73. ársþing KSÍ er hafið, en það er haldið á Hilton Reykjavík Nordica. Nokkrar tillögur liggja fyrir þinginu. Þá verður kosið til formanns en í framboði eru Guðni Bergsson og Geir Þorsteinsson.
Guðni hefur fengið stuðningsyfirlýsingu úr nokkrum áttum á síðustu dögum. Sara Björk Gunnarsdóttir og Dagný Brynjarsdóttir, sem eru lykilmenn í kvennalandsliðinu hafa stutt við bakið á Guðna og gagnrýnt störf Geirs.
Sara Björk hjólar aftur í Geir: ,,Nei, við skulum bara þegja“
Guðni hefur verið formaður í tvö ár en Geir starfaði fyrir sambandið í tæp 25 ár, tíu ár var hann formaður.
Geir er ásakaður um að sýna kvennalandsliðinu lítinn áhuga og hefur sambandið við Guðna verið meira síðan hann tók við starfinu fyrir tveimur árum.
Þá hafa Garðar Örn Hinriksson, fyrrum dómari og Hallgrímur Jónasson, fyrrum landsliðsmaður verið að bauna á Geir. Gagnrýnt störf hans, þetta finnst Jóni Rúnari Halldórssyni, formanni knattspyrnudeildar FH, miður.
„Ég veit að ég mæli fyrir munn margra forráðamanna í aðildarfélögum KSÍ þegar ég segi að í aðdraganda formannskjörsins á ársþingi sambandsins á morgun, og umfjöllunar fjölmiðla um kosningabaráttuna undanfarna daga, hafi hin svokölluðu stóru mál fallið í skuggann fyrir því sem skiptir minna máli fyrir félögin sjálf,“ sagði Jón Rúnar í samtali við mbl.is.
Hvað er það sem Jóni finnst miður?
„Þar má nefna landsliðsfólk, fyrrverandi dómara og menn sem hafa verið í stuði allt sitt líf! Að sjálfsögðu má fólk lýsa yfir stuðningi við hvern sem það vill en það er ekki smekklegt að draga aðra niður í svaðið um leið, og eins langt frá íþróttamannslegri framkomu og mögulegt er. Í raun má segja að tilgangurinn hafi helgað meðalið. Það verða að vera málefnalegu rökin sem ráða för.
Mér finnst til dæmis yfirlýsingar landsliðskvennanna ekki gera neitt annað en að gera lítið úr verkum Guðrúnar Ingu Sívertsen, fráfarandi varaformanns KSÍ, sem hefur vaðið eld og brennistein fyrir þessar frábæru knattspyrnukonur, með fullri virðingu fyrir öðrum innan stjórnar sambandsins.“