fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Fókus

Dagur í lífi: Hafdís Huld Þrastardóttir

– semur tónlist með tilvonandi eiginmanninum í Mosfellsdal

Margrét Gústavsdóttir
Laugardaginn 4. nóvember 2017 22:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hafdís fæddist 22. maí árið 1979. Hún ólst upp í vesturbæ Kópavogs hjá foreldrum sínum og tveimur yngri systkinum. Hún byrjaði í Menntaskólanum í Kópavogi 1996 en lauk ekki náminu þar sem tónlistin átti huga hennar allan. Hún var sextán ára þegar fyrsta platan hennar með GusGus kom á markað, árið 2006 gaf hún út sína fyrstu sólóplötu og síðustu plötuna sendi hún frá sér í sumar. Hafdís býr í Mosfellsdal ásamt tilvonandi eiginmanni, Alisdair Wright, og dóttur þeirra, Arabellu Iðunni, fimm ára. Um helgina, eða nánar tiltekið föstudaginn 3. nóvember, ætlar hún að halda tónleika á Landnámssetrinu í Borgarnesi.

Klukkan 8

Besta ráð sem þér hefur verið gefið?

Pabbi hvatti mig til að klára tónlistarnámið í Bretlandi, á sama tíma og plötufyrirtækið sem ég var búin að semja við, pressaði á mig að hætta. Ég fór að ráðum föður míns og fyrir vikið kynntist ég manninum mínum á lokaárinu. Þetta hefði ekki gerst ef ég hefði hætt í skólanum.

Besta ráð sem þú getur gefið öðrum?

Að taka með sér stígvél í sveitina. Ég hef séð nokkrar vinkonur mínar úr borginni fara illa á því að taka þessu ráði ekki alvarlega.

Hvað vildirðu að þú hefðir vitað fyrr?

Maður getur aldrei þóknast öllum og það er best að fylgja bara eigin sannfæringu.

„Ég vakna oftast um átta með fjölskyldunni. Líkt og á öðrum „breskum“ heimilum þá byrjar allt á góðum tebolla, við erum svolítið svona ristað brauð og te-fólk. Eftir að dóttir okkar er farin á leikskólann þá byrjum við á því að hleypa hænunum út, leita að kanínunni og sjá hvort hún sé ekki búin að fá eitthvað að borða og svo er sest við tölvuna. Við maðurinn minn vinnum bæði heima en hann er líka tónlistarmaður og við vinnum í þessu saman. Í lok mánaðarins ætlum við að gefa út smáskífu með lagi sem heitir Dream Small og nú erum við að undirbúa alls konar viðtöl sem tengjast útgáfunni. Tæknin er orðin svo þægileg, maður getur spjallað við fólk augliti til auglits án þess að fara út úr húsi en mikið af þessum símtölum er við útgefendur og erlenda fjölmiðla. Þessi „skrifstofuvinna“ tekur oftast tímann fram að hádegi en þá tökum við okkur pásu.

Klukkan 12

Nú er að koma þannig veður að maður fer í súpugír. Ég er meiri áhugamanneskja um matargerð meðan hann er meira í teinu. Við tyllum okkur og fáum okkur súpu og brauð og eitthvað svoleiðis í hádeginu en svo heldur vinnan áfram. Við gerum mikið af tónlistarmyndböndum sjálf, það er reyndar mikill heimilisiðnaður í gangi þarna í sveitinni í fjölbreyttum skilningi. Nú erum við að klára myndband við þetta lag og tíminn fer að mestu í eftirvinnslu. Við þurfum að senda myndbandið frá okkur áður en lagið kemur út og erum í lokaferlinu núna. Rétt fyrir þrjú sæki ég svo stelpuna í leikskólann og fer með hana í ballett. Þá sit ég og hekla meðan hún klárar æfinguna. Á leiðinni til baka kaupum við í matinn en uppáhaldið hennar er bleikur fiskur, eða bleikja. Þegar við komum heim förum við oft að föndra en glimmer er sérstaklega vinsælt þessa dagana og húsið hreinlega glitrar, enda myndir uppi um alla veggi.

Klukkan 17.00

Seinnipartur dags fer yfirleitt bara í notalega samveru með fjölskyldunni. Við gerum svona sitt lítið af hverju og oftast byrjar eldamennskan frekar snemma. Arabella vill helst bara sjá um þetta. Hún lítur alveg á okkur sem jafningja í eldhúsinu og mig grunar að þar sé framtíðarkokkur á ferð. Eftir kvöldmatinn förum við út að ganga með Mosa, hundinn okkar. Það er alveg dásamlegt að vera í Mosfellsdalnum en hér höfum við búið í um sjö ár.

Klukkan 20.00

Eftir kvöldmatinn og gönguferðina þarf að koma Arabellu í háttinn og eftir að hún er komin í ró þá förum við yfir lagalista morgundagsins, – í þeim tilfellum þegar við erum með tónleika framundan. Nú hef ég gefið út fjórar plötur svo við þurfum að velja lög af þeim og raða þessu upp í skemmtilegt flæði. Við Alisdair höfum unnið saman síðustu tíu ár við tónleikahald og tónlist svo hann er helmingurinn af þessu öllu.

22.00

Eftir yfirferðina reynum við að setjast niður og slaka á yfir góðri bíómynd eða einhverri þáttaröð. Við höfum verið að horfa á Suits undanfarið, svo höfum við mjög gaman af heimildamyndum á BBC, endar sterkar rætur til Bretlands. Háttatíminn okkar er nú frekar misjafn en yfirleitt reynum við að sofna fyrir miðnætti, eða svona upp úr ellefu.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“

Samfélagsmiðlastjarna látin aðeins 36 ára – „Ég botna ekki í neinu lengur en við munum fá meiri upplýsingar á næstu dögum“
Fókus
Í gær

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund

Fyrrverandi samskiptastjóri Sigríðar Hrundar styður núna Höllu Hrund
Fókus
Fyrir 2 dögum

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti

Sjáðu senuna sem er sögð sú fyndnasta í Saturday Night Live frá upphafi – Enginn náði að halda andliti
Fókus
Fyrir 2 dögum

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs

Hrím og Skrímslavinafélagið tilnefndar til barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs
Fókus
Fyrir 4 dögum

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“

Tinna er líklega búin að finna móður sína – „Ég þarf að vera tilbúin til að fara út til þegar kallið kemur“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar

Einn dáðasti leikarinn á leið í hnapphelduna eftir að unnustan fór á skeljarnar