Kjartan Henry Finnbogason hefur gert samning við Vejle í dönsku úrvalsdeildinni.
Þetta staðfesti Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Kjartans, í samtali við Fótbolta.net í dag.
Kjartan hefur undanfarið leikið með Ferencvaros í Ungverjalandi en tækifærin voru af skornum skammti.
Hann mun nú reyna fyrir sér í Danmörku á ný en hann lék þar áður með Horsens og skoraði grimmt.
Vejle leikur í dönsku úrvalsdeildinni en liðið er í fallbaráttu þessa stundina og situr í næst neðsta sæti.