Pétur Viðarsson, miðvörður FH er byrjaður að gera það gott sem einn helsti pulsusali landsins.
Pétur tók yfir rekstur Pulsubarsins sem er sögufrægur í Hafnafirði.
Þessi öflugi varnarmaður ræðir málið í sjónvarpsþætti sem FH var að birta.
,,Ég er búinn að vera í pulsubransanum frá 15. maí,“ sagði Pétur í þættinum sem má sjá hér að neðan.
,,Ég vissi ekki hvað ég var að gera í byrjun en núna er ég með allt uppá 10.“
,,Ég hef þurft að redda vöktum, það hefur verið vesen. Ég hef tekið 14 tíma vinnudag og svo leikur daginn eftir.“
Viðtalið er í heild hér að neðan.