Guðlaug Kristjánsdóttir, bæjarfulltrúi í Hafnarfirði er afar ósátt með það hvernig bæjarstjórnin hefur gengið fram í máli FH Og knattspyrnuhús sem félagið mun brátt byggja. Hún skrifaði pistil um málið á Kjarnanum.
Hafnarfjarðarbær hefur ákveðið að leggja til umtalsvert fjármagn svo að FH geti byggt knattspyrnuhús í fullri stærð. Tímabært að margra mati en minnihlutinn er ósáttur með hvernig farið var að málinu.
Til að FH gæti fjármagnað verkefnið þá ákvað bærinn að kaupa íþróttahúsið, og tvö lítil knattspyrnuhús af félaginu.
Kaupverðið á húsunum þremur samkvæmt Guðlaugu var 790 milljónir króna.
,,Hvar og hvenær gerist það – og í hvers konar neyð – að sveitarfélag stofnar starfshóp, hópurinn fundar strax sama dag, samþykkir útgjöld framhjá fjárhagsáætlun upp á 100 milljónir og bæjarstjóri greiðir summuna samdægurs, án þess að fyrir liggi hvað er í raun verið að fjármagna?,“ skrifar Guðlaug í Kjarnann.
Það sem minnihlutinn í bænum virðist hvað mest ósáttur við er að bærinn lagði strax út 100 milljónir, án þess að fundargerð væri til um slíkt. Mikil læti hafa verið vegna málsins.
Úr pistli Guðlaugar:
Má Hafnarfjörður kaupa 92 milljón króna húseign af sjálfum sér á hálfan milljarð?
Ég leyfi mér að fullyrða að kaupverð húsanna þriggja sem um ræðir (íþróttahússins Kaplakrika, Risa og Dvergs) getur aldrei orðið 790 milljónir. Í fyrsta lagi á Hafnarfjörður það fyrstnefnda nú þegar að 80% hluta, sem skráður er á 92 milljónir í bókum bæjarins. Að vísu hafði bæjarstjórnin sem sat árið 1989 ákveðið að gefa FH þennan hluta frá og með árinu 2005 að telja. Sá gjafagjörningur hefur hins vegar ekki verið fullnustaður enn og reyndar leikur verulegur vafi á því að slík ráðstöfun með almannafé eigi rétt á sér, þ.e. að gefa húseign án kvaða. Það vekur því furðu mína að bæjarstjóri og meirihluti bæjarstjórnar skuli nú ætla að fylgja nærri 30 ára samþykkt eftir án frekari lagalegrar rýni. Því sú er nefnilega ætlunin; að byrja á því að gefa eignarhlutann fyrir 92 milljónir sem þar með gjaldfærast í bókum bæjarins og kaupa hann svo aftur, á mun hærra verði, jafnvel hálfan milljarð.
Kaupverð hinna húsanna tveggja er einnig mjög á reiki, sem og ástæðan fyrir því hvers vegna bærinn ætti yfir höfuð að vilja eignast þau. Byggingarverð þeirra var framreiknað árið 2017 af endurskoðanda bæjarins í samvinnu við FH og var þá alls áætlað um 390 milljónir.
Meirihluti bæjarstjórnar og bæjarstjóri eiga því enn eftir því að svara hvernig þau reikna það út að húsin þrjú (sem bærinn á þegar að stóru leyti) geti kostað sléttar 790 milljónir. Eina sýnilega nálgunin við þá tölu eftir það sem fram hefur komið í gagnaleitinni er kostnaðaráætlun FH fyrir nýja húsið, upp á 789.688.500 krónur.
Fram hefur komið að ástands- eða verðmöt liggja ekki fyrir, fyrir utan stakt verðmat á íþróttahúsinu.