fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Fókus

Fyrir og eftir: Umpólun á eldhúsi í Hnífsdal

Andrea og Kári færðu eldhúsið frá árinu 1978 til ársins 2017

Margrét Gústavsdóttir
Laugardaginn 4. nóvember 2017 15:05

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Viðskiptafræðineminn Andrea Gylfadóttir býr ásamt unnusta sínum og tveimur börnum í rúmgóðu einbýlishúsi í Hnífsdal, en í bænum, sem tilheyrir Ísafjarðarbæ, búa um 250 manns.

Andrea tók eldhúsið sitt í gegn á einum mánuði og fékk meðal annars aðstoð frá tengdaforeldrum.
Andrea Gylfadóttir Andrea tók eldhúsið sitt í gegn á einum mánuði og fékk meðal annars aðstoð frá tengdaforeldrum.

„Ég er reyndar uppalin á Ísafirði og þar kynntist ég manninum mínum sem er vélstjóri héðan úr Hnífsdal. Við keyptum húsið árið 2013, þegar ég var ólétt að fyrsta barninu mínu. Þá kostaði það undir tuttugu milljónum sem er auðvitað frekar fyndið miðað við hvað svona hús myndi kosta í Reykjavík.

Á síðasta ári ákváðum við að ráðast í að gera húsið upp. Byrjuðum á því að taka eitt baðherbergi í gegn og höfum gert húsið mikið upp að utan. Múruðum, máluðum og skiptum um einhverja glugga. Kári er mjög handlaginn og pabbi hans er smiður þannig að þetta gekk allt mjög vel fyrir sig enda höfðum við góða aðstoð.

Innréttingarnar í eldhúsinu voru upprunalegar en þetta var orðið þreytt og gamalt, reyndar ekki illa farið en bara úrelt. Svo langaði okkur að opna rýmið og láta birtuna flæða betur um. Einnig fannst okkur tilgangslaust að vera með afstúkaða borðstofu sem við myndum aldrei nota. Þannig að við ákváðum að opna bara í gegn og leyfa plássinu að njóta sín.

Þau Andrea og Kári komu sér fyrir á neðri hæðinni meðan öllu var rúttað til. Tengdaforeldrar Andreu komu til aðstoðar en þau búa á Akureyri. Hér sjást Kári og Skarphéðinn vinna í því að taka niður vegginn sem skildi að eldhús og borðstofu.
Allt rifið út Þau Andrea og Kári komu sér fyrir á neðri hæðinni meðan öllu var rúttað til. Tengdaforeldrar Andreu komu til aðstoðar en þau búa á Akureyri. Hér sjást Kári og Skarphéðinn vinna í því að taka niður vegginn sem skildi að eldhús og borðstofu.

Fyrst var farið í hugmyndavinnuna. Ég nota forrit á borð við Pinterest og Instagram mjög mikið í þessum efnum. Við höfðum alltaf skýrar hugmyndir um hvernig við vildum hafa þetta en þurftum aðstoð við útfærsluna. Baldur, sölumaður hjá HTH innréttingum, teiknaði þetta svo upp eftir okkar hugmyndum. Við sendum óteljandi tölvupóst fram og til baka þangað til niðurstaðan var komin á hreint og við komin með teikningar og mál sem við vorum 100% sátt við. Þetta tók í sjálfu sér ekki langan tíma og við fengum bæði góða og hraða þjónustu frá fyrirtækinu sem skiptir auðvitað öllu máli í svona framkvæmdum.

Einn veggur farinn og byrjað á þeim næsta.
Fyrir Einn veggur farinn og byrjað á þeim næsta.

Staður: Hnífsdalur í Ísafjarðarbæ

Byggingarár: 1978

Stærð: 289 fm

Íbúar: Andrea Gylfadóttir, 26 ára, Kári Snær Skarphéðinsson, 30 ára, Ásdís Erla, 4 ára og Ægir Skarphéðinn, 1 árs, ásamt hundinum Perlu.

Við byrjuðum framkvæmdirnar 1. janúar. Kári var ekki á sjónum allan mánuðinn og við unnum frá morgni til kvölds. Settum upp litla aðstöðu á neðri hæðinni og rústuðum þeirri efri. Tengdaforeldrar mínir, Linda Steingrímsdóttir og Skarphéðinn Hjálmarsson, komu frá Akureyri og aðstoðuðu okkur við þetta. Fluttu bara inn. Svo var unnið á fullu. Við brutum niður tvo veggi og viðarskilrúmið og settum upp nýjan vegg þar sem ísskápurinn og ofnarnir eru núna. Svo var málað og parketlagt og svo framvegis þar til þetta var allt orðið fullkomið. Við erum afskaplega ánægð með útkomuna enda ekkert sem við hefðum viljað hafa öðruvísi við þessar breytingar,“ segir Andrea.

