Michael Oliver sá um að dæma leik Crystal Palace og Liverpool í gær er liðin áttust við í ensku úrvalsdeildinni.
Leikið var á Selhurst Park en Liverpool hafði betur í leiknum með tveimur mörkum gegn engu.
Oliver er nú í umræðunni eftir magnaðan sprett sem hann tók undir lok leiksins er Liverpool skoraði sitt annað mark.
Sadio Mane skoraði þá annað mark Liverpool í uppbótartíma eftir skyndisókn og gerði út um leikinn.
Oliver var partur af þessari sókn Liverpool en hann hélt alveg í leikmenn beggja liða og sýndi mikinn hraða er hann elti sóknina.
Sjón er sögu ríkari!
Michael Oliver showing some reyt pace, proper determination to join the Liverpool attack ? #Terminator pic.twitter.com/OelmJ4Kw4w
— Adam Thompson (@adam7485) 20 August 2018
Look at the effort put in by referee Michael Oliver to keep up with play. pic.twitter.com/FRYXMFCVkP
— Trevor Rowley (@mnemouth) 20 August 2018