fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
433Sport

Theodór Elmar þreyttur á móðursýki Íslendinga: ,,Taktlaust og kjánalega orðað“

Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 24. janúar 2019 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Theodór Elmar Bjarnason, landsliðsmaður Íslands í knattspyrnu og leikmaður Gazişehir Gaziantep, er orðinn þreyttur á þeirri móðursýki sem grípur landann um leið og einhver einstaklingur misstígur sig.

Mikil umræða hefur skapast um Körfuboltakvöld á Stöð2 Sport sem fram fór síðasta föstudag, margir hafa hneyklast á ummælum sem þar voru höfð. Elmar gefur lítið fyrir það eins og margir aðrir sem eru sammála honum, að íslenska þjóðin hneykslist yfir öllu.

,,Já þetta var taktlaust og kjánalega orðað hjá þessum mönnum í @korfuboltakvold alvarlegra en það var það ekki! Það eru allir orðnir þreyttir á þessari endalausu móðursýki sem grípur landann í hvert skipti sem einhver misstígur sig,“ skrifar Elmar á Twitter.

„Ertu eitthvað vankaður í höfðinu,“ spurði Jón Halldór Eðvaldsson körfuboltasérfræðingur Kjartan Atla Kjartansson, þáttastjórnanda Körfuboltakvölds Dominos, þegar sá síðarnefndi spurði hvað sérfræðingunum fyndist um veganúar. Umræðurnar fóru af stað í lokin á Framlengingunni í þætti gærkvöldsins á Stöð 2 Sport. Þeir Kjartan Atli, Jón Halldór og Fannar Ólafsson voru búnir að fara yfir stöðuna í Dominos-deildinni þegar spurningin um hvað sérfræðingunum finnst um veganúar, mánuð þar sem fólk á ekki að neyta dýraafurða.

Gísli Marteinn Baldursson, er að mörgu leyti sammála Elmari. ,,Rétt. Samt ekki móðursýki þegar foreldrar downs-barna benda handritshöf á að orðalag hans hafi sært og hann samþykkir og segir sorry. Ekki heldur ef hjúkrunarfr mótmæla með rökum steríótýpum. Stundum verða hinsvegar miðaldra karlar móðursjúkir yfir þessum kurteislegu samskiptum. Með öðrum orðum þá finnst mér rosa lítill munur orðinn á þeim sem hneykslast í fyrstu bylgju og þeim sem hneykslast á hneyksluninni í annarri bylgju. Semsagt „MÁ EKKERT LENGUR“-kórinn.“

Elmar svarar honum og segir. ,,Allt gott og blessað að benda á hvað manni finnst að betur megi fara. En það er Hysterian á bakvið það sem er orðin þreytt, eins og að krefjast þess að Dominos hætti að styrkja þáttinn. Það sjá það allar rökhugsandi manneskjur að það er verið að gera úlfalda úr mýflugu. Það er heldur ekki á ábyrgð rithöfunda að ala upp börnin þín eða að endurspegla 100% það sem er að gerast í samfélaginu. Þetta er skáldsaga og rithöfundurinn er að skrifa til markaðshóps sem á td auðveldara með að sega hj.kona heldur en hj.fræðingur.“

Mikill hiti var í mannskapnum og listaði Fannar upp nokkur atriði: „Núvitund er ekki til. Vegan er blaður og bull skilurðu. Algjört rugl.“ Fannar breytti um rödd og sagði: „Ég ætla ekki að fá mér sósu þar sem að einhver dýraafurð gæti hugsanlega… þeigiði. Guð minn góður.“

Fannar sagði svo í hæðnistón: „Tengdapabbi, mjólkurbílstjóri í 48 ár. Já já! Ég er bara með kulnun í starfi! Þegiði! Andskotans bull! Þess vegna eru slysasjóðir VR bara tæmdir! Þunglyndi? Þú ert bara í tölvunni allt of lengi fíflið þitt!“

Meira:
Æsingur á Stöð 2 Sport: „Kulnun í starfi er leti!“ – „Þess vegna eru slysasjóðir VR bara tæmdir!“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona

Eiginkona Gundogan blandar sér í stríðið í klefanum hjá Barcelona
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær

Tveir leikmenn báðu um að taka ekki vítaspyrnu í gær
433Sport
Fyrir 12 klukkutímum

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“

Var agndofa þegar Schweinsteiger lýsti framkomu Mourinho hjá United – „Mér var bara sparkað út úr klefanum“
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi

Leikmaður Arsenal ákærður – Varðhundur hans á að hafa bitið nuddarann í háls og hendi
433Sport
Fyrir 15 klukkutímum

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?

Er þetta maðurinn sem á að fylla skarð Mo Salah í sumar?
433Sport
Fyrir 18 klukkutímum

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti

Ronaldo vinnur skaðabótamál gegn Juventus – Fær 1,5 milljarð plús vexti
433Sport
Í gær

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls

Adam birtir myndir af skónum hans Arons með æluna upp í háls