Erik Hamren og Freyr Alexandersson byrja ekki vel í starfi með íslenska karlalandsliðið í fótbolta.
Belgía heimsótti Ísland í Þjóðadeildinni í gær og unnu sanngjarnan 0-3 sigur. Íslenska liðið byrjaði vel en botninn datt úr leik liðsins eftir um 20 mínútur. Liðið tapaði 6-0 fyrir Belgíu á laugardag.
Liðið er því með mínus 9 í markatölu eftir tvo leiki
,,Erik Hamren hefur nú tapað tveimur fyrstu leikjunum sínum sem þjálfari Ísland, liðið hefur fengið á sig níu mörk í þeim,“ sagði greinahöfundur Daily Mail.
,,Orðsporið hjá þessari Norrænu þjóð hefur beðið hnekki með hripleka vörn.“
Greinahöfundur hrósar Gylfa Sigurðssyni. ,,Gylfi gerði sitt besta til að koma liðinu aftur inn í leikinn en Ísland mætti lið í betri gæðaflokki.“
The Sun fjallar einnig um málið. ,,Ísland hefur nú tapað tveimur leikjum í röð í Þjóðadeildinni, en liðið tapaði 6-0 gegn Sviss.“
,,Lærisveinar Erik Hamren hefðu átt að tapa með talsvert stærri mun því Belgar fengu fullt af færum.“
Telegraph fjallar einnig um leikinn á Laugardalsvelli í gær og segir íslenska liðið í vandræðum.
,,Eftir tvö slæm úrslit, 6-0 tap gegn Sviss og 3-0 tap gegn Belgium í Reykjavík, liðið komst í átta liða úrslit á EM árið 2006 en virðast í frjálsu falli og eru á botninum með mínus níu í markatölu.“