fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024

Lokkandi lakkrístoppar og gómsætar gyðingakökur

Sigurður í Björnsbakaríi gefur lesendum Birtu uppskriftir að vinsælum smákökum

Margrét Gústavsdóttir
Sunnudaginn 3. desember 2017 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lakkrístoppar voru ekki meðal þeirra uppskrifta sem birtust í Kvennafræðaranum árið 1888. Lakkrístoppar eru nýir af nálinni í samanburði við gyðingakökurnar en síðustu 100 árin hefur verið rík hefð fyrir smákökubakstri á íslenskum heimilum fyrir jól.

Sigurður hefur staðið við bakaraofnana í Björnsbakaríi við Austurströnd í um 25 ár. Hann segist enn eiga eftir að komast að því hvers vegna gyðingakökur heita gyðingakökur.
Sigurður Alfreð Ingvarsson Sigurður hefur staðið við bakaraofnana í Björnsbakaríi við Austurströnd í um 25 ár. Hann segist enn eiga eftir að komast að því hvers vegna gyðingakökur heita gyðingakökur.

Mynd: DV ehf / Sigtryggur Ari

Hér áður fyrr lögðu konur einnig gríðarlegan metnað í að baka sem allra flestar smákökusortir. Árni Björnsson þjóðháttafræðingur útskýrir hefðina á Vísindavefnum þar sem hann segir að svo virðist sem íslenskar húsmæður hafi, á fyrri hluta 20. aldar, byrjað að fá langþráða útrás fyrir innibyrgða sköpunargáfu með kökubakstri vikurnar fyrir jól.

Ástæðuna megi rekja til þess að landanum bárust nýstárlegri hráefni en áður höfðu þekkst og þá höfðu flest heimili eignast eldavél meðan áður var eldað á hlóðum. Svo voru það matreiðslubækur á borð við Kvennafræðarann, sem varð mjög útbreidd enda kom hún fjórum sinnum út á árunum 1888 til 1911, aukin og endurbætt í hvert skipti. Þar mátti meðal annars finna uppskriftir að gyðingakökum, piparkökum, hálfmánum, vanilluhringjum og öðru jólagóðgæti sem landinn er enn að gæða sér á tæplega 130 árum síðar.

Sigurður Alfreð Ingvarsson hefur staðið við bakaraofnana hjá Björnsbakaríi síðustu 25 árin og hér gefur hann lesendum Birtu tvær girnilegar uppskriftir að smákökum sem löngum hafa fengist í bakaríinu fyrir jól, lakkrístoppum og gyðingakökum.

Lakkrístopparnir voru fyrst bakaðir fyrir rúmum áratug en aðrar smákökur í bakaríinu eru flestar af gamla skólanum.

„Yfirleitt eru ljósar smákökur mjög vinsælar í kringum jólin, gyðingakökur og vanilluhringir til dæmis. Hver einustu jól íhugum við bakararnir að gera nýjar uppskriftir en fólkið sem verslar við okkur virðist elska þessar gömlu hefðir og því höldum við yfirleitt bara fast í þær,“ segir Sigurður.

Spurður að því af hverju gyðingakökurnar dragi nafn sitt segir hann hlægjandi að það sé ekkert sem tengist gyðingum í þessum smákökum þótt það sé vissulega vanilla í vanilluhringjum og lakkrís í lakkrístoppum.

„Ég þarf líklegast að leggjast í smá rannsóknarvinnu til að vita hvaðan þetta nafn kemur,“ segir bakarinn káti að lokum.

Gyðingakökur

Um 130 stk. úr uppskriftinni.

INNIHALD

Sykur 250 g
Smjör 375 g
Hveiti 500 g
Egg 2 stk.

Egg til penslunar 2 stk.
Heslihnetur sneiddar 150 g
Sykur 50 g

AÐFERÐ

Allt sett saman í hrærivél og hnoðað þar til það er komið saman.
Deigið tekið og sett í skál. Plastfilma sett yfir og geymt inni í ísskáp í að minnsta kosti þrjá tíma.
Deigið tekið úr ísskápnum og aðeins hnoðað með höndunum til að mýkja það upp og svo rúllað með kökukefli eins þunnt og maður ræður við með hveiti sér við hlið.
Stungið út með 5 sentimetra mynstruðum hring og raðað á bökunarplötu með pappír á.
Egg brotin í skál og slegin saman með gaffli og svo eru kökurnar penslaðar með þeim.
Heslihnetum og sykri blandað saman og sett ofan á hverja köku fyrir sig með teskeið.
Svo er þetta bakað í um 8 mínútur á 240°C en fer samt eftir ofnum. Best er að fylgjast vel með þar til þær ná fallega brúnum lit í hliðarnar.

Lakkrístoppar

Um 150 stk. úr uppskriftinni.

INNIHALD

Eggjahvíta 3 stk.
Púðursykur 200 g
Rjómasúkkulaði 200 g
Lakkrískurl súkkulaði hjúpað 200 g

AÐFERÐ

Eggjahvítum og púðursykri er þeytt saman þar til það er orðið stífþeytt.
Rjómasúkkulaði er saxað niður og það sett út í ásamt lakkrískurli og hrært varlega saman með sleif.
Setjið með teskeið á bökunarplötu með pappír.
Bakið á 170°C í um 12–14 mínútur.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 3 klukkutímum

Bayern byrjað að ræða við Rangnick um að taka við

Bayern byrjað að ræða við Rangnick um að taka við
Fréttir
Fyrir 3 klukkutímum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum

Uppnám á Íslandsmótinu í skák – Stórmeistari hættir þátttöku út af hávaða í kylfingum
Fréttir
Fyrir 5 klukkutímum

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar

Slys við Dalveg: Bíl ekið inn í skrifstofu Útlendingastofnunnar
Eyjan
Fyrir 5 klukkutímum

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar

Jóhann Páll Jóhannsson á Alþingi: Hákarlar margfalda höfuðstól smálána – veiðileyfi í boði ríkisstjórnarinnar
433Sport
Fyrir 6 klukkutímum

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar

Bjóða honum nýjan samning þó sá gamli gildi í sex ár til viðbótar
Fréttir
Fyrir 7 klukkutímum

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“

Íbúar brjálaðir út í Hafnarfjarðarbæ: „Þetta er til háborinnar skammar og engin lausn“
Eyjan
Fyrir 8 klukkutímum

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta

Ólafur Þ. Harðarson: Enginn ágreiningur milli Vinstri grænna og Sjálfstæðisflokks um opinbera þjónustu og skatta
Fréttir
Fyrir 8 klukkutímum

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat

Réðst á dreng sem ætlaði að gera dyraat