Erik Hamren og Freyr Alexandersson byrja ekki vel í starfi með íslenska karlalandsliðið í fótbolta.
Belgía heimsótti Ísland í Þjóðadeildinni í gær og unnu sanngjarnan 0-3 sigur. Íslenska liðið byrjaði vel en botninn datt úr leik liðsins eftir um 20 mínútur. Liðið tapaði 6-0 fyrir Belgíu á laugardag.
Liðið er því með mínus 9 í markatölu eftir tvo leiki.
Jón Daði Böðvarsson byrjaði í leiknum og eins og venjan er þá voru krakkar sem héldu í hönd leikmanna þegar þeir gengu út á völlinn.
Stúlkan unga sem leiddi Jón Daða út á völlinn var smá stressuð. ,,10.000 manns getur verið yfirþyrmandi. En þessi flotta stelpa stóð sig eins og hetja.“
Mynd af atvikinu má sjá hér að neðan.