Miðjumaðurinn Jorginho byrjar vel hjá sínu nýja félagi, Chelsea en hann kom þangað frá Napoli í sumar.
Jorginho hefur þótt standa sig vel fyrir liðið til þessa en hann kom reglulega við sögu á undirbúningstímabilinu.
Ítalinn skoraði þá mark í 3-0 sigri á Huddersfield í gær en hann gerði annað mark liðsins úr vítaspyrnu.
Vítaspyrnutækni Jorginho er mjög athyglisverð en hann tekur lítið hopp áður en hann sparkar í boltann.
Virkar allt mjög auðvelt fyrir þennan öfluga leikmann eins og má sjá hér.
Debut goal for Jorginho, his penalties are so satisfying. pic.twitter.com/HvpFZW2z8b
— Mod (@CFCMod) 11 August 2018