Alfreð Finnbogason var í byrjunarliði Augsburg í dag sem spilar við Mainz þessa stundina.
Alfreð er einn allra mikilvægasti leikmaður Augsburg en liðið treystir mikið á hans mörk.
Íslenski landsliðsmaðurinn olli ekki vonbrigðum í dag og er nú búinn að skora þrennu í leiknum.
Fyrstu tvö mörk Alfreðs komu úr vítaspyrnu en hann bætti svo við því þriðja eftir laglega sókn.
Hér má sjá mörkin.
Fyrra mark Alfreðs gegn Mainz 05. pic.twitter.com/xO2fhUq75h
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) 3 February 2019
Alfreð Finnbogason var nú rétt í þessu að skora aftur úr vítaspyrnu fyrir Augsburg. Hér má sjá annað markið hans í leiknum. pic.twitter.com/QqolQfzSrD
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) 3 February 2019
Alfreð Finnbogason var að skora sitt þriðja mark fyrir Augsburg gegn Mainz 05. Þvílíkur leikmaður. pic.twitter.com/7UZzOXk5zl
— Íslendingavaktin (@Islendingavakt) 3 February 2019