, hreyfingarnar, finna tónlist. Maður saumar meira að segja búninginn sinn sjálfur. Hvar endar geta manns? Hvenær þarf maður hjálp?“

Vinkona sem strippar í hjólastól

Í ensk-íslenskri orðabók með alfræðilegu ívafi er burlesque eða búrleskdansi lýst sem „Leikhússkemmtun með sundurleitu efni, m.a. gamanþáttum (oft harla grófum), nektardansi og fatafellingu.“
Margrét útskýrir einmitt að upprunalega hafi þetta nafn verið notað yfir nektardans en í kringum 1990 hafi þróast sena í Los Angeles sem gerði út á pólitískari tegund af þessu formi sviðslista. „Þetta er kallað „neo burlesque“ og er í raun mjög pólitískt fyrirbæri sem gengur út á að sýna allan aldur, alls konar líkama, alls konar fólk sem tekur til sín kynþokka sinn og túlkar hann á eigin forsendum,“ segir Margrét. „Til dæmis á ég vinkonu sem er í fallega skreyttum hjólastól. Hún á mörg mjög góð búrlesk atriði. Kallar sig strippara í hjólastól. Það hafa allir bæði rétt og leyfi til að vera kynverur,“ segir hún ákveðið.
„Svo er það mjög frelsandi að taka kvenlíkamann, sem oftast er sýndur undirgefinn eða viðkvæmur, og sýna að hann getur líka verið ógeðslega fyndinn, sterkur og fær um að gera furðulegustu hluti.“

Það segir þér enginn að fara úr fleiri fötum

Margrét Erla leggur mikla áherslu á að búrleskdansinn snúist um sjálfstæði og frelsi þess sem flytur atriðið.
„Um leið og einhver annar segir þér hvað þú átt að gera í þínu atriði þá er þetta ekki lengur búrlesk. Það bókar enginn skemmtikraft frá Reykjavík Kabarett og segir henni eða honum að fara úr fleiri fötum. Maður á bara að bóka skemmtikrafta sem maður treystir að séu með frábær atriði og skipta sér svo ekkert meira af því,“ segir hún og lagar til eyrnalokkinn sinn.

Vann milljón í happadrætti og missti kærastann í sömu vikunni

En hvernig kom það til að Margrét kynntist þessari tegund af leikhúsi?
„Það eru komin tíu ár síðan. Á því herrans ári 2007 fór ég til New York til að taka masterstíma í magadansi. Það kom eiginlega þannig til að ég hafði unnið milljón í happadrættisvinning, einmitt sömu vikuna og breski kærastinn var nýbúinn að segja mér upp. Við þetta tók lífið smá snúning og ég, sem ætlaði að fara til London þangað sem ég hafði komist inn í leiklistarskóla, fór til New York. Lífið sér um sína. Þessi milljón dugði mér út sumarið,“ segir hún og hlær að minningunni.
Meðan á dansnáminu stóð fékk Margrét vinnu sem dansari á mjög vinsælum skemmtistað í New York sem heitir The Box.
„Svo var þetta bara eins og í Hollywood-mynd. Ein aðal pían varð veik en ég smellpassaði í búninginn hennar og var þar af leiðandi fengin til að leysa hana af. Allt í einu var ég mætt upp á svið að dansa fyrir aftan dvergvaxinn mann sem var að herma eftir Marilyn Manson og ég man bara að ég hugsaði: þetta er það skemmtilegasta sem ég hef gert!“

Kjöthöllin í öllu sínu veldi.
Kjöthöllin í öllu sínu veldi.

Kjöthöllin Tómas og erótíska uppvaskið

Margrét Erla fann ástina í nóvember í fyrra. Kærastinn, sem er fjölhæfur eins og Margrét, heitir Tómas Steindórsson en hann starfar bæði á sambýli og dagvistun fyrir fatlaða auk þess að vera fyrirliði körfuboltaliðsins Gnúpverjar. Ekki nóg með það, Tómas, sem var á sínum tíma kosinn herra Helluskóli, hefur nú gengið til liðs við kabarett kærustunnar og ætlar að vera með sitt eigið atriði í sýningum helgarinnar.
Margrét segir unnustann ekki hafa haft hugmynd um hvað búrlesksýning er þegar þau kynntust en eftir að hafa séð stórkostlega sýningu á Slipper Room í New York, og heillast alveg upp úr skónum, ákvað fyrirliðinn að taka þátt.

