fbpx
Miðvikudagur 17.apríl 2024
Fókus

Rétt lýsing getur gerbreytt rýminu

Erla Heimisdóttir rekur verslunina Lýsingu og Hönnun

Margrét Gústavsdóttir
Sunnudaginn 1. október 2017 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Rétt lýsing á heimili eða vinnustað getur gerbreytt andrúmslofti og upplifun með tiltölulega litlum kostnaði en undanfarin ár hafa miklar tækniframfarir orðið í þessum geira.

Lýsing & Hönnun er fjölskyldufyrirtæki sem leggur áherslu á persónulega þjónustu varðandi allt sem viðkemur lýsingu, í stórum sem smáum verkefnum. Eigendur þess eru hjónin Erla Heimisdóttir viðskiptafræðingur og Heimir Jónasson rafmagnsiðnfræðingur, en þau stofnuðu fyrirtækið árið 2007.
Líkt og nafnið gefur til kynna er starfsemi Lýsingar & Hönnunar tvíþætt. Annars vegar bjóða þau verkfræðiþjónustu í raflagnateikningum og lýsingarhönnun og hins vegar er Lýsing & Hönnun vönduð verslun þar sem aðaláhersla er lögð á að bjóða gott úrval ljósa fyrir bæði heimili og fyrirtæki.

Lýsingarhönnun fylgir með að kostnaðarlausu

„Við vitum að það er í mörg horn að líta þegar verið er að byggja eða breyta og þá hjálpar að geta fengið allt sem snýr að rafmagnshlutanum á einum stað,“ segir Erla og bætir því við að hjá fyrirtækinu starfi einvala lið sérfræðinga á sviði lýsingarhönnunar.

„Til dæmis hefur Heimir, maðurinn minn, mjög mikla reynslu í raflagna- og lýsingarhönnun. Heiðdís er með menntun í „Retail and Space Design“ og Róbert Hjaltason, rafvirki og rafmagnsiðnfræðingur, hefur góða reynslu í raflagnahönnun. Okkur finnst mikilvægt að geta boðið viðskiptavinum upp á alhliða ráðgjöf á þessu sviði, allt frá hugmynd til lokaútkomu. Við veitum til dæmis sérfræðiráðgjöf í lýsingarhönnun fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Þá mæta sérfræðingar okkar á staðinn, taka út húsnæðið og ráðleggja svo varðandi raflagnir og uppsetningu á lýsingu. Lýsingarhönnunin fylgir með að kostnaðarlausu ef ljósin eru keypt hjá okkur,“ segir Erla.

„Það er alltaf betra að fá aðstoðina heim svo að fagmennirnir fái tilfinningu fyrir rýminu. Ef það er ekki valkostur þá reynum við að mæta þörfum viðskiptavina, til dæmis með því að meta aðstæðurnar út frá ljósmyndum og teikningum.“

Ljós eru ekki bara ljós og LED er ekki bara LED

„Lýsingin skiptir miklu máli og getur gert ótrúlega mikið fyrir stemninguna í hverju rými. Ljós eru ekki bara ljós, þetta er líka oft spurning um ljósaperuna. Það hefur orðið mikil bylting í möguleikum með LED-lýsingu og LED ekki bara LED. Úrvalið er orðið mikið, og ótrúlegt hvað eitt ljós getur breytt miklu fyrir rými ef rétta ljósið er valið. Við aðstoðum viðskiptavini við val og útfærslu,“ segir Erla og nefnir í því samhengi HDL ljósa- og hitastýrikerfin sem hafa slegið í gegn hjá viðskiptavinum fyrirtækisins.

„Með HDL kerfinu er meðal annars hægt að stjórna ljósum og hita með spjaldtölvum en þannig má breyta stemningu á afar einfaldan og þægilegan hátt. Einnig er hægt að stýra hita og ljósum með einum rofa sem myndar heildstætt kerfi,“ segir hún að lokum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

Fókus
Í gær

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“

Föðurlausi drengurinn sem setti vikulega á svið leikrit til að fela vanræksluna – „Maður vissi ekkert hverju maður átti von á þann daginn“
Fókus
Fyrir 2 dögum

„Hver verður næst?“

„Hver verður næst?“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“

Vikan á Instagram – „Þvílíkur rússibani“
Fókus
Fyrir 2 dögum

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“

Varð fyrir hrottalegu ofbeldi fimm ára gömul – „Ég var á leið til vinkonu minnar, bankaði á vitlausa hurð“
Fókus
Fyrir 5 dögum

Caitlyn Jenner birti svakaleg skilaboð eftir fráfall O.J. Simpson

Caitlyn Jenner birti svakaleg skilaboð eftir fráfall O.J. Simpson
Fókus
Fyrir 5 dögum

Kelsey svaraði algengustu spurningunni um hjónaband hennar og Hafþórs – „Hann beygir sig“

Kelsey svaraði algengustu spurningunni um hjónaband hennar og Hafþórs – „Hann beygir sig“