Julien Laurens blaðamaður í Frakklandi segir það ótrúlegt að Marco Verratti, miðjumaður PSG sé einn sá fremsti í heiminum. Veratti var ein af stjörnum PSG í gær þegar liðið pakkaði, Manchester United saman.
Verratti er að snúa til baka eftir meiðsli en hann virðist elska fátt annað en djamm og djús. Ef marka má orð Laurens.
,,Verratti var maður leiksins, að mínu mati. Hann er ekki í formi, hann er ekki 100 prósent heill heilsu,“ sagði Laurens.
,,Í síðustu viku var hann á djamminu til morguns í afmæli Neymar, hann reykir og drekkur. Hann virðist fara út á lífið á hverjum degi.“
Laurens hrífst af því að Veratti geti verið svona öflugur, miðað við lífstíl.
,,Mér finnst það magnað að Veratti standi sig svona í leik á Old Trafford. Ef hann væri með lífstíl Ronaldo og vinnusemi hans, þá er ekki hægt að ímynda sér hvar hann væri staddur.“
,,Það er magnað að þrátt fyrir hæfileikana, að maður með þennan lífstíl geti spilað svona vel.“