Gylfi Þór Sigurðsson og Ragnar Sigurðsson mættu ekki í viðtöl við fjölmiðla eftir 0-3 tap gegn Belgíu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Allir aðrir íslenskir leikmenn sem komu við sögu í leiknum voru til viðtals.
Gylfi var fyrirliði liðsins í leiknum en liðið hefur tapað fyrstu tveimur leikjunum í keppninni.
Þeir félagar höfnuðu því fyrst að fara í viðtal við Stöð2 Sport sem er réttihafinn á leiknum.
Öðrum fjölmiðlum var svo tjáð að þeir tveir myndu ekki koma og ræða við fjölmiðla.
Svona atvik hafa ekki komið upp lengi en þetta gerðist reglulega hér á árum áður hjá landsliðinu.