Jose Mourinho, fyrrum stjóri Manchester United þarf ekki að hafa áhyggjur af peningum næstu daga og vikur. Mourinho var rekinn frá United í dag.
Með uppsagnarbréfinu fær Mourinho nefnilega 24 milljónir punda í greiðslu til sín. Um er að ræða 3,7 milljarða íslenskra króna.
Mourinho stýrði United í tvö og hálft ár, ekki er ár síðan að Mourinho fékk nýjan og betri samning hjá félaginu.
Ed Woodward sem verið hefur stjórnarformaður Manchester United síðustu ár hefur tekið margar vondar ákvarðanir fyrir félagið.
Mourinho vann þrjá titla fyrir United á fyrstu leiktíð sinni með félagið en síðan fór að halla undan fæti.
Hann er þriðji stjórinn sem missir vinnu sína eftir að Sir Alex Ferguson hætti árið 2013, fyrstur í röðinni var David Moyes og Louis van Gaal var svo rekinn frá United sumarið 2016.