Alfreð Finnbogason, leikmaður íslenska landsliðsins, var staddur í Munchen í Þýskalandi í dag.
Alfreð sá þar leik íslenska handboltalandsliðsins á HM en strákarnig okkar spiluðu við Barein.
Ísland hafði fyrir leikinn í dag tapað gegn Króatíu og Spáni en vann öruggan sigur á Barein, 36-18.
Alfreð er búsettur í Þýskalandi en hann spilar með Augsburg þar í landi og er því ekki lengi að ferðat til Munchen.
Hann sá um að veita besta manni leiksins í dag verðlaun en þann heiður hlaut markvörðurinn Björgvin Páll Gústafsson.
Björgvin átti flottan leik í markinu í sigri Íslands og var vel að verðlaununum kominn.