Innréttingin er sprautulökkuð með hálfmöttum glans og ljósin þjrú í loftinu koma frá IKEA. Gólfefnið er harðparket úr versluninni Parket og Gólf í Reykjavík.
Bleikar rósir og blá Ísafjarðarbirta Innréttingin er sprautulökkuð með hálfmöttum glans og ljósin þjrú í loftinu koma frá IKEA. Gólfefnið er harðparket úr versluninni Parket og Gólf í Reykjavík.
Barstólarnir koma úr versluninni Epal en þeir eru hannaðir af skandinavíska merkinu Hey. Í skúffunum við eyjuna geymir Andrea sitt lítið af hverju. Meðal annars dúka og föndurdót fyrir börnin.
Risastór eyja Barstólarnir koma úr versluninni Epal en þeir eru hannaðir af skandinavíska merkinu Hey. Í skúffunum við eyjuna geymir Andrea sitt lítið af hverju. Meðal annars dúka og föndurdót fyrir börnin.

Mynd: Andrea Gylfadóttir

„Þarna eru hrærivélin, brauðristin, kaffivélin og öll hin tækin. Ég held að það séu sex innstungur þarna svo maður þarf ekki að færa neitt. Þetta var aðalkrafan hjá mér. Það varð að vera svona skápur. Þótt það sé fínt að geta lokað drasl þarna inni þá reyni ég að hafa fínt inni í honum líka.“
Feluskápur í horni „Þarna eru hrærivélin, brauðristin, kaffivélin og öll hin tækin. Ég held að það séu sex innstungur þarna svo maður þarf ekki að færa neitt. Þetta var aðalkrafan hjá mér. Það varð að vera svona skápur. Þótt það sé fínt að geta lokað drasl þarna inni þá reyni ég að hafa fínt inni í honum líka.“

Mynd: Andrea Gylfadóttir

„Stólana pantaði ég frá Bretlandi og fékk þá senda heim. Þetta er miklu minna mál en maður heldur og margt í boði. Þetta getur verið ódýrara en er það ekki endilega alltaf. Fer eftir því hverju maður leitar að. Borðið er úr IKEA en dagatalið pantaði ég á etsy.com sem er alþjóðleg vefverslun með handverk. Ég held að konan sem gerði þetta sé frá Litháen.“
Borðstofan „Stólana pantaði ég frá Bretlandi og fékk þá senda heim. Þetta er miklu minna mál en maður heldur og margt í boði. Þetta getur verið ódýrara en er það ekki endilega alltaf. Fer eftir því hverju maður leitar að. Borðið er úr IKEA en dagatalið pantaði ég á etsy.com sem er alþjóðleg vefverslun með handverk. Ég held að konan sem gerði þetta sé frá Litháen.“

Mynd: Andrea Gylfadóttir

Veggurinn fyrir aftan ofnana var smíðaður í staðinn fyrir viðarskilrúmið. Eyjan, sem er 3,6 metra löng, er klædd með borðplötu frá Fantofell. Hún er úr plasti en með eikarútliti enda vildu þau ekki gegnheilan við. „Þetta þolir miklu meira og kallar ekki á eins mikið viðhald.“
Bjart og blómlegt Veggurinn fyrir aftan ofnana var smíðaður í staðinn fyrir viðarskilrúmið. Eyjan, sem er 3,6 metra löng, er klædd með borðplötu frá Fantofell. Hún er úr plasti en með eikarútliti enda vildu þau ekki gegnheilan við. „Þetta þolir miklu meira og kallar ekki á eins mikið viðhald.“

Mynd: Andrea Gylfadóttir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“

Snýst ekki um að taka sviðsljósið frá körlum heldur beina því einnig að konum – „Þetta er mjög karllægur bransi og hefur alltaf verið“
Pressan
Í gær

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða

47 ár frá upphafi tveggja tímamótageimferða
Fókus
Fyrir 3 dögum

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar

Katrín Myrra keypti miða aðra leið út til Taílands og það breytti lífi hennar
Fókus
Fyrir 4 dögum

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín

Simmi Vill um árshátíðardrama Landsvirkjunar – Segir að önnur stórfyrirtæki megi frekar skammast sín
Fókus
Fyrir 4 dögum

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“

Guðbjörgu var útskúfað fyrir að tala um 47 ára aldursmun föður síns og barnsmóður hans – „Ætla ekki að þegja og taka þátt í þessum leik“
Fókus
Fyrir 4 dögum

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla

Er fyrsta vara lífsstílsmerkis Markle algjört flopp? – Sultukrukkan skilar sér ekki á samfélagsmiðla