Gareth Bale, leikmaður Real Madrid, mun giftast unnustu sinni Emma Rhys-Jones í sumar.
Bale fór á skeljarnar fyrir tveimur árum síðan og áttu þau að giftast í glæsilegum kastala í Toskana á síðasta ári.
Bale var þó ráðlagt að fresta brúðkaupinu eftir að hafa fengið hótanir vegna tösku sem innihélt 750 þúsund pund í eigu eiturlyfjasala.
Það var fjölskylda Emma sem var partur af málinu árið 2016 og var á meðal annars kveikt í bílum þeirra í hótunarskyni eftir ásakanir um þjófnað.
Það var ákveðið að fresta brúðkaupinu vegna hótananna en Bale hefur nú tekið til sinna ráða.
Hann ákvað að leigja einkaeyju þar sem öryggisgæslan verður mikil og mun brúðkaupið fara fram í sumar.
Það er enginn möguleiki fyrir óboðna gesti að láta sjá sig á eyjunni en flogið er frá Ibiza og er pláss fyrir aðeins 150 manns.
Málið er enn á borði lögreglunnar en fjölskylda Emma heldur fram sakleysi sínu og segist tengjast málinu ekki neitt.
Hér má sjá eyjuna umtöluðu.