Rio Ferdinand, fyrrum leikmaður Manchester United, vonar innilega að sitt fyrrum félag reyni að fá Kylian Mbappe frá Paris Saint-Germain.
Mbappe var frábær fyrir franska landsliðið á HM í sumar en hann lék í 4-2 sigri á Króatíu í gær er Frakkar urðu heimsmeistarar.
Feridinand vill sjá United reyna við Mbappe sem myndi klárlega verða dýrasti leikmaður heims ef hann færir sig um set.
,,Hann er ofurstjarna. Hann kom sjálfum sér ekki á óvart með þessari frammistöðu í úrslitaleiknum,“ sagði Ferdinand.
,,Hann er leikmaðurinn sem er að taka við af Ronaldo og Messi. Hann mun vinna Ballon d’Or verðlaunin á næstu árum.“
,,Ég vona að gamla félagið mitt taki upp veskið og segi ‘hvað sem það kostar að fá hann, við borgum það’.