Louis Speed fyrrum eiginkona Gary Speed hefur verið að kljást við sorg í sjö ár. Gary batt enda á líf sitt árið 2011.
Hann hafði glímt við mikið þunglyndi en hann var þjálfari Wales á þessum tíma og hafði átt mjög farsælan feril sem knattspyrnumaður.
Louise fann Gary í bílskúrnum á heimili þeirra þar sem hann hafði hengt sig.
Ekki neinum í kringum Gary hafði grunað að þunglyndi hans væri með þessum hætti en bréf sem Louise fann á dögunum útskýrir margt.
,,Ég er svo þunglyndur, ég ætla að fara að sofa og vona að ég vakni aldrei aftur. Ég elska þig svo mikið,“ skrifaði Gary í bréfið sem hann ætlaði að senda Louise en gerði aldrei.
Það fannst svo í gömlum kassa en Gary var elskaður og dáður sem leikmaður og þjálfari.