Heimir Hallgrímsson ætlar að taka því rólega næstu vikur en eins og greint hefur verið frá er hann hættur að þjálfa íslenska landsliðið. Eftir að heimsmeistaramótinu lauk hafa nokkur lið sýnt honum áhuga en hann hefur fengið fyrirspurnir frá bæði landsliðum og félagsliðum.
Þetta kom fram á blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar á Hilton Hótel Nordica sem lauk fyrir skemmstu. Hann sagði áhugann ekki hafa haft nein áhrif á ákvörðun um að stíga til hliðar hjá KSÍ. Hann sé nú í þeirri stöðu að hann geti skoðað allt.
Á fundinum þakkaði Heimir KSÍ og öllu því fólki sem hann hefur unnið með síðustu sjö ár kærlega fyrir samstarfið. „Ég er virkilega stoltur og það eru forréttindi að fá að skila af sér stöðunni eins og hún er í dag,“ sagði Heimir og bætti við: „Það er frábært fyrir okkur að vera á þessum stað á þessum tíma.“
Heimir hefur stýrt íslenska liðinu síðan 2011, fyrst sem aðstoðarþjálfari Lars Lagerbäck, síðar með Lagerbäck. Hann tók svo einn við stjórnartaumunum eftir EM í Frakklandi árið 2016.