Tottenham tapaði mikilvægum leik í ensku úrvalsdeildinni um helgina er liðið mætti Manchester United.
Aðeins eitt mark var skorað í stórleiknum á Wembley en það gerði Marcus Rashford fyrir heimamenn.
Þetta var síðasti leikur Heung-Min Son fyrir Tottenham í dágóðan tíma en hann er nú á leið í Asíukeppnina.
Son átti ekki sinn besta leik í gær og þurfti að hlusta á kynþáttaníð úr stúkunni frá eigin stuðningsmönnum.
Þetta segir blaðamaðurinn James Dickens en hann er einnig stuðningsmaður Tottenham og var á leiknum.
Nokkrir stuðningsmenn Tottenham voru með rasisma í garð eigin leikmanns og er félagið nú að rannsaka málið.
,,Asískir leikmenn virðast vera ásættanlegt skotmark þegar kemur að svona hlutum og það er viðbjóður,“ skrifaði Dickens.
,,Ég hef ekki orðið vitni að rasisma í fótbolta í 15 ár en það sem ég sá í dag var viðbjóðslegt.“
,,Ég tilkynnti þetta til öryggisvarða og stóð upp í þeim sjálfur og var kallaður aumingi. Á meðan stóð ég hliðina á syni mínum. Viðbjóður.“
Dickens starfar fyrir miðilinn Goal.com en hann var á vellinum í eigin frítíma.