Gunnar Heiðar Þorvadsson, leikmaður ÍBV í Pepsi-deild karla, mun leika sinn síðasta heimaleik fyrir félagið í dag.
Þetta staðfesti ÍBV í dag en liðið spilar við Stjörnuna í dag í næst síðustu umferð deildarinnar.
ÍBV hefur greint frá því að Gunnar sé að leggja skóna á hilluna eftir farsælan feril.
Tilkynning ÍBV:
Kóngurinn kveður Hásteinsvöll í dag.
ÍBV tekur á móti Stjörnunni í dag kl. 14:00. Þetta verður ekki bara síðasti heimaleikur ÍBV á þessu tímabili heldur verður þetta síðasti heimaleikur Gunnars Heiðars Þorvaldssonar. Gunnar Heiðar hefur tekið þá ákvörðun að leggja skóna á hilluna. Gunnar á að baki 148 leiki með ÍBV og 62 mörk.
Kveðjum hann með pomp og prakti. Pallapartý klukkutíma fyrir leik, öl, pulsur og sparkvöllur. Allir á völlinn!
Gangi þér vel kæri vinur og takk fyrir þitt framlag til félagsins.