„Hann sá fjölda stórkostlegra stráka leika búrlesk listir sínar í Slipper Room. Það fyrirbæri kallast „boylesque“ og það má segja að þetta hafi bara setið í honum Tómasi. Hann byrjaði að grínast með að vera með atriði en upp úr gríninu þróaðist svo bara þrælgóð og mjög erótísk túlkun á uppvaski,“ útskýrir Margrét.
„Hann sýndi mér atriðið í gær og ég bæði grét og gargaði úr hlátri og lak niður í gólf, svo heilluð var ég,“ segir hún flissandi og bætir við að undanfarnar vikur hafi þau unnið í því að gera fullkomna eftirlíkingu af uppþvottalegi. „Lokaniðurstaðan var að blanda matarlit út í barnaolíu, af því hann ætlar auðvitað að hella þessu yfir sig í atriðinu,“ segir hún hlæjandi og skýtur því inn að Tómas hafi líka tekið sér fullkomið listamannsnafn. „Hann kallast Kjöthöllin!“

Myndavélar í símum til vandræða

Stendur þá kannski til að gera Tómas út sem skemmtikraft í gæsapartíum?
Margréti rekur aðeins í rogastans. „Neeeeeeeeeiii, ég veit það nú ekki! Það eru allir með myndavélar í símunum sínum og það gerir þetta svolítið erfitt. Myndir geta lekið út og allir fara að spyrja hvort það hafi verið pantaður strippari í gæsapartíið. Stripp er auðvitað ólöglegt á Íslandi! Þetta gæti komið öllum í bobba, bæði skemmtikraftinum og fólkinu í partíinu.“

Fyrst Hilmir Snær má vera á rassinum þá megum við það líka

En hafið þið fengið lögfræðing til að skissa upp hvernig þið haldið ykkur innan lagarammans?
„Sko, við sýnum auðvitað í Þjóðleikhúsinu og ef Hilmir Snær má vera á rassinum á sviðinu uppi þá megum við vera á rassinum í kjallaranum. Er það ekki?! En ég veit ekki, kannski verður látið á þetta reyna. Ég held samt að fólk sem er viðkvæmt fyrir nekt og svona gríni ætti ekki að vera í vafa um hvers eðlis sýningarnar okkar eru. Þá passar það sig bara á að koma ekki á þær,“ segir hún og bendir á að þegar rýnt hafi verið í miðasöluna hafi komið í ljós að konur séu yfir sjötíu prósent þeirra sem hafa mætt á sýningar hingað til. „Konum virðist finnast svo hressandi að sjá kotasælulæri á sviði og að það skipti bara engu máli í stóra samhenginu hvernig við lítum út.“

Líkaminn minn er til að ég geti notið hans

Spurð að því hvernig Tómas taki í það að kærastan hans sé ber að ofan að skemmta segir hún það líka algjört aukaatriði.
„Hann á ekki líkamann minn og ef honum þætti þetta erfitt þá hefði hann ekki reynt við mig til að byrja með held ég. Þótt hann sé kærastinn minn þá ræð ég alfarið yfir mínum líkama og þar með töldum mínum geirvörtum. Líkaminn minn er ekki eingöngu gerður svo að hann geti notið hans. Líkaminn minn er fyrst og fremst gerður svo að ég geti notið hans,“ segir hún staðföst. „Það eina sem er erfitt er að hann þarf að fá svolítið oft frí í vinnunni til að koma með mér á sýningarferðalög, en annars held ég að hann samgleðjist mér að ég sé ekki með komplexa.“

Ráðlegast að mæta með vatnsheldan maskara

Kjöthöllin Tómas verður ekki eini karlmaðurinn sem tekur þátt í sýningunni um helgina með sínum „boylesque“ brögðum því hinn suðræni og seiðandi Wilfredo ætlar einnig að stíga þar á svið. Margrét segir manninn svo fyndinn að það sé ráðlegast að mæta með vasaklút og vatnsheldan maskara á sýninguna.
„Wilfredo er týpan sem margir þekkja af hótelbörunum á Benidorm. Var einu sinni mjög sætur en er það alls ekki lengur. Honum finnst hann hins vegar rosalega heillandi og hann heldur að hann sé alveg æðislegur – en hann er það bara alls ekki. Margir hafa lýst honum sem karlmanni í dragi karlmanns. Eiginlega svona ofur ýktur karl. Þegar ég sá Wilfredo í fyrsta sinn fannst mér hann það fyndnasta sem ég hafði séð á ævinni en þegar hann svo fór úr gervinu þá leyndist þar undir einn fallegasti og dagfarsprúðasti Breti sem ég hef kynnst,“ segir Margrét og bætir við að Wilfredo verði jafnframt kynnir á kvöldinu.
„Svo bjóðum við líka upp á kokkteilahristur með frjálsri aðferð, kynlífstækja-húll og jesúgrín, af því það má núna,“ segir hin fjölhæfa og frakka Margrét Erla að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu

Fyrrum ritari staðfestir loks að hafa verið yfirheyrð í eineltisrannsókninni alræmdu
Fókus
Fyrir 2 dögum

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision

Tekur við af Gísla Marteini sem kynnir Eurovision
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við

Fylgdi vinsælu heilsuráði og endaði á spítala – Varar aðra við
Fókus
Fyrir 3 dögum

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 4 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“